Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 36
Tómstundir og útivist 7. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
Taflfélag Reykjavíkur er stærsta skákfélag á Íslandi og hvorki meira né minna en 118 ára
gamalt. „Það eru mörg skákfélög
starfandi á landinu en Taflfélag
Reykjavíkur er þeirra stærst og mjög
virkt í að halda bæði skákæfingar og
skákmót. Félagsmenn eru á fimmta
hundrað og margir hverjir mjög virkir,“
segir Kjartan Maack hjá Taflfélagi
Reykjavíkur.
Holl æfing fyrir hugann
Margir af eldri félögum halda sér í
góðu formi með því að tefla reglulega
en það er óneitanlega mjög örvandi
fyrir hugann að tefla, hvort heldur
er fyrir börn eða fullorðna. Vinsældir
skákíþróttarinnar hafa aukist að
undanförnu og er iðkendum sífellt
að fjölga. „Flestir krakkarnir sem æfa
hjá okkur æfa líka aðrar íþróttir. Það
er mikilvægt fyrir þau að hreyfa sig
reglulega samhliða skákinni og því
hvetjum við okkar iðkendur til þess
að stunda aðrar íþróttir. Það sem
skákin hefur fram yfir margar aðrar
íþróttir er hugarþjálfunin. Í skák læra
iðkendur að temja sér þolinmæði,
efla einbeitingu, hugsa fram í tímann,
sjá fyrir hugsanlegar hindranir,
setja sér markmið og gera áætlun,
bregðast við hinu óvænta, taka
erfiðar ákvarðanir undir pressu, læra
af mistökum, fylgja reglum og bera
virðingu fyrir umhverfi sínu, félögum
og andstæðingum. Skákin kennir því
eitt og annað sem heimfæra má á
lífið sjálft,“ segir Kjartan.
Æfingahópar fyrir alla
Taflfélag Reykjavíkur er með
fjölda æfingahópa og námskeið
fyrir skákáhugamenn á öllum
aldri og á öllum skákstigum.
Manngangskennslan er
kynningarnámskeið fyrir börn
sem eru að taka sín fyrstu skref á
skákborðinu. Námskeiðið er einu sinni
í viku og er öllum krökkum frjálst að
mæta og prófa. Byrjendaflokkur
er námskeið fyrir börn sem hafa
lært mannganginn og geta teflt
hjálparlaust. Stúlknahópurinn er
sérstaklega ætlaður til þess að
kynna skákíþróttina fyrir stelpum.
Framhaldsflokkur er fyrir þau börn
sem eru örlítið lengra komin og tefla
reglulega á skákmótum. Afrekshópur
er fyrir afreksfólk í skákíþróttinni.
Á sumrin eru svo hin sívinsælu
Sumarnámskeið.
Fjöldi skákmóta
Taflfélag Reykjavíkur stendur
fyrir rúmlega þrjátíu mismunandi
skákviðburðum ár hvert fyrir fólk
á ýmsum skákstigum. „Við höldum
fjölmörg skákmót sem ætluð eru
börnum eingöngu. Einnig eru mót
fyrir lengra komna, afreksfólk og eldri
félaga. Svo eru opin mót sem haldin
eru fyrir alla þá sem vilja taka þátt.
Framundan er eitt stærsta skákmót
ársins, Skákþing Reykjavíkur. Mótið
hefst sunnudaginn 6. janúar og er
öllum velkomið að tefla með.
Jólaskákæfing
Framundan hjá Taflfélagi Reykjavíkur
er Jólaskákæfing TR fyrir öll börn
og unglinga sem stunda skák hjá
félaginu og foreldra þeirra eða
aðra nákomna. „Þetta er hálfgerð
uppskeruhátíð eftir haustönnina og
breytum við örlítið út af vananum.
Þetta er fjölskylduhátíð þar sem
krakkarnir tefla í liði með einhverjum
nákomnum. Á eftir er boðið upp á
jólahressingu, veitt verðlaun fyrir
ástundun og svo verður dregið í
happdrætti. Öll börn og unglingar úr
öllum skákhópum TR eru velkomnir á
þessa sameiginlegu jólaskákæfingu
þann 9. desember frá 13–15.30 og er
um að gera að skrá sig á vefsíðunni
taflfelag.is.
Taflfélag Reykjavíkur er staðsett að
Faxafeni 12, 108 Reykjavík
Netfang: taflfelag@taflfelag.is
Vefur: taflfelag.is n
TAFLFÉLAG REYKJAVÍKUR:
Holl æfing fyrir hugann