Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 44
Tómstundir og útivist 7. desember 2018KYNNINGARBLAÐ
7. desember kl. 13:00-14:30
8. desember kl. 13:00-17:00
9. desember kl. 13:00-17:00
10. desember kl. 13:00-14:30
11. desember kl. 13:00-14:30
12. desember kl. 13:00-14:30
13. desember kl. 13:00-14:30 og
kl. 17:00-19:30
14. desember kl. 13:00-14:30
15. desember kl. 13:00-16:00
15. desember kl. 16:30-19:00
– Jólaball –
Aðgangur 1500 kr.
16. desember kl. 13:00-17:00
17. desember kl. 13:00-14:30
18. desember kl. 13:00-14:30
19. desember kl. 13:00-14:30
20. desember kl. 13:00-14:30 og
kl. 17:00-19:30
21. desember kl. 13:00-18:00
22. desember kl. 13:00-18:00
23. desember kl. 12:00-16:00
24. desember lokað/closed
25. desember lokað/closed
26. desember kl. 13:00 – 18:00
27. desember kl. 13:00 – 18:00
28. desember kl. 13:00 – 18:00
29. desember kl. 13:00 – 18:00
30. desember kl. 13:00 – 18:00
31. desember kl. 11:00 – 15:00
1. janúar lokað/closed
2. janúar kl. 13:00 – 18:00
3. janúar kl. 13:00 – 19:30
4. janúar kl. 13:00 – 14:30
Skautahöllin í Laugardal býður upp á skemmtilega stemningu á aðventunni og fram yfir
áramót, jólatré er á miðju svellinu og
jólalögin hljóma. Það er því tilvalið fyrir
fjölskylduna að njóta skemmtilegra
stunda saman á aðventunni og skella
sér á skauta í höllinni.
Skautahöllin er fyrir alla og mjög
vinsælt er að halda barnaafmæli þar,
auk þess sem jólaball er haldið um
miðjan desember. Æfingar fyrir börn
og unglinga eru á vegum Skautafélags
Reykjavíkur.
Jólaball
Þann 15. desember er jólaball í
Skautahöllinni, en það er samstarf
Skautahallarinnar og Skautafélagsins.
Ballið er frá kl. 16.30-19.00 og kostar
1.500 kr. inn.
Afmæli
Vinsælt er að halda barnaafmæli
í Skautahöllinni og verðið er
hagstætt, 1.750 kr. á barn fyrir
tveggja klukkustunda dagskrá
ásamt pizzuveislu. Afmælistímar eru
fimmtudaga kl. 17-19, laugardaga og
sunnudaga kl. 13-15 og 15-17. Einnig er
boðið upp á fleiri afmælistíma tengda
jólaopnuninni.
Skautar eru ódýr og heilsusamleg
afþreying fyrir alla fjölskylduna, verðið
er 300 kr. fyrir leikskólabörn, 700
kr. fyrir börn 6-16 ára, 1.000 kr. fyrir
fullorðna og frítt inn fyrir aldraða og
öryrkja, skautaleiga er 500 kr. fyrir
þá sem þurfa. Einnig eru hagstæðir
fjölskyldupakkar í boði, 4.000 kr. fyrir
fjóra með skautum.
Nýlega var sett upp nýtt loftræstikerfi
í höllina, sem gerir hana mun hlýrri og
þægilegri en áður fyrir gesti.
Skautahöllin í Laugardal er staðsett
við Múlaveg 1, við hlið Húsdýra- og
fjölskyldugarðsins. Allar upplýsingar má
fá á heimasíðunni: skautaholl.is, í síma
588-9705 og á netfanginu skautaholl@
skautaholl.is. n
Opnunartímar um jól og áramót
SKAUTAHÖLLIN LAUGARDAL :
Skemmtileg stemning á jólum