Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Síða 35
Jólahlaðborð 5. október 2018 KYNNINGARBLAÐ
MÖNDLUGRAUTURINN – JÓLAHLAÐBORÐ MESSANS:
Bókaðu dýrlega skemmtun í
desember
Messinn Granda er afar vinsæll og rómaður sjáv-arréttastaður að Granda-
garði 8. Messinn Granda tekur nú
í fyrsta skipti þátt í jólahlaðborða-
vertíðinni og hefur skipulagt dag-
skrá sem fellur afar vel í kramið því
þegar er búið að selja vel af sætum
á alls sjö jólahlaðborðskvöld sem
haldin verða í desember. Þau verða
föstudags- og laugardagskvöldin
7.–8. desember og 14.–15. desem-
ber og 20., 21. og 22. desember,
sem eru fimmtudags-, föstudags-
og laugardagskvöld.
Það verður mikið um dýrðir
bæði í skemmtun og mat á þess-
um kvöldum. Veislustjórar eru þau
Saga Garðarsdóttir og Dóri DNA
sem skemmta með uppistandi
og halda matargestum við efnið.
Söngkonan Sigríður Thorlacius
kemur fram, tónlistarmennirnir
Valdimar Guðmundsson og Örn
Eldjárn koma fram á tveimur kvöld-
um og þeir Sóli Hólm og Prins Póló
verða hvor með sitt kvöldið. Hljóm-
sveitin GÓSS kemur síðan fram á
síðasta kvöldinu en hana skipa þau
Sigríður Thorlacius, Sigurður Guð-
mundsson og Guðmundur Óskar
Guðmundsson.
„Þó að við séum sjávarrétta-
staður þá verður auðvitað áhersla
á þennan hefðbundna jólahlað-
borðsmat en við ætlum samt líka
að færa fiskmeti í jólabúning og
bjóða til dæmis upp á jólagellur.
Síðan verða líka kalkúnabringur,
lambalæri, hangikjöt, svínahryggur
og veganréttir,“ segir Sandra Barilli
hjá Messanum.
Meðal annarra krása er jólasíld,
sinnepssíld, reyktur lax og taðreykt
hangikjöt.
Sem fyrr segir hafa viðbrögðin
við Möndlugrautnum verið afar
góð þó að varla sé búið að tilkynna
um viðburðinn og því eins gott að
panta snemma ef fólk ætlar að fá
pláss. „Þetta hentar vel smærri
fyrirtækjum og vinahópum en við
tökum um 120 manns í sæti,“ segir
Sandra.
Sandra segir að það sé frábær
stemning í hafnarhverfinu þar sem
Messinn hefur átt svo góðu gengi
að fagna. Það er frábær stemning
hér við höfnina, það er svo gaman
að sjá alla nýju staðina spretta upp
hér á meðan grónu staðirnir halda
áfram að blómstra,“ segir Sandra.
Til að panta í Möndlugrautinn
– Jólahlaðborð Messans er best
að senda tölvupóst á netfangið
grandi@messinn.com eða hringja í
síma 562-1515.