Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 22
22 7. desember 2018FRÉTTIR L ögreglumenn sem DV hef­ ur rætt við eru ósáttir við hvernig staðið er að fatamál­ um hjá stofnuninni. Ríkis­ lögreglustjóri á að sjá um að út­ vega embættunum allan vinnu­ og einkennis klæðnað en enginn samningur hefur verið um nokkurt skeið um hvar eigi að kaupa öll föt. Útboð sem haldið var í janúar gekk ekki upp nema að takmörkuðu leyti og reynt verður aftur á næsta ári. Stífar reglur eru um einkennis­ klæðnað lögreglumanna; hvaða föt skuli nota, hvenær og hvernig fatnaðurinn sé skráður. Þar sem samningur hefur ekki verið undir­ ritaður þurfa lögregluembættin sjálf að sjá um að panta klæðnað frá hinum og þessum birgjum. Fötin slitna og nýir lögreglu­ menn hefja störf. Er því ekki alltaf samræmi milli fatnaðar lögreglu­ manna milli landshluta. Segja þeir lögreglumenn sem DV hef­ ur rætt við að það sé eins og að reyna að komast yfir krúnudjásn drottningar að fá nýjar buxur eða skyrtu. Ástandið í fatamálunum sé hörmulegt sem stendur. Útboðið klúðraðist Í janúar síðastliðnum var gert út­ boð á lögreglufatnaði af hálfu Ríkis kaupa fyrir Ríkislögreglu­ stjóra. Útboðið hljóðaði upp á þrjá flokka og áttu gæði fatnaðarins að vega sextíu prósent og verð fjöru­ tíu prósent við mat hjá fata­ og búnaðarnefnd. Fimm aðilar buðu í verkið, Martex, Eyfeld, HISS, Northwear og Sjóklæðagerðin. Jónas Ingi Pétursson, fram­ kvæmdastjóri rekstrar hjá Ríkis­ lögreglustjóra, segir við DV að öll tilboðin hafi verið ógild í flokki tvö. Hins vegar hafi verið ákveðið að ganga að tilboði HISS vegna ein­ kennishúfa og annars vinnufatn­ aðar. „Ný útboðslýsing hefur verið í vinnslu og var send til umsagnar til Landssambands lögreglumanna og Lögreglustjórafélags Íslands. Félögin skiluðu sameiginlegum athugasemdum þann 12. nóvem­ ber síðastliðinn. Þess er vænst að fata­ og búnaðarnefnd Ríkislög­ reglustjóra, sem skipuð er full­ trúa Ríkislögreglustjóra, formanni Landssambands lögreglumanna og formanni Lögreglustjórafélags Íslands, yfirfari athugasemdirnar og feli Ríkiskaupum að annast út­ boðið á fundi sínum í næstu viku.“ Engin samræming Halldór Halldórsson, fjármála­ stjóri hjá Lögreglunni á höfuð­ borgarsvæðinu, segir að einkenn­ isfatnaður lögreglumanna hjá embættinu sé endurnýjaður eftir þörfum hverju sinni, fyrir hvern og einn starfsmann. „Lögreglan á höfuðborgar­ svæðinu er með lítinn birgðalager sem afgreitt er út af til lögreglu­ manna og pantað inn frá birgjum eftir lagerstöðu. Skipt er við birgja í samræmi við útboð á vegum Ríkis­ lögreglustjóra. Ef ekki er í gildi út­ boð þá er leitað tilboða og gerðar kannanir um verð og gæði.“ Halldór hafnar því að skortur hafi verið á fatnaði. Hann reiknar jafnframt með að þetta lagist á næsta ári og verði allur fatnaður þá keyptur samkvæmt útboði. Þá á að fara aftur í útboð vegna daglegs vinnufatnaðar. DV ræddi einnig við Hlyn Snorrason, yfirlögregluþjón hjá lögregluembættinu á Vestfjörðum. Hann segir að töluvert langt sé síð­ an embættið fékk síðast búninga frá Ríkislögreglustjóra og ástandið sé slæmt. Hann segir: „Við höfum verið að kaupa fatnað af ákveðnu fyrirtæki sem er að selja lögreglufatnað. Það er ákveðin reglugerð í gildi um hvernig þetta eigi að líta út sem við höldum okkur við. Svarti liturinn og fleira.“ Hann segir jafnframt að emb­ ættið sé ekki í samstarfi við önnur embætti varðandi samræmingu einkennisklæðnaðar. Hins vegar séu ekki margir birgjar sem geti útvegað klæðnaðinn. Vandamál í langan tíma Ástandið í fatamálunum er búið að vera slæmt í nokkurn tíma. Hafa lögreglumenn til dæmis þurft að deila fatnaði sín á milli. Lögreglu­ menn sem DV hefur rætt við eru á einu máli um að málið strandi á Ríkislögreglustjóra. Þar sé of mikið verið að hugsa um að spara og það bitni á starfinu. Lögreglufatnaður sé dýr en nauðsynlegt sé að hafa þessa hluti í lagi. Lágmarkskostnaður vinnufatnaðar fyrir lögreglumann var 173 þúsund krónur í fyrra. Há­ tíðarbúningurinn kostaði þá 207 þúsund krónur. Í janúar síðastliðnum, um það leyti sem útboðið var, greindi Vís­ ir frá því að nafnlaust bréf gengi á milli lögreglumanna. Í bréf­ inu var því haldið fram að útboð­ ið væri sérsniðið að fyrirtækinu 66° Norður. Þeir voru hins vegar ekki meðal þeirra sem skiluðu inn tilboði í janúar. Í bréfinu má skynja mikla kaldhæðni og óánægju með fatastefnu lögreglunnar í lengri tíma. Ekki hafi verið haft samráð við lögreglumenn hvað þetta varð­ ar. Í því stendur meðal annars: „Ég er ekki sérfræðingur í þess­ um málum en ég er búinn að eyða smá tíma í að skoða þetta útboð og mér þykir líklegast að við erum að fara fá sömu gömlu 66°N löggu­ buxurnar sem allir elska með ásaumuðum hnéhlífum og líkleg­ ast verður Combat skyrtan okkar undir vestinu gamla powerstrech peysan okkar með léttu efni und­ ir vestinu.“ Enn fremur: „Ég veit að maður á ekki að segja aldrei, alltaf og enginn en ég hugsa að ég geti fullyrt að ENGUM lögreglumanni langar ALDREI aftur að klæðast þeim fatnaði sem við höfum fengið úthlutað síðustu ár.“ n FÖSTUDAGINN 30. NÓV. OG 7. DESEMBER LAUGARDAGANA 1. OG 8. DESEMBER JÓLAHLAÐBORÐ Jólagleði á Ránni í Reykjanesbæ Eyfi sér um jólastemminguna BORÐAPANTANIR Í SÍMA: 852 2083 PANTANIR@RAIN.IS „Ef ekki er í gildi útboð þá er leitað tilboða og gerðar kannanir um verð og gæði Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Engin samræming í fatamálum lögreglunnar n Útboð í janúar klúðraðist n Lögreglumenn þurfa að deila fötum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.