Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.2018, Page 72
Beint frá býli Helgarblað 1. júní 2018KYNNINGARBLAÐ
STRANDASKEL:
Hágæða ræktuð bláskel úr
Steingrímsfirði á Ströndum
Skelfiskræktun er umhverfis-væn atvinnugrein sem skilar af sér framúrskarandi og
lostætri afurð. ST2 á Drangsnesi
hefur síðustu rúmlega tíu árin
stundað skelfiskræktun í Stein-
grímsfirði á Ströndum, samhliða
annarri útgerð. Félagið er með tvö
fiskiskip, dragnótarbát og minni bát
og þessi skipakostur útgerðarinnar
er samnýttur í skelfiskræktunina.
Halldór Logi Friðgeirsson hefur
haft veg og vanda af skelfiskrækt-
uninni en ST2 er í eigu foreldra
hans. Síðar stofnuðu ST2, Fisk-
vinnslan Drangur og fleiri félög
Strandaskel til að sjá um vinnslu
og sölu á afurðum. Þessa dagana
siglir Halldór á bátnum Sigureyju
ST-22 og sækir skelina. „Við köllum
þetta uppskeru fremur en veiðar
en það er þriggja ára ferli að rækta
skel,“ segir Halldór. Skelin sem hann
kemur með upp á land núna er því
þriggja ára gömul.
„Við erum með skelfiskvinnslu
hérna á staðnum og bjóðum upp
á ferska bláskel en einnig forsoðna
og frysta. Forsoðin og fryst afurð
frá okkur er til sölu í verslunum
Bónus en ferskur skelfiskur frá
okkur er á flestum betri veitinga-
húsum í Reykjavík,“ segir Halldór. Á
markaðnum og veitingahúsunum er
afurðin titluð Strandaskel frá Dóra
á Drangsnesi. Veitingastaðir eru
stoltir af að bjóða upp á þetta lost-
æti enda er Strandaskelin rómuð:
„Þetta er mjög góð skel með
afskaplega mikla holdfyllingu, það
hefur hvergi annars staðar mælst
eins mikil holdfylling,“ segir Halldór.
Nánari upplýsingar eru á vefsíð-
unni drangur.is og á Facebook-síð-
unni Strandaskel. Einnig má senda
fyrirspurnir á netfangið drangur@
drangsnes.is og símanúmer eru
451-3239, 898-3239 og 899-
5568.