Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Qupperneq 35
Tómstundir og útivist 7. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Tennis er fyrir alla –
Sveigjanleg æfingagjöld
Tennis er afar sveigjanleg íþrótt. Annars vegar er hún ein erfiðasta íþrótt heimi, þar sem á keppnisstigi
reynir gífurlega á líkamlegt þol og
andlegan styrk. Hins vegar er hún íþrótt
sem allir geta stundað sér til mikillar
ánægju. Það segir sitt um um breiddina
að iðkendur íþróttarinnar í Tennishöllinni
í Kópavogi eru frá fjögurra ára aldri og
upp í 90 ára.
„Fólk getur spilað tennis langt fram
eftir aldri vegna þess að þetta er ekki
íþrótt með harðri líkamlegri snertingu
líkt og til dæmis sumar boltaíþróttir.
En hver og einn velur sér eðlilega
mótspilara af sambærilegu getustigi
og þannig eru æfingarnar okkar einnig
byggðar upp hjá krökkunum,“ segir Andri
Jónsson, yfirþjálfari og íþróttastjóri hjá
Tennishöllinni, Tennisfélagi Kópavogs,
Tennisfélagi Garðabæjar og Tennisfélagi
Hafnarfjarðar.
Umfram allt er tennis skemmtileg
íþrótt og svo vinsæl að Tennishöllin
er búin að sprengja utan af sér sitt
æfingahúsnæði. Sem betur fer verður
æfingaaðstaðan hins vegar stækkuð
mikið snemma á næsta ári og það eru
mjög spennandi tímar í vændum hjá
félaginu.
„Við erum að fara að tvöfalda
aðstöðuna, tökum í notkun tvo nýja
tennisvelli og tvo svokallaða padelvelli.
Padelvellina verður auk þess hægt
að nota sem mini-tennisvelli fyrir
börnin,“ segir Andri. Padel er afbrigði
af tennis sem er um þessar mundir
að ná vaxandi vinsældum erlendis
og mun hefja innreið sína hér á nýju
ári. Er þá notast við minni og þykkari
spaða sem eru ekki með strengjum
líkt og hefðbundnir tennisspaðar. Það
er töluvert auðveldara að spila padel
en hefðbundinn tennis og þetta er
mjög spennandi valkostur samhliða
hefðbundnu íþróttinni.
Sveigjanleg æfingagjöld: Borgað í
samræmi við hvað börnin æfa mikið
Í flestum íþróttagreinum sem börn
byrja að æfa hjá íþróttafélögum
eru greidd föst æfingagjöld og þykir
engum óeðlilegt. Sá sveigjanleiki sem
tennisfélögin sem æfa í Tennishöllinni
bjóða foreldrum barna sem vilja æfa
tennis er hins vegar eftirtektarverður.
Gjaldið fylgir þar ástundun barnsins,
sem veitir mikinn sveigjanleika, því sum
börn mæta einu sinni í viku á meðan
önnur æfa daglega.
„Það kostar nokkra fyrirhöfn að
púsla þessu saman en það er vinna
sem við tökum glöð á okkur því tennis
er einstaklingsíþrótt og okkur finnst
mikilvægt að mæta einstaklingnum og
laga okkur að þörfum hans,“ segir Andri.
Auk þess að bjóða upp á æfingar og
kennslu í Tennishöllinni eru Tennisfélag
Kópavogs, Tennisfélag Garðabæjar
og Tennisfélag Hafnarfjarðar með
tenniskennslu í fimm grunnskólum á
höfuðborgarsvæðinu og munu fara inn
í fleiri skóla á næsta ári. Er því unnið
ötullega að því að útbreiða þessa
góðu íþrótt og ala upp tennisleikara
framtíðarinnar á Íslandi.
Árskort, opnir tímar og námskeið
Margir möguleikar eru fyrir fullorðna
þátttakendur á öllum getustigum.
Hægt er að kaupa sér stakan tíma í
tennishöllinni og þar er líka hægt að
kaupa árskort sem er mun hagstæðari
kostur. Innifalið í árskortinu eru opnir
karla- og kvennatímar í hádeginu. Einnig
er hægt að skrá sig á byrjendanámskeið
og framhaldsnámskeið: „Við tökum við
skráningum daglega á námskeið og
setjum saman hvern hóp í samræmi við
hvenær þeir sem skrá sig geta mætt til
okkar,“ segir Andri.
Nánari upplýsingar um þetta allt
saman er að finna á vefsíðunni www.
tennishollin.is. Þar er líka hægt að skrá
sig á æfingar eða námskeið og/eða
senda fyrirspurnir. Allar upplýsingar
eru einnig veittar í síma 564-4060 og í
gegnum netfangið tennis@tennishollin.
is. n