Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Blaðsíða 49
KYNNING
Öll almenn
garðvinna
Hellulagnir, Þökulagnir, Jarðvegs-
skipti, Beðahreinsun, Trjáfellingar,
Trjáklippingar og margt fleira.
Austurkór 63, Kópavogi
Sími: 859 7090
facebook.com/gardakop
gardakop@gmail.com
Lindarfiskur er lítið fjöl-skyldufyrirtæki staðsett í Meðallandinu rétt
austan við Vík. „Móðir mín er
frá þessari jörð og er stað-
urinn algerlega einangraður.
Aðalverðmætin á jörðinni er
allt þetta tæra lindarvatn
sem streymir hér beint úr
eldhrauninu og því er stað-
urinn fullkominn fyrir bleikju-
eldi,” segir Drífa Bjarnadóttir,
einn eigandi Lindarfisks. „Við
fjölskyldan eigum og rekum
Lindarfisk saman. Það eru
ég og maðurinn minn, Árni
Jóhannsson, systir mín, Sig-
rún Bjarnadóttir, og foreldrar
okkar, þau Helga Ólafsdóttir
og Bjarni Jón Finnsson,” segir
Drífa.
Alger sjálfbærni
Fyrstu bleikjuhrognin voru
tekin hjá fyrirtækinu árið 2011
og síðan þá hefur Lindarfiski
svo sannarlega vaxið fiskur
um hrygg. „Við stefnum að
algerri sjálfbærni og gerum
því allt sjálf. Nýlega feng-
um við okkur svín sem éta
nánast allan afskurðinn af
bleikjunum og afgangur-
inn er svo notaður í áburð.
Fiskinn vinnum við alfarið á
svæðinu. Það hefur gengið
hægt en örugglega að koma
fyrirtækinu á þann stað sem
það er í dag og munum við
von bráðar selja vörur okkar í
stórmarkaði. Við höfum með-
al annars hannað neytenda-
umbúðir sem eru svartar og
nær ógegnsæjar til þess að
stuðla að ferskari og betri
vöru. Að auki höfum við hugs-
að okkur að fara í útflutning
á eldisbleikju, enda erum við
með ótrúlega ferska vöru í
höndunum,” segir Drífa.
Tærasta vatnið, ferskasti
fiskurinn
„Við leggjum mjög mikið upp
úr ferskleika, það er eitthvað
sem við getum bara alls ekki
slegið af hérna hjá Lindar-
fiski. Hrognin fáum við frá
kynbótastöðinni á Hólum
í Hjaltadal sem framleiðir
fyrsta flokks hrogn. Þau ölum
við svo hér í Meðallandinu
í kerjum og svokölluðum
lengdarstraumsrennum. Hér
rennur ferskt og tært vatn
beint úr lindaruppsprettum
og fiskurinn er eins ferskur og
getur orðið,” segir Drífa.
Hafðu samband
„Við erum aðallega að selja
bleikju til veitingastaða sem
undantekningalaust lofa
bleikjuna okkar í hástert,”
segir Drífa. Enn sem komið er
selur Lindarfiskur ekki vörur í
stórmörkuðum en til þess að
versla beint við Lindarfisk er
hægt að hringja í Drífu í síma
663-4528 eða senda henni
netpóst á drifa@lindarfiskur.
com.
Nánari upplýsingar má
nálgast á Lindarfiskur.com
eða Facebook: Lindarfiskur.
Einnig heldur Lindarfiskur
úti síðu á Instagram : lindar-
fiskur, sem er stórskemmti-
legt að fylgjast með.
LINDARFISKUR :
Ferskasti fiskurinn á landinu
„Meðallendið er upp-
eldisstaður mömmu,“
segir Drífa.
Ferskur fiskur úr tærri lind.
Það elska allir bleikjuna frá
Lindarfiski.