Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 66
66 7. desember 2018
LOKAÐIR STURTUKLEFAR
MEÐ TOPPI, SPORNA
GEGN RAKA OG MYGLU
Kíktu á sturta.is og
skoðaðu úrvalið
S. 856 5566
TÍMAVÉLIN - ERLENT
Heróín var hóstasaft
n Markaðssett af þýskum lyfjarisa n Gengur í bylgjum
H
eróín er ópíóði sem á sér
yfir hundrað ára gamla
sögu. Upprunalega var
heróín markaðssett sem
hóstalyf og lyf til að þagga nið-
ur í óþægum krökkum. Snemma
kom hins vegar í ljós að heróín
er eitt mest ávanabindandi lyf
sem til er og áhrifin skelfileg. Líkt
og önnur fíkniefni hefur heróín
gengið í tískubylgjum og auk-
in neysla lyfseðilsskyldra mor-
fínlyfja hefur hrundið enn einum
heróínfaraldrinum af stað.
Talið ávanalaust
Ópíum hefur fylgt
mannkyninu í þús-
undir ára. Að öll-
um líkindum hef-
ur ræktun þess hafist
um 3400 fyrir Krists-
burð í Mesópótam-
íu, þar sem nú er
Írak. Egyptar til
forna notuðu ópí-
um sem og Persar.
Þaðan barst
plantan vestur til
Evrópu og austur
til Indlands og Kína.
Í gegnum aldirnar
var ópíum notað í lækn-
isfræðilegum tilgangi. Við
sársaukafullum sjúk-
dómum á borð við
krabbamein, einnig við
fæðingar og fleiri tilvik.
Að auki var það mis-
notað sem fíkniefni og
menn fóru að átta sig
á hversu ávanabind-
andi efnið væri. Milli
Kína og Bretlands
voru háð stríð út af
sölu lyfsins en þá var
ópíumneysla orðin
að miklum faraldri í
fyrrnefnda landinu.
Árið 1805 var
morfín unnið úr
ópíum. Uppruna-
legi tilgangurinn
með morfíni var að
vinna gegn ávana
ópíums. En morfín
reyndist mun
virkara og
sterkara lyf
og fólk ánetj-
aðist því í
staðinn. Það
sama gerð-
ist árið 1874
þegar heróín
var búið til í
fyrsta sinn úr mor-
fíni. Það var breski efna-
fræðingurinn Charles Romley
Alder Wright. Hann var þá að
leita að valmöguleika við mor-
fíni sem væri ekki ávanabindandi
og blandaði því við ýmsar sýrur.
Heróín var hins vegar ekki fram-
leitt fyrir almennan markað fyrr
en árið 1898. Þá af þýska lyfjaris-
anum Bayer.
Dóp djassaranna
Heróín var selt án lyfseðils yfir
borðið og auglýst sem lyf gegn
ýmsum kvillum. Má þar nefna
hósta, niðurgang og til að róa
óróleg börn. Auglýsingum var sér-
staklega beint að barnapíum sem
áttu í vandræðum með ódæla
krakka. Í upphafi 20. aldarinn-
ar var mikil herferð til að auglýsa
heróín og Bayer sendi morfín-
fíklum frí sýnishorn af þessu nýja
undralyfi í pósti.
Fljótlega fór fólk hins vegar að
átta sig á því að heróín var jafn-
vel enn meira ávanabindandi
en bæði ópíum og morfín. Árið
1914 var heróín gert lyfseðilsskylt
í Bandaríkjunum ásamt öðrum
ópíumskyldum lyfjum. Árið 1924
var heróín bannað í Bandaríkj-
unum og ári síðar í Þjóðabanda-
laginu, sem var undanfari Sam-
einuðu þjóðanna. Fíklar voru þá
farnir að látast af völdum heróíns
og leiðast út í glæpi til að fjár-
magna neysluna.
Bannið stöðvaði hins vegar
ekki neysluna. Þvert á móti þá
jókst hún stöðugt fram á miðja
20. öldina. Á árunum eftir seinni
heimsstyrjöld var farið að tala
um eiginlegan heróínfaraldur í
Bandaríkjunum. Heróín komst í
tísku í sumum kreðsum, sérstak-
lega á djassklúbbunum. Margir
af fremstu djasstónlistarmönn-
um þess tíma voru alvarlega háð-
ir heróíni.
Um miðjan sjötta áratuginn
rénaði faraldurinn, líklegast af
tveimur meginorsökum. Annars
vegar þá var framboðið ekki nægt
og verðið orðið of hátt. Í heimi
heróínfíkla er nægt framboð algert
skilyrði. Hins vegar var þá farið að
blanda efnin illa.
Tóku fíknina heim frá Víetnam
Heróín var ekki mjög vinsælt á
sjöunda áratugnum. Þá var mari-
júana og ofskynjunarlyf í tísku.
En í upphafi áttunda áratugarins
datt heróín aftur inn með miklum
krafti í Bandaríkjunum. Þá voru
það bandarískir hermenn sem
fluttu fíknina með sér heim frá
Víetnam. Hermenn á aldrinum 18
til 20 ára máttu ekki kaupa áfengi
á herstöðinni. Þess vegna keyptu
þeir heróín af heimamönnum. Það
var bæði ódýrt og framboðið nægt.
Þeir blönduðu því við reyktóbak
eða tóku það beint í nefið. Þegar
fíknin var orðin mikil sprautuðu
þeir sig.
Allan áttunda áratuginn geisaði
mikill heróínfaraldur, síst minni
en um miðja öldina. Harðari refs-
ingar, sem Bandaríkjaforsetinn
Richard Nixon innleiddi, skiptu
engu máli. Neyslan rénaði þó
nokkuð á þeim níunda en festist í
sessi hjá ákveðnum hópi. Önnur
sterk fíkniefni voru þá að flæða inn
á markaðinn, sérstaklega kókaín-
blandað krakk sem margir tóku
fram yfir heróín. Einnig var tölu-
verð hræðsla við nýjan sjúkdóm
sem smitaðist með sprautunálum,
alnæmi.
Síðan þá hafa fíkniefni komið
og farið úr tísku. Heróín lá lengi í
dvala sem óvinsælt dóp en í kring-
um árið 2010 kom það aftur með
hvelli. Ástæðan var lyfseðilsskyld-
ir ópíóðar sem hafa orðið sífellt
vinsælli af fíklum á þessari öld.
Contalgin, Oxycontin, Fentanyl og
fleiri morfínskyld lyf eru misnot-
uð og þessi misnotkun hefur leitt
suma fíkla út í notkun á heróíni.
Hefur það ekki verið vinsælla í 40
ár. n
Sid Vicious Bassaleikari Sex Pistols lést úr
of stórum skammti 21 árs.
Bayer Auglýsingar fyrir heróín.Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Heróín Eitt hættu-
legasta fíkniefni
síðustu 120 ára.