Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 35
Tómstundir og útivist 7. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ Tennis er fyrir alla – Sveigjanleg æfingagjöld Tennis er afar sveigjanleg íþrótt. Annars vegar er hún ein erfiðasta íþrótt heimi, þar sem á keppnisstigi reynir gífurlega á líkamlegt þol og andlegan styrk. Hins vegar er hún íþrótt sem allir geta stundað sér til mikillar ánægju. Það segir sitt um um breiddina að iðkendur íþróttarinnar í Tennishöllinni í Kópavogi eru frá fjögurra ára aldri og upp í 90 ára. „Fólk getur spilað tennis langt fram eftir aldri vegna þess að þetta er ekki íþrótt með harðri líkamlegri snertingu líkt og til dæmis sumar boltaíþróttir. En hver og einn velur sér eðlilega mótspilara af sambærilegu getustigi og þannig eru æfingarnar okkar einnig byggðar upp hjá krökkunum,“ segir Andri Jónsson, yfirþjálfari og íþróttastjóri hjá Tennishöllinni, Tennisfélagi Kópavogs, Tennisfélagi Garðabæjar og Tennisfélagi Hafnarfjarðar. Umfram allt er tennis skemmtileg íþrótt og svo vinsæl að Tennishöllin er búin að sprengja utan af sér sitt æfingahúsnæði. Sem betur fer verður æfingaaðstaðan hins vegar stækkuð mikið snemma á næsta ári og það eru mjög spennandi tímar í vændum hjá félaginu. „Við erum að fara að tvöfalda aðstöðuna, tökum í notkun tvo nýja tennisvelli og tvo svokallaða padelvelli. Padelvellina verður auk þess hægt að nota sem mini-tennisvelli fyrir börnin,“ segir Andri. Padel er afbrigði af tennis sem er um þessar mundir að ná vaxandi vinsældum erlendis og mun hefja innreið sína hér á nýju ári. Er þá notast við minni og þykkari spaða sem eru ekki með strengjum líkt og hefðbundnir tennisspaðar. Það er töluvert auðveldara að spila padel en hefðbundinn tennis og þetta er mjög spennandi valkostur samhliða hefðbundnu íþróttinni. Sveigjanleg æfingagjöld: Borgað í samræmi við hvað börnin æfa mikið Í flestum íþróttagreinum sem börn byrja að æfa hjá íþróttafélögum eru greidd föst æfingagjöld og þykir engum óeðlilegt. Sá sveigjanleiki sem tennisfélögin sem æfa í Tennishöllinni bjóða foreldrum barna sem vilja æfa tennis er hins vegar eftirtektarverður. Gjaldið fylgir þar ástundun barnsins, sem veitir mikinn sveigjanleika, því sum börn mæta einu sinni í viku á meðan önnur æfa daglega. „Það kostar nokkra fyrirhöfn að púsla þessu saman en það er vinna sem við tökum glöð á okkur því tennis er einstaklingsíþrótt og okkur finnst mikilvægt að mæta einstaklingnum og laga okkur að þörfum hans,“ segir Andri. Auk þess að bjóða upp á æfingar og kennslu í Tennishöllinni eru Tennisfélag Kópavogs, Tennisfélag Garðabæjar og Tennisfélag Hafnarfjarðar með tenniskennslu í fimm grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og munu fara inn í fleiri skóla á næsta ári. Er því unnið ötullega að því að útbreiða þessa góðu íþrótt og ala upp tennisleikara framtíðarinnar á Íslandi. Árskort, opnir tímar og námskeið Margir möguleikar eru fyrir fullorðna þátttakendur á öllum getustigum. Hægt er að kaupa sér stakan tíma í tennishöllinni og þar er líka hægt að kaupa árskort sem er mun hagstæðari kostur. Innifalið í árskortinu eru opnir karla- og kvennatímar í hádeginu. Einnig er hægt að skrá sig á byrjendanámskeið og framhaldsnámskeið: „Við tökum við skráningum daglega á námskeið og setjum saman hvern hóp í samræmi við hvenær þeir sem skrá sig geta mætt til okkar,“ segir Andri. Nánari upplýsingar um þetta allt saman er að finna á vefsíðunni www. tennishollin.is. Þar er líka hægt að skrá sig á æfingar eða námskeið og/eða senda fyrirspurnir. Allar upplýsingar eru einnig veittar í síma 564-4060 og í gegnum netfangið tennis@tennishollin. is. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.