Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Side 35
Jólahlaðborð 5. október 2018 KYNNINGARBLAÐ MÖNDLUGRAUTURINN – JÓLAHLAÐBORÐ MESSANS: Bókaðu dýrlega skemmtun í desember Messinn Granda er afar vinsæll og rómaður sjáv-arréttastaður að Granda- garði 8. Messinn Granda tekur nú í fyrsta skipti þátt í jólahlaðborða- vertíðinni og hefur skipulagt dag- skrá sem fellur afar vel í kramið því þegar er búið að selja vel af sætum á alls sjö jólahlaðborðskvöld sem haldin verða í desember. Þau verða föstudags- og laugardagskvöldin 7.–8. desember og 14.–15. desem- ber og 20., 21. og 22. desember, sem eru fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld. Það verður mikið um dýrðir bæði í skemmtun og mat á þess- um kvöldum. Veislustjórar eru þau Saga Garðarsdóttir og Dóri DNA sem skemmta með uppistandi og halda matargestum við efnið. Söngkonan Sigríður Thorlacius kemur fram, tónlistarmennirnir Valdimar Guðmundsson og Örn Eldjárn koma fram á tveimur kvöld- um og þeir Sóli Hólm og Prins Póló verða hvor með sitt kvöldið. Hljóm- sveitin GÓSS kemur síðan fram á síðasta kvöldinu en hana skipa þau Sigríður Thorlacius, Sigurður Guð- mundsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson. „Þó að við séum sjávarrétta- staður þá verður auðvitað áhersla á þennan hefðbundna jólahlað- borðsmat en við ætlum samt líka að færa fiskmeti í jólabúning og bjóða til dæmis upp á jólagellur. Síðan verða líka kalkúnabringur, lambalæri, hangikjöt, svínahryggur og veganréttir,“ segir Sandra Barilli hjá Messanum. Meðal annarra krása er jólasíld, sinnepssíld, reyktur lax og taðreykt hangikjöt. Sem fyrr segir hafa viðbrögðin við Möndlugrautnum verið afar góð þó að varla sé búið að tilkynna um viðburðinn og því eins gott að panta snemma ef fólk ætlar að fá pláss. „Þetta hentar vel smærri fyrirtækjum og vinahópum en við tökum um 120 manns í sæti,“ segir Sandra. Sandra segir að það sé frábær stemning í hafnarhverfinu þar sem Messinn hefur átt svo góðu gengi að fagna. Það er frábær stemning hér við höfnina, það er svo gaman að sjá alla nýju staðina spretta upp hér á meðan grónu staðirnir halda áfram að blómstra,“ segir Sandra. Til að panta í Möndlugrautinn – Jólahlaðborð Messans er best að senda tölvupóst á netfangið grandi@messinn.com eða hringja í síma 562-1515.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.