Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1956, Side 54

Breiðfirðingur - 01.04.1956, Side 54
52 BREIÐFIRÐINGUR fellsnesi og með ýmsum hætti. Hjá honum fann Ásgrímur Hellnaprestur síðustu galdraskræðuna undir Jökli, sem talið er, að varðveitt hafi verið til nytja. Báðir voru þá búsettir í Einarslóni. Ásgrímur kom skræðu þessari undir pott sinn í Lóni og reis af ævilöng óvinátta milli Bjarna og prests. Jafnframt var þá sleginn sá neisti, er óvildinni olli milli Ásgríms Hellnaprests og Jóns Espólíns. En þótt Bjarni missti af teiknabók sinni, var honum ekki öll kunn- átta úr minni, því að ekki þótti aldæla, þá er hann gamall maður gat seitt til sín í sæng hina vænu prestsdóttur frá Breiðabólsstað gegn vilja foreldra hennar og stærsta og voldugasta frændagarðs á Snæfellsnesi. Bjarni deyr 22. marz 1841, og kveður þá síðasti fulltrúi forneskjunnar undir Jökli. Áratug síðar setzt Gísli Kon- ráðsson að í Breiðafirði, og eru þá enn á allra vörum sögur af Bjarna frá Hnausum. Þar komst því í feitt hnífur þess manns, er undi öllum verr lágkúru hversdagsviðburða, en mat hins vegar flestum betur fjölþrif og víxlspor náungans, svo að af mætti gera sögu. Hnausa-Bjarna þáttur Gísla Kon- ráðssonar er glöggt dæmi þess, liversu honum lét að semja reifara, þar sem hann notar munnmælasögur um Bjarna sem stiklur til þess að skila honum til okkar yfir ána sem magnaðri þjóðsagnaveru. Löngu eftir að Bjarni er allur og Hnausakofatómthús niður brotið, en eftir stendur tóftin, dreymir jómfrú Mar- gréti Kolbeinsen (sonardóttir Jóns Kolbeinssonar kaup- manns), að hún er þar komin. Allt í einu hverfa lienni veggirnir og hún þykist stödd í kirkju og krjúpa fyrir fram- an altari. III. Víkur nú sögu til Eyrarsveitar. Hálfan annan áratug eftir miðja nítjándu öld búa þá að Neðri-Lág hjónin Margrét \

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.