Breiðfirðingur - 01.04.1956, Síða 80
78
ÍSREIÐFIRÐINGUR
í sambandi við annað eða önnur átthagafélög. En það er
auðvitað mál út af fyrir sig.
Utvarpskvöldvöku hélt félagið í maí að venju. Var það
samfelld dagskrá um breiðfirzk menningarmál, og hafði
Arelíus Níelsson tekið hana saman, en hún var flutt af
Ragnheiði Asgeirsdóttur, Guðbjörgu Vigfúsdóttur, Jóni
Júlíusi Sigurðssyni, Maríu Bj. Árelíusdóttur, Stefáni Jóns-
syni og Friðjóni Þórðarsyni. Árelíus var þulur.
Ferðalög félagsins má telja í sambandi við átthagaferð
Breiðfirðingakórsins vestur til Breiðafjarðarbyggða. Enn-
fremur fór hópur vestur að Olafsdal við afhjúpun minnis-
varðans um Torfa Bjarnason og Guðlaugu Zakaríasdóttur.
Var hið fyrrnefnda mjög skemmtileg og söguleg ferð.
Heiðmörk var heimsótt 10. júní af stórum hópi Breið-
firðinga og gróðursettar margar trjáplöntur af miklum
dugnaði, og má félagið hyggja þar til fagurra gróðurlunda
í náinni framtíð.
Breiðfirðingur kom út á árinu og fylgdust þar í raun og
veru þrír árgangar. Er nú og nýkomið út síðasta hefti hans,
en sá árgangur er einfaldur.
Sigurður Hólmst. Jónsson, sem verið hefur framkvæmda-
stjóri ritsins, lætur nú af þeim störfum, sökum margs konar
anna. Þökkum við honum öll frábæra þrautseigju hans og
framúrskarandi samvizkusemi við þetta starf mörg undan-
farin ár eða áratugi.
Starfi hans mun nú vel borgið í höndum frænda hans,
Jóns Júl. Sigurðssonar, fyrrv. formanns Breiðfirðinga-
félagsins. En hann var tilnefndur eftirmaður Sigurðar við
Breiðfirðing á stjórnarfundi, þar sem þeir voru báðir
staddir.
Ritstjóri Breiðfirðings er enn Árelíus Níelsson. Er heitið
á alla Breiðfirðinga að útbreiða ritið sem bezt. Þar verða