Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 80
80 7. desember 2018
F
yrir langa löngu bjó kona
ein í London á Englandi.
Konan hét Elsie Camer-
on og sá sér farborða með
vélritunarþjónustu. Elsie, sem
vakti ekki athygli fyrir útlits sakir,
venjulega var með böggum hildar
enda orðin 26 ára og einhleyp. Á
þeim tíma, upp úr aldamótunum
1800/1900, var það afleit staða að
vera í ef um var að ræða konur.
Árið 1920 kynntist Elsie
Norman Thorne, rafmagns-
fræðingi sem rétt var skriðinn yfir
tvítugt. Af ótta við að ganga í gegn-
um lífið einsömul ákvað Elsie að
Norman myndi duga – hann ein-
faldlega yrði að duga.
Atvinnumissir og sjálfstæður
rekstur
Nú, unga fólkið, misunga þó,
skellti sér í tilhugalífið og tilver-
an gekk til þess að gera sinn vana-
gang; Elsie sinnti sínu starfi og
Norman sínu.
Sumarið 1921 missti Norman
vinnuna og ákvað að gerast sjálf-
stæður atvinnurekandi. Faðir hans
hljóp undir bagga og gaf honum
100 sterlingspund til að létta hon-
um róðurinn fyrstu skrefin.
Norman keypti jarðarskika í
Blackness, í Crowborough í Sussex
og stofnaði þar Wesley-hænsna-
búið.
Tíðar helgarferðir
Norman var dugnaðarforkur og
fyrr en varði hafði hann reist röð
smáhýsa og komið upp hænsna-
gerðum. Hverja helgi hjólaði
Norman til London og varði tíma
með Elsie. Norman bætti um bet-
ur og breytti einu smáhýsinu í
þokkalegt heimili, þótt smátt í
sniðum væri.
Nú var komið að Elsie að leggja
land undir fót um helgar. Alla
jafna fór hún með lest til Sussex,
var með Norman á daginn en fékk
gistingu hjá nágrannafjölskyldu
um nætur. Tíðarandinn á þeim
tíma bauð ekki upp á að ógift par
eyddi nóttinni saman.
Trúlofun en engin gifting
Elsie og Norman trúlofuðu sig
um jólin árið 1922, en gleði Elsie
varð skammvinn því skömmu
síðar missti hún vinnuna. Næstu
mánuði fékk hún starf á nokkrum
stöðum, en hætti í þeim öllum af
einni eða annarri ástæðu.
Til að bæta gráu ofan á svart þá
tók rekstur Normans dýfu um mitt
ár 1923 og gekk afar illa. Af þeim
sökum var Norman hikandi við að
ákveða giftingardag og lagðist það
hik afar illa í Elsie.
Bessie kemur til skjalanna
Um hvítasunnuna 1924 skellti
Norman sér á dansleik í sveitinni
í Sussex. Þar hitti hann fatagerðar-
3 mánuðum eftir að Bandaríkjamaðurinn Pan Sayak-hoummane var myrtur við Arkansas-ána skammt frá Muldrow var morðingi hans handtekinn. Var þar um að
ræða Donald Ray Wackerly II. Sayakhoummane hafði verið að
tygja sig til heimfarar þegar Wackerly og eiginkona hans, Michelle,
urðu á vegi hans. Wackerly. Það voru engar vöflur á Wackerly. Hann
skaut Sayakhoummane átta sinnum með .22 kalíbera riffli, hirti
veiðigræjur hans, ýtti bifreið hans út í ána og lagði síðan á flótta.
Það var Michelle sem upplýsti yfirvöld um ódæði eiginmanns síns.
Að hennar sögn hafði Wackerly, að morgni þessa dags, sagt að
hann vantaði fé til að kaupa fíkniefni og hann „myndi gera hvað
sem er“ til að verða sér úti um það. Wackerly var tekinn af lífi í
Oklahoma 14. október 2010.
SAKAMÁL
ALLAR ALMENNAR
FATAVIÐGERÐIR
TÖKUM AÐ OKKUR
Komdu m
eð
kjólinn fy
rir
jólin
Malarhöfða 2 • 110 Reykjavík • lost.is • lost@lost.is • Sími 581 3330
ELSIE, NORMAN OG BESSIE
n Elsie vildi giftast sem fyrst enda að nálgast fertugsaldurinn n Norman var tíu árum yngri og fannst ekki liggja á n Bessie birtist eins og skrattinn úr sauðarleggnum og breytti öllum áformum
„Við nánari kynni
komst Norman
að því að Bessie var ekki
eins krefjandi og Elsie
Í dómsal
Norman
Thorne
stendur
frammi
fyrir örlögum
sínum.
Elizabeth „Bessie“
Coldicott Hitti Norman
á dansleik og heillaði
hann upp úr skónum.