Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Page 49
KYNNING Öll almenn garðvinna Hellulagnir, Þökulagnir, Jarðvegs- skipti, Beðahreinsun, Trjáfellingar, Trjáklippingar og margt fleira. Austurkór 63, Kópavogi Sími: 859 7090 facebook.com/gardakop gardakop@gmail.com Lindarfiskur er lítið fjöl-skyldufyrirtæki staðsett í Meðallandinu rétt austan við Vík. „Móðir mín er frá þessari jörð og er stað- urinn algerlega einangraður. Aðalverðmætin á jörðinni er allt þetta tæra lindarvatn sem streymir hér beint úr eldhrauninu og því er stað- urinn fullkominn fyrir bleikju- eldi,” segir Drífa Bjarnadóttir, einn eigandi Lindarfisks. „Við fjölskyldan eigum og rekum Lindarfisk saman. Það eru ég og maðurinn minn, Árni Jóhannsson, systir mín, Sig- rún Bjarnadóttir, og foreldrar okkar, þau Helga Ólafsdóttir og Bjarni Jón Finnsson,” segir Drífa. Alger sjálfbærni Fyrstu bleikjuhrognin voru tekin hjá fyrirtækinu árið 2011 og síðan þá hefur Lindarfiski svo sannarlega vaxið fiskur um hrygg. „Við stefnum að algerri sjálfbærni og gerum því allt sjálf. Nýlega feng- um við okkur svín sem éta nánast allan afskurðinn af bleikjunum og afgangur- inn er svo notaður í áburð. Fiskinn vinnum við alfarið á svæðinu. Það hefur gengið hægt en örugglega að koma fyrirtækinu á þann stað sem það er í dag og munum við von bráðar selja vörur okkar í stórmarkaði. Við höfum með- al annars hannað neytenda- umbúðir sem eru svartar og nær ógegnsæjar til þess að stuðla að ferskari og betri vöru. Að auki höfum við hugs- að okkur að fara í útflutning á eldisbleikju, enda erum við með ótrúlega ferska vöru í höndunum,” segir Drífa. Tærasta vatnið, ferskasti fiskurinn „Við leggjum mjög mikið upp úr ferskleika, það er eitthvað sem við getum bara alls ekki slegið af hérna hjá Lindar- fiski. Hrognin fáum við frá kynbótastöðinni á Hólum í Hjaltadal sem framleiðir fyrsta flokks hrogn. Þau ölum við svo hér í Meðallandinu í kerjum og svokölluðum lengdarstraumsrennum. Hér rennur ferskt og tært vatn beint úr lindaruppsprettum og fiskurinn er eins ferskur og getur orðið,” segir Drífa. Hafðu samband „Við erum aðallega að selja bleikju til veitingastaða sem undantekningalaust lofa bleikjuna okkar í hástert,” segir Drífa. Enn sem komið er selur Lindarfiskur ekki vörur í stórmörkuðum en til þess að versla beint við Lindarfisk er hægt að hringja í Drífu í síma 663-4528 eða senda henni netpóst á drifa@lindarfiskur. com. Nánari upplýsingar má nálgast á Lindarfiskur.com eða Facebook: Lindarfiskur. Einnig heldur Lindarfiskur úti síðu á Instagram : lindar- fiskur, sem er stórskemmti- legt að fylgjast með. LINDARFISKUR : Ferskasti fiskurinn á landinu „Meðallendið er upp- eldisstaður mömmu,“ segir Drífa. Ferskur fiskur úr tærri lind. Það elska allir bleikjuna frá Lindarfiski.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.