Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 67

Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 67
BREIÐFIRÐINGUR 65 maður Þormóði orðaði þetta við hann. Svaraði Þormóður því, að víst væri hann saklaus þar, hefði hann alls ekki viljað auka óhamingju Odds, sem ærin væri framundan. Oddur lögmaður var síðar dæmdur frá embætti og æru, enda þótt hann að lokum fengi uppreisn æru sinnar með konungs úrskurði. Oddur lögmaður var talinn skarpvitur maður og hjarta- lilýr, en mjög ofsafenginn í skapi, sem mest bar á, er hann var undir áhrifum víns, sem því miður mun oftast hafa verið. . . > Ákvæði Þormóðs og kveðskapur. Einhverju sinni kom Þormóður fram í kaupskip í Stykk- ishólmi og vildi ganga í káetu fyrir kaupmann, en mat- sveinn á skipinu bannaði Þormóði það með illyrðum. Þor- móður tróð sér þar inn engu að síður og kvað, þegar hann kom fyrir kaupmann: „Kokkurinn yðar, kaupmaður minn, sé kyrktur eins og lundi; hann gerði mér banna að ganga inn, gikkurinn, líkur hundi.“ Litlu síðar heyra þeir kaupmaður og Þormóður eitthvert snörl uppi á þilfarinu, og þegar að er gáð, verða þeir þess varir, að farið er að korra í matsveini eins og verið værí að kyrkja hann. Kaupmaður varð lafhræddur, því hann grunaði hvað olli, skenkti í stóran bikar og rétti Þormóði og bað hann í öllum bænum að gera bragarbót. Þá kvað Þormóður: „Meðan lífs ei húmar húm hraustur sértu og virkur;

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.