Litli Bergþór - 01.07.2017, Page 40
40 Litli-Bergþór
Blaðamaður Litla-Bergþórs er mættur í
Kópavoginn, síðla vetrar 2017. Tilefnið er að
ræða við þau Pétur Skarphéðinsson fyrrverandi
heilsugæslulækni í Laugarási og konu hans
Sigríði Guttormsdóttur kennara, um árin þeirra
í Laugarási, ættir, uppruna og fleira. Þau hjónin
hafa nú komið sér vel fyrir í fallegri blokkaríbúð
í vesturbæ Kópavogs. Áður bjuggu þau í þrjátíu
ár í Launrétt 3, í öðrum læknisbústaðnum í
Laugarási og síðustu þrjú árin í húsi sem þau
byggðu í Langholti, á sumarbústaðarlóð í útjaðri
Laugaráss, norðan við þorpið.
Læknir og kennari
í Laugarási
í aldarþriðjung
langa og góða þjónustu þeirra mikils. Eins hlutu
þeir fyrir nokkrum árum „Uppsveitabrosið“,
sérstaka viðurkenningu íbúanna, fyrir góð störf í
þágu samfélagsins.
Að margra mati var það kostur hversu ólíkir
læknar þeir voru. Gylfi rólegur og alvarlegur,
Pétur alltaf með spaugsyrði á vör og til alls
líklegur. En báðir voru þeir frábærir læknar hvor
á sinn hátt. Ef mönnum líkaði ekki við annan
þeirra, fóru þeir bara til hins og allir sáttir. Að
mörgu öðru leyti voru þeir þó líkir, enda báðir
„hrútar“ eins og Sísa benti á, báðir skipulagðir
og lentu því ekki í árekstrum út af rugli eða
skipulagsleysi.
Pétur starfaði í Laugarási frá 1. júlí 1983 til
ársloka 2016 í rúmlega 33 ár og Gylfi frá 1.
október, 1984 til júlí 2016, í 32 ár. Tilviljun réði
því að þeir lentu saman á þessum stað, þótt þeir
hefðu þekkst lítillega áður í gegnum námið í
læknadeild og síðar í framhaldsnámi í Svíþjóð.
Geirþrúður Sighvatsdóttir:
Viðtal við hjónin Pétur Skarphéðinsson lækni og Sigríði Guttormsdóttur kennara
Sísa og Pétur á góðri stund.
Læknarnir Pétur Zóphónías Skarphéðinsson
og Gylfi Haraldsson eru goðsögn meðal
uppsveitunga, enda þjónuðu þeir íbúum uppsveita
Árnessýslu af einstakri alúð, samviskusemi og
samheldni í yfir þrjátíu ár, eða þar til þeir náðu
báðir sjötugs aldri árið 2016, og má það teljast
einstakt. Það eru ekki mörg byggðarlög á landinu,
sem hafa notið jafn mikils og stöðugs öryggis í
læknisþjónustu og þessar sveitir. Í kveðjuhófi
sem haldið var þeim til heiðurs 12. janúar 2017 í
Aratungu mátti sjá að íbúar læknishéraðsins mátu
Frá Kveðjuhófi læknanna Péturs og Gylfa þ. 12. janúar
2017. Á myndinni eru f.v. Herdís Gunnarsdóttir forstjóri
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi, Pétur, Gylfi og
Hjörtur Kristjánsson, framkvæmdastjóri lækninga HSu.