Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Síða 52
52 FÓLK - VIÐTAL 5. oktober 2018 M ér finnst eins og Ísland sé eini staðurinn í heimin- um þar sem fólk og nátt- úra eru ekki í kappi um tilverurétt,“ segir bandaríska leik- konan Shailene Woodley, en hún er heiðursgestur og dómari á Alþjóð- legri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Shailene hefur farið víða og fór nýlega með burðarhlutverk í nýjustu kvikmynd Baltasar Kor- máks, Adrift. Hún er einnig þekkt fyrir leik sinn í þáttunum Big Little Lies og Divergert-kvikmyndun- um ásamt The Fault in Our Stars og The Descendants, en fyrir þá síðastnefndu var hún tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta leik- kona í aukahlutverki. Blaðamaður DV settist niður með leikkonunni og ræddi við hana um nýfundn- ar lexíur í faginu, hryllingsmyndir, Baltasar og – vitaskuld – litla Ísland. „Þetta land hefur þetta jafnvægi sem sjaldgæft, ef ekki ómögulegt, er að finna annars staðar í heiminum. Ég gæti haft rangt fyrir mér, því ég þekki ekki til stjórnmálanna hérna, en sem utanaðkomandi finnst mér náttúran algjörlega fá að njóta sín,“ segir Shailene. „Þetta gerir mig bæði mjög spennta fyrir því að kynnast meira af Íslandi en um leið örlítið sorgmædda í garð restarinn- ar af heiminum.“ Hlutleysi mikilvægast Shailene hefur aðeins einu sinni áður komið til landsins en tekur fram að fyrri heimsókn hennar hafi verið í styttri kantinum. Nú er hún stödd hér til þess að horfa á kvik- myndir frá öllum heimshornum og njóta dvalarinnar eins og mögu- legt er. Hún kveðst ekki hafa lagst í neina rannsóknarvinnu vegna þeirra kvikmynda sem hún mun dæma því hún vilji njóta hvers verks og horfa með hlutlausum augum. „Að vera í dómnefnd gefur manni tækifæri til þess að fylgj- ast með ýmiss konar kvikmynda- gerðarfólki og leikurum sem eru að skapa ótrúleg og heillandi verk sem eiga annars auðvelt með að týn- ast úti í hinum stærri heimi. Þess vegna er ég mjög þakklát fyrir að fá að kynnast svona mörgum alþjóða- verkum og listamönnum,“ segir hún. Leikkonan tekur fram að hún hafi enn ekki horft á nein- ar íslenskar kvikmyndir fyrir utan þessar sem Baltasar hefur gert en segist almennt vera mikil alæta á kvikmyndir. Hins vegar bætir hún við að ef einhver geiri kvikmynda- gerðar slái á veikan blett, sé það hrollvekjan. „Ég sá margar hrollvekjur þegar ég var yngri og þær voru lífreynsla fyrir mig. Yfirleitt voru þetta myndir sem eru ekki taldar sérlega drunga- legar, en ég á sérlega erfitt með hryllingsmyndir, því ég get verið mjög ímyndunarveik og hrollvekj- ur geta átt það til að setja hugann alveg á flug. Ef eitthvað slæmt ger- ist í þannig mynd og ekki síður að kvöldi til, þá er ég alveg sannfærð um að hið sama muni koma fyrir mig. Þannig virka ég. Það er auð- veldara fyrir mig að fyllast skelfingu út frá eigin hugsunum en hitt.“ Samvinnufúsari en flestir Kvikmyndin Adrift var sýnd á RIFF í tilefni heimsóknar leikkonunnar, en fyrir þá sem ekki vita er um að ræða sannsögulega mynd um Tami Oldham og unnusta hennar, Richard Sharp (leikinn af Hunger Games-leikaranum Sam Claflin). Saman ætluðu þau að sigla frá Tahítí til San Diego árið 1983 en á miðri leið lentu þau í fellibylnum Raymond. Þegar óveðrið var gengið yfir sáust miklar skemmdir á bátn- um og var unnustinn horfinn. Shailene fer fögrum orðum um Baltasar Kormák (eða „Balt“, eins og leikkonan kallar hann) og tek- ur fram að hún hafi verið mikill að- dáandi hans, bæði persónulega og faglega, meðan á tökum á Adrift stóð. „Hann Balt er æðislegur. Ég myndi 100 prósent vinna með hon- um aftur, sama hvert verkefnið væri,“ segir leikkonan. „Það munaði svo miklu að hafa einhvern nálægt sem er sjálfur svo tengdur náttúrunni og skilur hvað þarf til þess að ná ákveðnum stílbrögðum. Hann gaf líka bæði leikurum sínum og tökuliði mikið valfrelsi og leyfði þeim að vera með í sköpunarferlinu. Að geta deilt list- sköpuninni með öðrum og vinna náið með fólki er hæfileiki sem, í hreinskilni sagt, mér þykir ekki margir búa yfir. Hann er samvinnu- þýðari en margir, ef ekki flestir, sem ég hef unnið með og ótrúlega sjálfsöruggur í sínu fagi. Í minni reynslu lendir maður oft í því að þú annaðhvort skyggir á leikstjór- ann eða þeir skyggja á þig og það er svakalega mikill léttir að geta unnið með leikstjóra sem veit alveg hvað hann vill, sem er ófeiminn með sína sýn á verkið en er samt sem áður opinn fyrir framlögum eða breytingum ef það smellpassar fyrir verkið eða báða einstaklinga.“ Fyrirgefning og ofsaþreyta allsráðandi Shailene segir myndina oft vera talda hamfaramynd vegna misskilnings; hún sé sögð einblína á konu í baráttu við náttúruöflin. Leikkonan lítur hins vegar þveröfugt á framsetninguna og sér myndina sem sögu af konu sem vinnur með náttúruöflunum. „Ástæðan fyrir því að Tami lifði af, að mínu mati, er sú að hún var reiðubúin til þess að fyrirgefa hafinu á jafn skömmum tíma og það tók hafið að hrifsa allt frá henni og særa hana. Í raun og veru veiddi Tami aldrei neinn fisk, einmitt vegna þess að hún vildi ekki gera hafinu meiri skaða,“ segir hún. „Sagan sýnir að hún varð að finna þessa fyrirgefningu í sér til þess að komast lífs af og fyrir mér er fyrirgefning eitt sterkasta afl lífs- ins og lykillinn að því að finna ham- ingju, að taka sjálfan sig í sátt. Það að geta fyrirgefið einhverju sem tók svo margt frá henni finnst mér skipta ótrúlega miklu.“ Aðspurð hvað hafi verið mest krefjandi við tökurnar segir hún ofsaþreytu hafa átt stóran þátt í að- stæðum. „Sumir tökudagarnir voru hátt í fjórtán klukkutíma langir, sem hljómar kannski ekkert gríðarlega mikið, en þegar þú bætir opnu hafi við þitt vinnuumhverfi getur það tekið á. Í ofanálag þurftum við Sam að léttast talsvert fyrir okkar hlut- verk. Að geta lítið sem ekkert borð- að og þurfa að glíma við náttúruöfl er gríðarlega krefjandi, sérstaklega þar sem við þurftum að nota líkama okkar mikið og sáum um mest- an áhættuleikinn okkar sjálf,“ seg- ir hún en bætir við að það sé lítið hægt að setja út á neitt. „Ofsaþreytan var svo sannarlega erfið, en mér finnst erfitt að kvarta undan vinnunni minni þegar ég fékk tækifæri til þess að horfa á sól- arupprásina og sólsetrið á hverjum degi. Ef ég var komin á einhvern stað þar sem ég fann fyrir slæmri tilfinningu andlega, þá reyndi ég að snúa henni við og hugsa um eitt- hvað jákvæðara.“ Aftur á byrjunarreit Shailene hefur verið leikkona frá fimm ára aldri en segist aldrei hafa lært jafnmikið á fagið og á seinustu misserum. Ástæðuna fyrir því seg- ir hún vara stærstu fyrirmynd sína: Meryl Streep. Þær Shailene unnu saman við aðra seríu af Big Little Lies, en þættirnir hafa hlotið feiki- góðar viðtökur og Shailene hélt ekki vatni yfir samstarfinu við Óskars- leikkonuna. „Hún er nú Meryl Streep af ástæðu!“ segir Shailene sæl. „Það er ekki til meiri meistari og ég skildi við upplifunina á þess- um þáttum uppfull af innblæstri en samt leið mér eins og ég ætti svo mikið eftir ólært. Ég á mikið eft- ir að þroskast og þróa mig áfram og henni tókst að efla mig á svo marga vegu. Eftir að hafa unnið með henni fannst mér ég vera aftur komin á byrjunarreit í leiklistinni. „Ég kann í rauninni ekki neitt,“ hugsaði ég og ef ég taldi mig kunna eitthvað, þá hafði ég rangt fyrir mér. En eins furðulega og það hljómar, þá er ákveðin spenna í því. Að nota þennan byrjunarreit og fá þessa til- finningu sem ég hef aldrei upplif- að. Þegar einhver í sambærilegri stöðu og ég hefur upplifað mikla velgengni, þá verður ákveðin að- ferðafræði og vinnurútína til úr því hvernig maður nálgast hlutverk og þess háttar. Að strípa það allt saman burt er einmitt það sem ég þurfti.“ n Fyrirgefning er lykillinn að hamingjunni n Jákvæðnin bjargaði henni úr erfiðleikunum n Shailene Woodley á Íslandi vegna RIFF Tómas Valgeirsson tomas@dv.is „Ég myndi 100 prósent vinna með Balta aftur“ Sam Claflin and Shailene Woodley star in ADRIFT Courtesy of STXfilms Myndir : Hanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.