Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 78

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 78
 7. desember 2018MATUR78 Svona heldurðu kolvetnasnauð jól n Forréttur, aðalréttur og eftirréttur n Ekkert mál að vera ketó yfir hátíðarnar F jölmargir borða samkvæmt hinu svokallaða ketó-matar- æði, eða lágkolvetna matar- æði. Mataræðið felst í því að sneiða kolvetni að mestum hluta úr mataræðinu, en þeir sem eru ketó mega til dæmis ekki borða sykur, hveiti, ýmsa ávexti og grænmeti. Því eru einhverjir sem kvíða jólunum og matseldinni sem þeim fylgir, en matarvefur DV kemur til hjálpar og bryddar upp á ketó-væn- um hátíðaruppskriftum. n Hvítlaukssveppir Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Hráefni: 4 msk. smjör, brætt 2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir 2 tsk. ferskt timjan, saxað 1 tsk. balsamic-edik salt og pipar 680 g sveppir, hreinsaðir Aðferð: Hitið ofninn í 190°C. Blandið smjöri, hvítlauk, timjan og ediki saman í meðalstórri skál. Raðið sveppunum á stóra ofnplötu og hellið smjör- blöndunni yfir þá. Saltið síðan og piprið. Steikið í 15 til 18 mínútur. Hráefni: 4 humarhalar í skel 2 msk. ólífuolía ½ bolli laukur, saxaður 1½ tsk. hvítlaukur, smátt saxaður 1 bolli þurrt hvítvín 2 tsk. Worcestershire-sósa 1 tsk. salt 1 tsk. þurrkað timjan ½ tsk. paprikukrydd ½ tsk. cayenne-pipar ¼ tsk. svartur pipar 1–2 msk. tómatpúrra 2 bollar humarsoð 2 bollar rjómi 4 msk. smjör Aðferð: Sjóðið humarhalana í 6 til 8 mínútur þar til skelin er rauð. Takið halana úr pottinum en haldið eftir vatninu til að nota sem humarsoð. Takið kjötið úr skelinni og setjið skelina aftur í vatnið og sjóðið í 10 mínútur til viðbótar. Hellið humarsoðinu í gegnum fínt gatasigti og haldið eftir 2 bollum. Skerið humar í munnbitastærð og setjið til hliðar. Takið til stóran pott og hitið olíu yfir meðalhita. Steikið lauk og hvítlauk í 5 mínútur. Blandið víninu varlega saman við, síðan Worcestershire-sós- unni, salti, timjan, paprikukryddi, cayenne-pipar og svörtum pipar. Hrærið tómatpúrru og humarsoð- inu saman við. Náið upp suðu og látið malla í 10 mínútur. Maukið súpuna með töfrasprota og bætið síðan rjóma og smjöri saman við. Smakkið til og saltið eftir þörfum. Setjið humarinn út í súpuna og látið malla í 5 til 10 mínútur til viðbótar. Hráefni: 1 bolli rifinn ostur ½ bolli möndlumjöl 2 msk. rjómaostur 1 msk. hvítlaukskrydd 1 tsk. lyftiduft salt 1 stórt egg 1 msk. smjör, brætt 1 hvítlauksgeiri, smátt saxaður 1 msk. fersk steinselja, söxuð 1 msk. rifinn parmesanostur Aðferð: Hitið ofninn í 200°C og setjið smjörpappír á stóra ofnplötu. Setjið rifinn ost, möndlumjöl, rjómaost, hvítlaukskrydd, lyftiduft og salt í skál sem þolir örbylgjuofn. Hitið í örbylgjuofni í um mínútu, eða þar til osturinn er bráðnaður. Hrærið eggi saman við. Hellið deiginu á ofnplötuna og mótið brauðhleif úr því. Blandið smjöri, hvítlauk, steinselju og parmesan saman í lítilli skál og penslið deigið með blöndunni. Bakið í 15 til 17 mínútur, eða þar til brauðið er fallega gull- inbrúnt. Hráefni: 600 g lambakjöt salt og pipar 3 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir 1 msk. þurrkað fáfnisgras 4 msk. ólífuolía 1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar 2 dósir cannellini-baunir, safi tekinn af Aðferð: Hitið ofninn í 200°C. Kryddið lambið með 1 teskeið af salti og ½ teskeið af pipar. Setjið það í ofnpott eða ofnskúffu. Blandið hvítlauk, fáfnisgrasi og 1 matskeið af olíu saman í lítilli skál. Nuddið þessari blöndu í lambið. Steikið lambið í 25 til 30 mínútur fyrir „medium rare“, færið það á skurðarbretti og leyfið því að hvíla í 5 mínútur áður en það er skorið. Haldið eftir soðinu fyrir sósuna (sjá sósuuppskrift). Hitið restina af olíunni, 3 matskeiðar, í stórri pönnu yfir meðalhita. Steikið lauk í um 4 mínútur eða þar til hann er mjúkur. Bætið baunum, ½ teskeið af salti og ¼ teskeið af pipar saman við. Eldið í 3 til 4 mínútur og berið fram með lambinu. Hráefni: 4 msk. smjör 1 bolli soðið af lambakjötinu 2 bollar nautasoð 2 tsk. Worcestershire-sósa 1 tsk. hvítlaukskrydd salt og pipar 2 msk. vatn ¼ bolli maíssterkja Aðferð: Takið til meðalstóra pönnu og bræðið smjörið yfir meðalhita. Bætið soði af lambakjöti og nautasoðinu varlega saman við og þeytið þar til blandan er silkimjúk. Náið upp suðu og bætið síðan Worcestershire-sósunni og hvítlaukskryddinu saman við. Kryddið með salti og pipar. Blandið vatni og maíssterkju saman í lítilli skál og blandið því síðan við sósuna. Hrærið stans- laust í 3 mínútur, eða þar til sósan hefur þykknað. Ef hún er of þykk er um að gera að bæta meira soði við. Hráefni: 900 g aspas, stilkarnir snyrtir 3 msk. ólífuolía salt og pipar Aðferð: Hitið ofninn í 200°C. Blandið öllum hráefnum vel saman og ekki spara salt og pipar. Skellið á ofnplötu og bakið í 25 mínútur. Hráefni: 1½ blómkálshaus, skorinn í bita 12 msk. smjör ½ bolli rjómi 3 hvítlauksgeirar 2 bollar rifinn ostur 1 bolli rifinn parmesanostur 1 msk. ferskt timjan salt og pipar Aðferð: Hitið ofninn í 200°C. Sjóðið blómkálið í saltvatni í 8 mín- útur. Smyrjið stórt eldfast mót með smjöri. Bætið helmingn- um af blómkálinu í botninn og hellið helmingnum af rjóman- um yfir það. Dreifið helmingn- um af smjöri, hvítlauk, osti, parmesan og timjan yfir það og endurtakið síðan. Saltið og piprið. Bakið þar til osturinn hefur bráðnað og tekið lit, eða í um 30 mínútur. Leyfið að kólna í 5 mínútur og berið svo fram. Kaka – Hráefni: 1½ bolli möndlumjöl 2/3 bollar kakó ¾ bollar kókoshveiti ¼ bolli flax 2 tsk. lyftiduft 2 tsk. matarsódi 1 tsk. salt 115 g smjör, mjúkt ¾ bolli ketó-sykur (eins og Swerve) 4 stór egg 1 tsk. vanilludropar 1 bolli möndlumjólk 1/3 bolli sterkt kaffi Aðferð: Hitið ofninn í 175°C og takið til tvö hringlaga form, sirka 20 sentímetra stór. Smyrjið þau með smjöri. Blandið möndlumjöli, kakó, kókoshveiti, flax, lyftidufti, mat- arsóda og salti vel saman í skál. Þeytið smjör og Swerve vel saman í annarri skál og bætið eggjun- um saman við einu í einu, og því næst vanilludropunum. Blandið þurrefnunum saman við og hrærið síðan mjólk og kaffi saman við. Skiptið deiginu á milli formanna tveggja og bakið í um 28 mínútur. Kælið alveg. Krem – Hráefni: 450 g rjómaostur, mjúkur 115 g smjör, mjúkt ¾ bolli ketó-sykur (eins og Swerve) ½ bolli kakó ½ bolli kókoshveiti ¼ tsk. instant-kaffi ¾ bolli rjómi salt Aðferð: Blandið rjómaosti og smjöri vel saman þar til blandan er silkimjúk. Bætið Swerve, kakói, kókoshveiti og instant- -kaffi saman við og þeytið þar til blandan er kekkjalaus. Bætið rjóma og salti saman við og þeytið vel. Setjið einn kökubotn á disk, smyrjið hann með kremi og setjið hinn botninn ofan á. Notið restina af kreminu ofan á kökuna. Geymið í ísskáp þar til kakan er borin fram. Ofnbakaður aspas Aðalréttur Lamb með fáfnisgrasi Ketó-sósa Forréttur Humarsúpa Hvítlauksbrauð Blómkálsgratín Eftirréttur Ketó-súkkulaðikaka
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.