Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 53
Góður biti 7. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
BAN KÚNN:
Ferskur tælenskur matur frá hjartanu
Hér hefur verið mikið að gera frá fyrsta degi og fólk hefur tekið okkur enn betur
en ég þorði að vona. Fyrst kom
fólkið úr hverfinu en svo fór þetta
að berast og núna kemur hingað
fólks allsstaðar að. Við fáum meira
að segja pantanir frá erlendum
ferðaskrifstofum,“ segir Svavar G.
Jónsson hjá Ban Kúnn.
Notalegt andrúmsloft og hagstæð
tilboð
Ban Kúnn þýðir „heima hjá þér“ á
tælensku en þannig líður manni
þegar maður gengur þangað inn.
Hádegis- og kvöldverðartilboðið er
vinsælt hjá gestum staðarins. Sex
réttir eru í borðinu og má velja þrjá
rétti á diskinn. „Við breytum daglega
um rétti og því er alltaf eitthvað
nýtt í borðinu. Í hádeginu kosta
herlegheitin 1.990 kr. en á kvöldin
2.200 kr. þegar tekið er með sér,
sem hlýtur að teljast afar hagstætt
verð fyrir svo góðan mat,“ segir
Svavar.
Karrí er ekki bara karrí!
Natthawat segir kryddin vera stóran
þátt í tælenskri matargerð og þau
verði að nota rétt. „Hér áður þekktu
Íslendingar víst bara eina tegund af
karrí, það er gult karrí eða indverskt
karrí. En það eru til óteljandi
karrítegundir í heiminum og á Ban
Kúnn erum við með svo margar
tegundir að við segjum stundum við
kúnnann þegar hann biður um karrí:
„Karrí og karrí er alls ekki það sama
og karrí,“ segir Natthawat kíminn.
Ferskleikinn í fyrirrúmi
„Kryddin eru líka mjög mismunandi,
sumt er þurrt duft, annað er eins
og mauk líkt og karrímauk. Svo
notum við líka ferskar kryddjurtir
þó það geti verið erfitt að fá þær. Í
tælenskri matargerð er mikilvægt
að allt hráefnið sé eins ferskt og
hægt er og við notum t.d. aldrei
frosið grænmeti. Við notum mikið
ferskt grænmeti, kjúkling, svínakjöt,
nautakjöt og fisk í réttina. Hráefnið
verður allt að standast strangar
gæðakröfur sem ég fylgist mjög
vel með,“ segir Natthawat. „En það
sem er best við matinn hjá okkur
er að við eldum hann frá hjartanu.
Sumir elda bara og leggja ekkert
í eldamennskuna. Að elda mat er
að gefa hluta af sjálfum sér, þess
vegna verður maður að gera það
vel.“
Ekta tælenskur matur – eins og í
Tælandi
„Auk tilboðanna erum við með 25
rétti á matseðli og nokkrir þeirra
eru grænmetisréttir. Annars er
hægt að gera flesta réttina að
grænmetisréttum eða jafnvel
vegan ef vill. Fyrir utan það getum
við eldað ótal marga sértælenska
rétti. Fólk getur því komið hingað
og beðið okkur um að sérelda
uppáhalds tælenska réttinn sinn.
Hér leggjum við áherslu á að hafa
réttina upprunalega, nákvæmlega
eins og ef staðurinn væri í Tælandi,“
segir Svavar.
Uppskrift sem hefur gengið í ættir
„Pad Thai er vinsælasti rétturinn
á matseðlinum. Hann inniheldur
hrísgrjónanúðlur, grænmeti,
kjöt eða rækjur, og síðan er það
leyndarmálið sem allir alvöru
tælenskir veitingastaðir verða
að hafa – en það er sósan,“
segir Svavar. Sósan í réttinum
þykir einstök. Uppskriftin kemur
frá langömmu eiginmannsins,
Natthawat, en fjölskylda hans hefur
stundað veitingarekstur í Tælandi
mann fram af manni.
Ban Kúnn er staðsettur að
Tjarnarvöllum 15, Hafnarfirði.
Opnunartímar: Virka daga 11-21
og helgar (og aðrir frídagar) 17-21.
Sjá nánar á Facebook-síðunni
Ban Kúnn. n