Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2018, Qupperneq 52
52 FÓLK - VIÐTAL 5. oktober 2018
M
ér finnst eins og Ísland sé
eini staðurinn í heimin-
um þar sem fólk og nátt-
úra eru ekki í kappi um
tilverurétt,“ segir bandaríska leik-
konan Shailene Woodley, en hún er
heiðursgestur og dómari á Alþjóð-
legri kvikmyndahátíð í Reykjavík.
Shailene hefur farið víða og
fór nýlega með burðarhlutverk í
nýjustu kvikmynd Baltasar Kor-
máks, Adrift. Hún er einnig þekkt
fyrir leik sinn í þáttunum Big Little
Lies og Divergert-kvikmyndun-
um ásamt The Fault in Our Stars
og The Descendants, en fyrir þá
síðastnefndu var hún tilnefnd til
Óskarsverðlauna sem besta leik-
kona í aukahlutverki. Blaðamaður
DV settist niður með leikkonunni
og ræddi við hana um nýfundn-
ar lexíur í faginu, hryllingsmyndir,
Baltasar og – vitaskuld – litla Ísland.
„Þetta land hefur þetta jafnvægi
sem sjaldgæft, ef ekki ómögulegt, er
að finna annars staðar í heiminum.
Ég gæti haft rangt fyrir mér, því ég
þekki ekki til stjórnmálanna hérna,
en sem utanaðkomandi finnst mér
náttúran algjörlega fá að njóta sín,“
segir Shailene. „Þetta gerir mig
bæði mjög spennta fyrir því að
kynnast meira af Íslandi en um leið
örlítið sorgmædda í garð restarinn-
ar af heiminum.“
Hlutleysi mikilvægast
Shailene hefur aðeins einu sinni
áður komið til landsins en tekur
fram að fyrri heimsókn hennar hafi
verið í styttri kantinum. Nú er hún
stödd hér til þess að horfa á kvik-
myndir frá öllum heimshornum
og njóta dvalarinnar eins og mögu-
legt er. Hún kveðst ekki hafa lagst
í neina rannsóknarvinnu vegna
þeirra kvikmynda sem hún mun
dæma því hún vilji njóta hvers verks
og horfa með hlutlausum augum.
„Að vera í dómnefnd gefur
manni tækifæri til þess að fylgj-
ast með ýmiss konar kvikmynda-
gerðarfólki og leikurum sem eru að
skapa ótrúleg og heillandi verk sem
eiga annars auðvelt með að týn-
ast úti í hinum stærri heimi. Þess
vegna er ég mjög þakklát fyrir að fá
að kynnast svona mörgum alþjóða-
verkum og listamönnum,“ segir
hún.
Leikkonan tekur fram að
hún hafi enn ekki horft á nein-
ar íslenskar kvikmyndir fyrir utan
þessar sem Baltasar hefur gert en
segist almennt vera mikil alæta á
kvikmyndir. Hins vegar bætir hún
við að ef einhver geiri kvikmynda-
gerðar slái á veikan blett, sé það
hrollvekjan.
„Ég sá margar hrollvekjur þegar
ég var yngri og þær voru lífreynsla
fyrir mig. Yfirleitt voru þetta myndir
sem eru ekki taldar sérlega drunga-
legar, en ég á sérlega erfitt með
hryllingsmyndir, því ég get verið
mjög ímyndunarveik og hrollvekj-
ur geta átt það til að setja hugann
alveg á flug. Ef eitthvað slæmt ger-
ist í þannig mynd og ekki síður að
kvöldi til, þá er ég alveg sannfærð
um að hið sama muni koma fyrir
mig. Þannig virka ég. Það er auð-
veldara fyrir mig að fyllast skelfingu
út frá eigin hugsunum en hitt.“
Samvinnufúsari en flestir
Kvikmyndin Adrift var sýnd á RIFF
í tilefni heimsóknar leikkonunnar,
en fyrir þá sem ekki vita er um
að ræða sannsögulega mynd um
Tami Oldham og unnusta hennar,
Richard Sharp (leikinn af Hunger
Games-leikaranum Sam Claflin).
Saman ætluðu þau að sigla frá
Tahítí til San Diego árið 1983 en á
miðri leið lentu þau í fellibylnum
Raymond. Þegar óveðrið var gengið
yfir sáust miklar skemmdir á bátn-
um og var unnustinn horfinn.
Shailene fer fögrum orðum um
Baltasar Kormák (eða „Balt“, eins
og leikkonan kallar hann) og tek-
ur fram að hún hafi verið mikill að-
dáandi hans, bæði persónulega og
faglega, meðan á tökum á Adrift
stóð. „Hann Balt er æðislegur. Ég
myndi 100 prósent vinna með hon-
um aftur, sama hvert verkefnið
væri,“ segir leikkonan.
„Það munaði svo miklu að hafa
einhvern nálægt sem er sjálfur
svo tengdur náttúrunni og skilur
hvað þarf til þess að ná ákveðnum
stílbrögðum. Hann gaf líka bæði
leikurum sínum og tökuliði mikið
valfrelsi og leyfði þeim að vera með
í sköpunarferlinu. Að geta deilt list-
sköpuninni með öðrum og vinna
náið með fólki er hæfileiki sem,
í hreinskilni sagt, mér þykir ekki
margir búa yfir. Hann er samvinnu-
þýðari en margir, ef ekki flestir,
sem ég hef unnið með og ótrúlega
sjálfsöruggur í sínu fagi. Í minni
reynslu lendir maður oft í því að
þú annaðhvort skyggir á leikstjór-
ann eða þeir skyggja á þig og það er
svakalega mikill léttir að geta unnið
með leikstjóra sem veit alveg hvað
hann vill, sem er ófeiminn með
sína sýn á verkið en er samt sem
áður opinn fyrir framlögum eða
breytingum ef það smellpassar fyrir
verkið eða báða einstaklinga.“
Fyrirgefning og ofsaþreyta
allsráðandi
Shailene segir myndina oft
vera talda hamfaramynd vegna
misskilnings; hún sé sögð einblína
á konu í baráttu við náttúruöflin.
Leikkonan lítur hins vegar þveröfugt
á framsetninguna og sér myndina
sem sögu af konu sem vinnur með
náttúruöflunum. „Ástæðan fyrir því
að Tami lifði af, að mínu mati, er
sú að hún var reiðubúin til þess að
fyrirgefa hafinu á jafn skömmum
tíma og það tók hafið að hrifsa allt
frá henni og særa hana. Í raun og
veru veiddi Tami aldrei neinn fisk,
einmitt vegna þess að hún vildi ekki
gera hafinu meiri skaða,“ segir hún.
„Sagan sýnir að hún varð að
finna þessa fyrirgefningu í sér til
þess að komast lífs af og fyrir mér
er fyrirgefning eitt sterkasta afl lífs-
ins og lykillinn að því að finna ham-
ingju, að taka sjálfan sig í sátt. Það
að geta fyrirgefið einhverju sem
tók svo margt frá henni finnst mér
skipta ótrúlega miklu.“
Aðspurð hvað hafi verið mest
krefjandi við tökurnar segir hún
ofsaþreytu hafa átt stóran þátt í að-
stæðum. „Sumir tökudagarnir voru
hátt í fjórtán klukkutíma langir, sem
hljómar kannski ekkert gríðarlega
mikið, en þegar þú bætir opnu hafi
við þitt vinnuumhverfi getur það
tekið á. Í ofanálag þurftum við Sam
að léttast talsvert fyrir okkar hlut-
verk. Að geta lítið sem ekkert borð-
að og þurfa að glíma við náttúruöfl
er gríðarlega krefjandi, sérstaklega
þar sem við þurftum að nota líkama
okkar mikið og sáum um mest-
an áhættuleikinn okkar sjálf,“ seg-
ir hún en bætir við að það sé lítið
hægt að setja út á neitt.
„Ofsaþreytan var svo sannarlega
erfið, en mér finnst erfitt að kvarta
undan vinnunni minni þegar ég
fékk tækifæri til þess að horfa á sól-
arupprásina og sólsetrið á hverjum
degi. Ef ég var komin á einhvern
stað þar sem ég fann fyrir slæmri
tilfinningu andlega, þá reyndi ég að
snúa henni við og hugsa um eitt-
hvað jákvæðara.“
Aftur á byrjunarreit
Shailene hefur verið leikkona frá
fimm ára aldri en segist aldrei hafa
lært jafnmikið á fagið og á seinustu
misserum. Ástæðuna fyrir því seg-
ir hún vara stærstu fyrirmynd sína:
Meryl Streep. Þær Shailene unnu
saman við aðra seríu af Big Little
Lies, en þættirnir hafa hlotið feiki-
góðar viðtökur og Shailene hélt ekki
vatni yfir samstarfinu við Óskars-
leikkonuna. „Hún er nú Meryl
Streep af ástæðu!“ segir Shailene
sæl.
„Það er ekki til meiri meistari
og ég skildi við upplifunina á þess-
um þáttum uppfull af innblæstri en
samt leið mér eins og ég ætti svo
mikið eftir ólært. Ég á mikið eft-
ir að þroskast og þróa mig áfram
og henni tókst að efla mig á svo
marga vegu. Eftir að hafa unnið
með henni fannst mér ég vera aftur
komin á byrjunarreit í leiklistinni.
„Ég kann í rauninni ekki neitt,“
hugsaði ég og ef ég taldi mig kunna
eitthvað, þá hafði ég rangt fyrir mér.
En eins furðulega og það hljómar,
þá er ákveðin spenna í því. Að nota
þennan byrjunarreit og fá þessa til-
finningu sem ég hef aldrei upplif-
að. Þegar einhver í sambærilegri
stöðu og ég hefur upplifað mikla
velgengni, þá verður ákveðin að-
ferðafræði og vinnurútína til úr því
hvernig maður nálgast hlutverk og
þess háttar. Að strípa það allt saman
burt er einmitt það sem ég þurfti.“ n
Fyrirgefning
er lykillinn að
hamingjunni
n Jákvæðnin bjargaði henni úr erfiðleikunum
n Shailene Woodley á Íslandi vegna RIFF
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is „Ég myndi
100 prósent
vinna með Balta
aftur“
Sam Claflin and Shailene Woodley star in ADRIFT
Courtesy of STXfilms
Myndir : Hanna