Litli Bergþór - 01.07.2017, Qupperneq 23

Litli Bergþór - 01.07.2017, Qupperneq 23
Litli-Bergþór 23 Krummaklettur Fréttir frá Krummakletti (eldri deild) Starfið á Krummakletti í vetur hefur verið fjölbreytt og skemmti- legt. Þar sem við vinnum eftir hugmyndafræði Reggio Emilía erum við með þema á hverju starfsári. Þemað þetta árið var sveitin mín og náttúran í kring. Við lögðum áherslu á dýrin sem lifa í næsta nágrenni við okkur og fléttuðum svo allt starfið í kringum þemað t.d. með myndlist, tónlist, læsi, útikennslu og fleiru. Í tónlist tókum við fyrir Dýrin í Hálsaskógi, börnin lærðu lögin úr leikritinu og æfðu svo hluta úr því, sem þau sýndu 1.- 4. bekk. Á þriðjudögum og fimmtudögum hafa börnin verið í seli með 1.-4. bekk. Í selinu leika börn saman frá 4 ára aldri til 10 ára. Yngri börnin hafa lært mikið af þeim eldri og mun þetta stuðla að vellíðan og öryggi þeirra þegar þau seinna meir flytjast á milli skólastiga. Börnin læra mest í gegnum leiki og við notum þá sem kennsluaðferð. Leikur eykur málskilning, vitsmunaþroska, tilfinn- ingaþroska og hreyfingu. Í gegnum leik læra börnin um mannlega hegðun með því að leika og herma eftir því sem þau sjá í umhverfinu bæði úr sjónvarpi og með því að herma eftir hegðun okkar sem næst þeim standa. Börn æfa rökhugsun í leik og í samleik með öðrum börnum tala þau saman og læra hvert af öðru hvernig á að haga sér. Guðbjörg Þura Gunnarsdóttir deildarstjóri. Hópur úr Selinu Fremst: Benjamín Óli, Saga Natalía, - Dísa, Ignacy, Adda Sóley, Íris Anna, - Ásdís Erla, Róbert, Alexandra, Vigdís Fjóla, - Katrín María, Anna Lára, Katla, Ella Sóley, - Unnsteinn og Emelía aftast. Dröfn Þorvaldsdóttir kennir börnunum um fugla. Elstu börn leikskólans í útikennslu: Katrín María Óskarsdóttir, Ella Sóley Gretarsdóttir, Benjamín Óli Andrésson, Katla Helgadóttir, Saga Natalía Sigurðardóttir, Vigdís Þórarinsdóttir og Alexandra Ýr Birkisdóttir. Bakarinn (Benjamín Óli Andrésson ) og Hérastubbur bakari (Katla Helgadóttir). Aðrir leikarar fylgjast með.

x

Litli Bergþór

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.