Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 26
26 FÓLK - VIÐTAL 5. október 2018
Konan mín og dætur hafa upp-
lifað margt, þær hafa gert það. Ég
hef gengið hérna út með þær grát-
andi, mér var alveg skítsama og
gekk út. Það er þegar ég verð að
fá mér. Svo var ég búinn að vera
edrú og græt því ég sé svo eftir
þessu. En þær eru ánægðar með
mig í dag. Ég held að þær myndu
ekki vilja eiga neinn annan pabba.
Þær vita að ég er óvirkur í dag,
þessi elsta veit allt um sjúkdóminn
en mamma hennar er mjög veik-
ur alkóhólisti. Hún veit þetta allt,
hún er búin að lenda í þessu öllu.
Fölsku loforðunum. Hún veit ná-
kvæmlega hvernig þetta er. Börn
skynja þetta alveg, þau smitast af
meðvirkni. Meðvirkni smitast af
því að alast upp með fíkli, það er
bara svoleiðis. Svo er oft sagt að
meðvirkar konur leiti í alka. Kon-
an mín fann veikasta kókaínfíkil á
Íslandi. En hún er jafn ánægð með
það og hún er það ekki þegar ég
dett í það.“
Keyrði með dóttur sína í bílnum
á 150 kílómetra hraða að sækja
efni
Reynir segist í raun hafa ver-
ið að berjast við það að vera tve-
ir persónuleikar alveg síðan hann
hóf að nota.
„Ég verð bara allt annar
persónuleiki þegar ég fer á fyllerí.
Ég geri ekki neitt og fjölskylda mín
lokar á mig. Einu skipti sem ein-
hver leitaði þá til mín var ef það
þurfti að meiða einhvern, þá var
hægt að reiða sig á mig. En ég er
ekki gaurinn sem meiði einhvern
sjálfur, ég hef aldrei skilið menn
sem eru út úr dópaðir niðri í mið-
bæ að berja menn, þá hristi ég
bara hausinn þar sem ég er með
svo lítið hjarta sjálfur,“ segir Reyn-
ir en það sem hefur hjálpað hon-
um í gegnum hans verstu tíma er
hve lengi hann hefur verið í þess-
um heimi, þeir allra hættulegustu
séu orðnir vinir hans.
„Eftir eina meðferðina þá
skuldaði ég 4,2 milljónir og það
sem bjargaði mér var að þegar
maður hefur verið í þessu svona
lengi þá eru þessir karlar, þessir
hættulegustu brjálæðingar, orðnir
vinir manns og maður getur kom-
ist langt á því. Það er enginn að
fara að gera neitt við mann.“
Reynir segir ekkert geta stöðv-
að hann þegar hann hefur tekið
ákvörðun um að nota, en að það sé
ekki efnið sjálft sem stjórni honum
heldur hugur hans.
„Það sem ég sækist mest í, eða
sóttist mest í, það er ekki upp-
lifunin, það er ekki það að fá mér
sem er kikkið sem ég sækist í, því
þá brotna ég niður um leið. Kikk-
ið er þegar ég er búinn að taka
ákvörðunina, búinn að hringja og
segist vera að koma að sækja tíu
grömm. Þá kikka ég allur inn og
fer að iða. Ég hef staðið mig að því
að keyra hérna yfir heiðina með
dóttur mína aftur í á 150 kílómetra
hraða seint um kvöld, þegar börn
eiga að vera farin að sofa. Sjúkleg-
heitin eru það mikil. Þá er ég með
tónlistina í botni, allt alveg geggjað
en um leið og ég fæ efnið í hend-
urnar þá hugsa ég; „Fokk, hvað er
ég að gera?“ og svo fæ ég mér og þá
kemur vanlíðanin. Ég er í rauninni
farinn að fá mér áður en ég fæ mér.
Hugmyndin og leiðin, þá tryllist ég
að innan. En inntakan er ömurleg,
þá hellist helvítið inn. Dóttir mín
vakin klukkan eitt á laugardags-
nótt, hvað er ég að spá? Ég á fullt
af aumkunarverðum, ógeðslegum
mómentum og sem betur fer er ég
ekki kona því þá hefði ég selt mig
alveg grimmt. Það er gríðarlega al-
gengt, það er allt morandi í þessu.
Það er alveg svakalegt en fyrir mér
er þetta bara eðlilegt.“
Vill ekki gefast upp
Það sem Reynir segir algengt með-
al fíkla er að þegar þeir séu að nota
eiturlyf þá geri þeir allt til þess að
finna fólk sem er í verri stöðu en
þeir sjálfir til þess að upphefja
sjálfa sig.
„Ég hef staðið mig að því að
vera í partíi með sprautufíklum,
þá er ég búinn að mála mig út í
horn alls staðar. Þá hef ég dottið
í eitthvert partí með sprautufíkl-
um og verið þar að taka í nefið.
Svo sit ég og segi við þá; „djöfuls-
ins aumingjar eru þetta, ertu að
sprauta þig aulinn þinn.“ Þá er ég
að reyna að bjarga mínu stolti á
meðan ég er jafnvel ennþá veik-
ari en þessi sprautufíkill. Er í ein-
hverjum kippum með blóðnasir,
alveg ógeðslegur, en maður reyn-
ir að hífa upp stoltið alls staðar.
Maður reynir að benda á þenn-
an og hinn og segja að þeir séu
miklu verri en maður sjálfur. Mað-
ur reynir alltaf að finna einhvern
veikari, þeir eru bestu vinir manns
þegar maður er á botninum sjálf-
ur. Finna einhvern sem er alveg í
ræsinu, þá getur maður verið flotti
karlinn. En hjá mér undir lokin þá
get ég aldrei fundið neinn verri en
ég. Ég er alltaf sá versti.
Ég hef oft setið hérna og hugs-
að af hverju ég drepi mig ekki bara.
Það elski mig enginn og ég sé bú-
inn að skíta á mig. Kannski búinn
að missa vinnuna. Það sem hef-
ur bjargað mér er að ég hef alltaf
fengið séns, ég hef aldrei hætt að
reyna og ég hef alltaf haldið áfram.
Ég hef aldrei gefist upp, ég fer aft-
ur í meðferð, ég vil ekki gefast upp.
Þetta er eins og fólk með krabba-
mein, þú getur fengið bakslag. Nú
verður allt brjálað – að ég sé að
bera þetta saman, en þetta er bara
sjúkdómur. Það er enginn sem
hraunar yfir þig ef þú ert kominn
í bata með krabbameinið og færð
svo bakslag og þarft að fara aftur
í krabbameinsmeðferð. Það seg-
ir enginn við þig; „helvítis krabba-
meinsfíkillinn þinn, af hverju ertu
að fara í þessa meðferð hún virkar
ekkert.“ Maður fer áfram, mað-
ur reynir að halda í lífsreipið, ekki
gefast upp.“
Það hættir enginn við sem
ætlar að nota
Síðan Reynir ákvað að segja sögu
sína á Snapchat hefur hann mik-
ið verið að hjálpa fólki sem á við
fíknivanda að stríða og aðstand-
endur. Með því hefur hann reynt
að hjálpa við forvarnir sem hon-
um þykir þó ekki virka vel í dag.
„Sko, ef ég myndi hitta ungan
einstakling sem væri að spá í að fá
sér og ég myndi segja eitthvað við
hann, þá er hann ekkert að fara að
hætta við. Það er mín reynsla og
ég veit að þetta er sönn reynsla.
Ég hef farið með hundruð funda
út á Vog og Krýsuvík og hing-
að og þangað og svo talar mað-
ur við fólk sem segist ætla að fara
og detta í það en þá minnir maður
það á hvernig það var síðast, búið
að missa allt og reyna að drepa
sig. Þá segja þau alltaf; „já, en ekki
núna“. Ég held að besta forvörnin
fyrir ungt fólk sé að halda því sem
mest nálægt foreldrum sínum og
heilbrigðu lífi. Foreldrarnir saman
með börnunum. Reynslan mín
sýnir þetta allavega.
Ég er ekki að segja að forvarnir
séu glataðar og að það eigi ekki að
nota þær, en ég meina, ég kynnt-
ist heilmiklu af forvörnum í skól-
anum en ég byrjaði samt að reykja
hass og varð kókaínfíkill. Af hverju
hlustaði ég ekki á Marita hérna í
gamla daga? Þeir sögðu mér þetta
allt. Ég er einmitt þannig að ég gæti
fengið góða hugmynd á forvarnar-
fræðslu. Ég man ekki hvort ég var
þannig í gamla daga en allt sem
ég má ekki finnst mér spennandi
og allt sem var óheiðarlegt fannst
mér spennandi. Ef ég gat hagn-
ast á einhverju óheiðarlega þá var
það góð hugmynd. Hagnast hratt
og mikið, á semi-gráu svæði, já, af
hverju ekki? Svona er ég og ég er
ekki eini Íslendingurinn sem er
svona. Skjótfenginn gróði, gylli-
boð. Ég er búinn að vera svo oft
edrú og áður en ég veit af er ég
farinn að flytja inn eiturlyf bara til
þess að ná mér í pening hratt. Þá
verð ég voða karl, á fullt af pening,
„looka“ vel með allt 100%, flúrað-
ur og fínn. Þá ákveð ég að fá mér
aðeins og þá fellur þetta allt með
sjálfu sér.“
Stöðug sjálfsskoðun að
viðhalda edrúmennskunni
Þrátt fyrir erfitt líf og alvarlegan
sjúkdóm getur Reynir þó ávallt
slegið á létta strengi og tekur hann
lífið ekki of alvarlega.
„Ég er ekkert að berja mig nið-
ur fyrir þetta. Það sem bjargar mér
er að ég tek þessu svo létt. Ég er
með eitt stærsta Snapchat á Ís-
landi og allir vita að ég er óvirkur
fíkill. Maður á ekki að skammast
sín ef maður er með hvítblæði eða
einfættur, þú ert bara þannig. Eftir
allar meðferðirnar mínar og edrú-
tímabilin mín þá hugsa ég alltaf
þegar ég dett í það að ég geti feng-
ið mér smá. En eftir tíu, fimmtán,
átján skipti þá hefur mér aldrei
tekist þetta. Samt hugsa ég þetta
í skipti sautján og átján. Ég er bú-
inn að hlaupa á þennan vegg átján
sinnum. Átján sinnum sko, en
samt alltaf jafn öruggur og fyrst
þegar ég klúðraði þessu. Það sýnir
hvað þetta er sjúkt.
Ef maður er ekki alltaf að gera
eitthvað til þess að viðhalda
þessari edrúmennsku, fara á
fundi, vera með edrú fólki þá togar
þetta í mann. Ég þarf stöðugt að
vera að skoða sjálfan mig. Það er
ekkert hægt að fara bara í meðferð
og gleyma því svo að hugsa um
sjálfan sig og halda bara áfram,
þetta er stöðug ræktun.“ n
Hægt verður að horfa á ítar-
legt viðtal við Reyni á DV sjón-
varp ásamt viðtali við Val-
gerði Á. Rúnarsdóttur, forstjóra
Sjúkrahússins Vogs.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
„Síðasta meistarastykki
Mankells ... Afburðagóð
og grípandi saga.“
V E R D E N S G A N G
Metsölulisti
Eymundsson
Heildarlisti
1.
2
6
.9
.–2
.10
.2
0
18
„Ég hélt að
það væri
míkrófónn inni í
hendinni á mér og
var búinn að skera
mig allan