Breiðfirðingur - 01.04.1956, Síða 66
Sagnir og lausavísur úr Breiðafirði
Þáttur þessi mun framvegis birtast í hverju hefti. Hér er rúm jyrir alls-
kyns Breidfirzkan fró&leik. Svo sem, lausavísur, og annan kve&skap, dul-
rœnar frásagnir af mönnum og málefnum. Þeir lesendur, sem eitthvað kynnu
a& hafa í fórum sínum af slíku ejni, hvort sem þaS er frumsamið eóa eftir
aöra, eru eindregiS hvattir til þess að senda ritinu þaS. íhugi'S hvort ekki
eitthvaS, sem er þess virSi aS þaS sé varSveitt.
Utanáskriftin er: TímaritiS BreiSfirSingur, Lynghaga 18 Reykjavík.
Þormóður í Gvendareyjum og Oddur lögmaður.
Eitt sinn hittust þeir, Þormóður skáld í Gvendareyjum,
hinn landskunni galdramaður og ákvæðaskáld, og Oddur
lögmaður Sigurðsson. Oddur lögmaður var með hæstu
mönnum landsins, og um leið og Þormóður heilsar lög-
manni, kveður hann vísu þessa:
Oddur hinn hái eruð þér,
eftir Krukkspá forðum.
Göfugur, ekki gremstu mér,
þó gaman hreyti ég orðum.
Sagt er að lögmaður hafi reiðzt við og slegið Þormóð í
andlitið. Þá kvað Þormóður:
Hér er hnigin hurð að gátt,
hitti loku kengur.
Kjaftshögg hefur enginn átt
ári hjá mér lengur.
Skömmu síðar braut Oddur lögmaður skip sitt, „Svan“,
undir Látrabjargi. Lagðist þá á sá orðrómur, að Þormóður
hefði átt þar hlut að máli með fjölkynngi sinni. Kunnugur