Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1956, Side 46

Breiðfirðingur - 01.04.1956, Side 46
44 BREIÐFIRÐINGUR önnur, smá og stór. Það á drýgstan þátt í hinni heimsku- legu meðferð og sóun fjölmargra á fjármunum, tíma, heilsu og vinnuþreki — auk ýmiss konar annars auðnuleysis og óhamingju. Það er því fullkomlega þörf á að spyrnt sé við fæti — og það er hægt —, ef þjóðin vill. Ef þjóðin vill vakna og mynda sterka og öfluga andspyrnuhreyfingu — ekki bara gegn útlendum „her í landinu“, heldur fyrst og fremst gegn þeim óvinum, sem búa í hennar eigin barmi — sinni eigin ómenningu. Hún gæti byrjað á því að reyna að þurrka burt þann smánarblett, sem hið lágstæða skemmt- analíf hefur sett á menningu sveitanna. Ef foreldrar til sjávar og sveita, sem hlut ættu að máli, ef barnaverndar- nefndir, prestar, kennarar og aðrir, sem forystu eiga að hafa í menningarmálum, tækju höndum saman og hefðu samvinnu við forstöðufólk samkomustaða, félög og félags- samtök og aðra, er fyrir samkomum stæðu, — ef allir þessir aðilar hefðu með sér einhuga samtök um að bæta ástandið, þá yrði það auðvelt, — og í raun og veru vilja þeir allir að það batni. Kröfur slíkrar andspyrnuhrevfing- ar yrðu þá fyrst og fremst þessar: Burt með þessar lág- stæðu og siðlitlu skemmtisamkomur. Oruggt og ákveðið lög- gilt eftirlit yrði haft með hverri skemmtisamkomu, og hver sá aðili, er leyfði drykkjuskap og siðlítilli framkomu og skemmtanasiðum að haldast uppi á samkomu sinni, væri tafarlaust sviptur skemmtanaleyfi um lengri eða skemmri tíma. I öðru lagi yrði sumarskemmtunum fækkað verulega frá því, sem nú á sér stað; a. m. k. 3—4 sunnudagar í sveit- unum yrðu á sumri hverju friðaðir fyrir þeim óróa og truflun á eðlilegu og friðsömu lífi, sem stöðugar skemmt- anir valda. Með því gæfist fólki þá stöku sinnum tóm til að sækja messur, koma á aðkallandi félagsfundum, og börn og unglingar hefðu einhvern tíma frið til þess að skreppa fram í fjallabrekkur sólfagra sunnudagsstund til berja. í

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.