Litli Bergþór - 01.07.2017, Síða 11
Litli-Bergþór 11
Húsin í Laugarási
Páll M. Skúlason:
Það hægði heldur á nýbyggingum í Laugarási á áttunda áratugnum. Það var byggt nýtt hús
fyrir lækni, í Launrétt, í upphafi þessa áratugar og í lok hans hófst uppbygging á svæði vestur af
þjóðveginum í Vesturbyggð og nánast á sama tíma einnig í Austurbyggð, austast í þorpinu. Þetta
ráðslag var nokkuð gagnrýnt, ekki síst vegna þess, að það kostaði lagnir á bæði svæðin, sem
auðvitað urðu að taka mið af frekari uppbyggingu. Skýringin á þessu mun hafa verið sú að reynt
var að verða við eindregnum óskum þeirra sem vildu byggja.
LAUNRÉTT 3 1971
Þetta hús var byggt 1971 sem læknisbústaður, enda þörf fyrir
annan lækni í héraðinu orðin brýn. Til starfsins var ráðinn árið
eftir, Guðmundur Bergsteinn Jóhannsson (f. 04.02.1942, d.
29.05.2005). Kona hans var Jósefína Friðriksdóttir Hansen (f.
05.05.1942), kennari. Þau bjuggu í húsinu til 1975, en þá héldu
þau til Svíþjóðar þar sem Guðmundur fór í framhaldsnám.
Frá 1975 til 1977 gengdi Kristján Steinsson (f. 17.02.1947)
embættinu, en kona hans var Sesselja Snævarr (f. 14.11.1947).
Að loknu framhaldsnámi Guðmundar,
komu þau Jósefína aftur í Laugarás og
voru hér til 1983, en þá fluttu þau á
Selfoss.
Guðmundur og Jósefína eignuðust 2
börn: Sigurð Hrafn (f. 13.04.1963, d.
23.03.2002) og Helgu Salbjörgu (f.
28.07.1967), en hún býr í Kópavogi.
Frá 1983 – 2013 bjuggu þau Pétur
Zóphónías Skarphéðinsson
(26.03.1946), læknir og Sigríður
(Sísa) Guttormsdóttir (f. 19.11.1947),
kennari, í húsinu. 2013 fluttu þau Pétur og Sísa í hús sem þau byggðu í Langholti 3 í Laugarási.
Pétur lét af störfum í árslok 2016 og þá fluttu þau hjón í Kópavog. Börn þeirra eru tvö: Skarphéðinn
(01.06.1974), sem býr í Kópavogi og Inga Dóra (f. 08.01.1980), sem býr í Reykjavík.
Frá 2013 hefur ekki verið föst búseta í Launrétt 3.
Launrétt 3
Jósefína og Guðmundur.
Eftirtaldir aðilar styrkja útgáfu Litla-Bergþórs
og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir:
Espiflöt ehf, Reykholti s. 486 8955
Fóðurblandan hf. Korngörðum 12,Reykjavík, s. 570 9800
Friðheimar, Reykholti s. 486 8815
Garðyrkjustöðin Kvistar ehf, Reykholti s. 694 7074
Gljásteinn ehf, Myrkholti s. 486 8757