Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 8
8 7. desember 2018FRÉTTIR
JÓLAGJÖFIN í ár?
við kynnum arc-tic Retro
Fyrir DÖMUR og HERRA
VERÐ AÐEINS:
29.900,-
Blíður og góður „bensíntittur“
sem getur aldrei setið kyrr
G
unnar Bragi Sveins-
son, þingmað-
ur Miðflokksins,
ákvað í vikunni að
taka sér launalaust frí frá
Alþingi eftir að Klausturs-
málið umdeilda komst í
hámæli. Þar sátu sex þing-
menn að sumbli og töl-
uðu afar illa um mann og
annan, eins og alþjóð veit.
En hver er Gunnar Bragi
Sveinsson, hvaðan kemur
hann og hver verður fram-
tíð hans? Hér er reynt að varpa
ljósi á einn umdeildasta þing-
mann þjóðarinnar.
Gunnar Bragi er fæddur á
Sauðárkróki þann 9. júní árið
1968. Hann er alinn upp í Fram-
sóknarflokknum en átti eftir að
yfirgefa hann og koma að stofn-
un Miðflokksins ásamt Sig-
mundi Davíð Gunn-
laugssyni. Þá er hann
frímúrari og einn af
uppáhaldsstöðum
hans er Benidorm.
Foreldrar hans eru
Sveinn Margeir
Friðvinsson (fædd-
ur 19. september
1938, dáinn 25. júní
2017) og Ingibjörg
Gunnhildur Jósafats-
dóttir (fædd 13. maí
1940). Fyrrverandi
maki Gunnars Braga er
Elva Björk Guðmunds-
dóttir og eignuðust þau
synina Svein Rúnar, Inga
Sigþór og Róbert Smára.
Stjúpsynir Gunnars og
synir Elvu Bjarkar eru
þeir Arnar Þór Sigurðsson og Frí-
mann Viktor Sigurðsson.
Bensíntittur í framboð
Gunnar Bragi útskrifaðist síðar
en til stóð en hann ásamt fjórum
öðrum nemendum varð fyr-
ir barðinu á kennaraverkfalli.
Gunnar Bragi útskrifaðist því
árið 1989. Fljótlega eftir það
fór hann að hafa afskipti af
pólitík. Aðeins ári síðan
birtist stutt frétt í Feyki
en þar sagði:
„Þessi „bens-
íntittur“ á Ábæ,
Gunnar Bragi
Sveinsson, er
orðaður við
3ja eða 4ða
sætið á lista
framsóknar,
sem enn hef-
ur ekki verið
birtur. Trúlega
verður hann í
einna bestu aðstöð-
unni til að „agitera“ fyrir
kosningarnar í vor.“
Gunnar Bragi vann á
bensínstöð sem ungur
maður við að dæla bens-
íni. Seinna varð hann verslunar-
stjóri á staðnum og gekk að sögn
vina reksturinn vel, enda Gunnar
Bragi hamhleypa til verka.
Ljóst var að Gunnar Bragi
stefndi snemma á frama í póli-
tík en það var þó ekki fyrr en tutt-
ugu árum síðar sem hann settist á
þing. Hann lék einnig knattspyrnu
og spilaði golf. Gunnar Bragi þótti
harður í horn að taka á vellinum
en skapið kom honum stundum
í vandræði. Í eitt skipti var hann
tæklaður illa. Þá snöggreiddist
hann og ýtti næsta manni. Það
vildi svo óheppilega til að sá sem
fékk byltuna var dómarinn sem var
snöggur að veifa rauða spjaldinu
þegar hann hafði náð jafnvægi á
ný. Þá hefur Gunnar Bragi Liver-
pool í hávegum og tókst honum
með mikilli elju að gera öll börn
bróður síns að stuðningsmönnum
Liverpool þó svo að reynt hafi ver-
ið að innræta þeim að halda með
Tottenham.
Árið 2013 var birt nærmynd af
Gunnari Braga í Ísland í dag. Þar
var rætt við fjölskyldu og vini. Sig-
mundur Davíð var að sjálfsögðu
einn viðmælenda.
„Þar sem er fjör og gaman að
vera, þar er Gunnar Bragi mið-
punkturinn. Það er aldrei þungt
yfir mönnum þegar Gunnar Bragi
er á svæðinu,“ sagði Sigmund-
ur. Sveinn Rúnar einn af sonum
Gunnars Braga sagði föður sinn
vera blíðan og góðan mann.
„Hann getur verið með
skemmtilega lélegan húmor,
aulahúmor,“ sagði Sveinn Rún-
ar og bætti við: „Hann er mjög
þrjóskur. Greiðvikinn og alltaf til í
að gera allt fyrir alla. Hann stendur
fast á sinni sannfæringu og gefur
sig ekki ef hann er sannfærður.“ Þá
lýsti annar sonur Gunnars Braga
honum sem miklum húmorista
sem væri afar stríðinn. Bætti
hann við að Gunnar Bragi þyrfti
alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni
og gæti aldrei setið kyrr. Þá sagði
Atli Sveinsson bróðir Gunnars:
„Hann er gríðarlega vinnu-
samur og getur verið mjög fastur
fyrir. Þetta eru kostir ef maður
er sammála honum en geta ver-
ið ókostir ef maður er ósammála
honum. Hann er ráðagóður og
gaman að vera með honum.“
Góður leikari
Gunnar Bragi var afar virkur í leik-
félaginu á Sauðárkróki en hætti
þar í kringum árið 1995. Það var
einmitt á sviði sem hann kynntist
fyrrverandi konu sinni, Elvu Björk
Guðmundsdóttur. Hjá leikfé-
laginu tók Gunnar þátt í fjölmörg-
um verkum. Elva Björk sagði:
„Hann er mjög góður leik-
ari. Hann lék alvarleg hlutverk
og í försum. Hann fúnkerar rosa-
lega vel í försum. Það er svo mik-
ið aksjón þar. Það var mjög gam-
an að leika á móti honum. Við
kynntumst áramótin 1991-92. Við
vorum að leika í leikriti saman,
Köttur á heitu blikkþaki. Við lék-
um þar hjón sem áttu í erfiðleik-
um í hjónabandi. Þegar við fórum
að tala saman var eins og við hefð-
um þekkst í 40 ár.“
Gunnar fékk oft góða dóma fyrir
leik sinn á sviði. Um frammistöð-
una í Köttur á heitu blikkþaki
sagði gagnrýnandi:
„Eiginmann Margrétar, Brick
Pollit, leikur Gunnar Bragi Sveins-
son. Persónan krefst hófsemi í
túlkun en líka nokkurs hita eink-
um í öðrum þætti verksins. Gunn-
ar Bragi gerir henni að jafnaði
góð skil og nær talsvert vel að
flytja áhorfendum mynd þessa
sídrykkjumanns, sem er önn-
um kafinn við það einna helst að
svæfa vitund sína og hugsanir.“
Nærmynd af umdeildasta þingmanni þjóðarinnar:
Gunnar Bragi og Sigmundur
Davíð eru miklir vinir.
Gunnar Bragi þykir góður leikari.