Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 65
BREIÐFIRÐINGUR
63
frænku sinnar fluttist Dagbjört vorið 1932 til Elliðaeyjar
með Dagbjörtu dóttur sinni og manni hennar, Jónasi Páls-
syni. Var þá yngri sonur hennar Jón giftur Kristínu Páls-
dóttur og bjuggu þeir mágar þar báðir.
Nú var Dagbjört hinn góði engill heimilanna og gladd-
ist við leik barnabarnanna og velgengni barna og barna-
barna.
En ekki er lengi að syrta! Því eftir 214 ár drukknaði
Jón sonur hennar í fiskiróðri við annan mann, í mannskaða-
veðrinu mikla 14. desember 1935.
Nú hafði mildi hennar nóg að vinna að hugga og ljós
hennar að lýsa. En hún átti svo mikla þolinmæði, og trúar-
traust á æðri mátt til að sjá og hjálpa.
Seinna fluttist hún svo til Stykkishólms með Dagbjörtu
dóttur sinni og manni hennar og var hjá þeim til dauða-
dags, 20. febrúar 1955, þá hátt á 85. aldursári. Voru þá
afkomendur hennar á lífi 55, að mér er sagt.
Dagbjört var meðalhá vexti, ljós í andliti með tinnu-
svart hár. Svipurinn var hreinn og bar með sér yndisþokka,
sem kom fram í dagfari hennar, við hvern sem í hlut átti.
Eg kveð hana svo með orðum Sigrúnarljóða:
Þó heimsdvalar-dreyrinn
deyi þér af vörum,
blærinn þær blíðlega skreytir
blá-sala eilífðar!
Þannig mun ég ávallt hugsa til hennar.
Ingveldur A. Sigmundsdóttir.