Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 16
16 7. desember 2018 Í búarnir í litla þorpinu voru orðnir örvæntingarfullir um framtíðina. Fiskveiðistjórnunar- kerfinu hafði verið breytt og allt stefndi í að þorpið færi í eyði. Fisk- urinn, sem tilvera þorpsins byggð- ist á, kom ekki lengur á land þar. Fólk missti vinnuna. Þetta gerðist vegna þess að togari þorpsins, sem var í eigu fiskvinnslunnar þar, fékk leyfi til að landa afla sínum annars staðar. Gjaldþrot var óumflýjanlegt og sendi þorpið inn í svartnættið. Þetta var staðan í Bugøynes í Norður-Noregi fyrir 30 árum. Hugsanlega sjá einhverjir ákveðna líkingu í þessu máli við þá stöðu sem stundum hefur komið upp í sjávarbyggðum hér á landi. Íbúarnir í Bugøynes brugð- ust við þessu með því að senda út neyðarkall. „Er einhver staður í sunnan- verðum Noregi sem gæti hugs- að sér fólksfjölgun upp á ca. 300 manns?“ Þetta vakti ekki bara athygli norskra fjölmiðla heldur einnig fjölmiðla víða um heim. En síðan kom innrásarherinn úr austri. Bugøynes er í aðeins um sjö kílómetra fjarlægð frá rússnesku landamærunum og stendur við sjóinn, hið risastóra Barentshaf. Þorpið er einnig kallað Pikku- Suomi (Litla-Finnland) því á nítj- ándu öld settust finnskir innflytj- endur þar að. Staðan í þorpinu var eins og fyrr segir grafalvarleg og það seg- ir sig sjálft að það er ekki góð staða þegar 40–50 manns eru á atvinnu- leysisskrá í ekki stærra byggðar- lagi. Eftir 80 vikna atvinnuleysi missti fólk bæturnar og örvænting greip um sig. Þá fékk það hug- mynd. Basar var haldinn og pen- ingum safnað. Þeir voru síðan not- aðir til að borga fyrir auglýsingu í dagblaðinu Dagbladet og þar birtist fyrrgreindur texti sem náði athygli heimsbyggðarinnar. Norska ríkisútvarpið segir að í auglýsingunni hafi komið fram að þorpsbúar vildu flytja saman eitt- hvert suður fyrir Þrændalög. En auglýsingin breytti svo sem ekki miklu, vinnan jókst ekki í þorp- inu og það gerði bjartsýnin held- ur ekki. Finnar buðu fram aðstoð sína enda hafði þorpið bjargað mörgum Finnum á nítjándu öld. En ekkert varð úr þeim hugmynd- um sem var varpað fram. Auglýsingin náði þó einu mark- miði þorpsbúa, að hrinda af stað umræðu um fiskveiðistefnuna og þau áhrif sem afnám skyldu stórra skipa til að landa fiski í ákveðnum byggðarlögum hafði. Þessi um- ræða er enn í gangi 30 árum síðar. Innrásin að austan Trillukarlar gerðu hvað þeir gátu til að bjarga sér og stunduðu út- gerð. Í upphafi tíunda áratugar- ins fóru þeir síðan að koma í land með ónýt net. Stór krabbategund var komin á svæðið og flæktist í netin og ruglaði menn í ríminu. Hér var um algjöra plágu að ræða, netin eyðilögðust og aflinn dróst saman. Þarna var komin krabba- tegund sem rússneskir vísinda- menn höfðu sótt í Kyrrahaf og sleppt við norðvesturhluta Rúss- lands. Nú var hún komin lengra vestur og það ekki í neinum smá hópum. Sumir höfðu áhyggjur af þessu og hugleiddu hvort krabbinn myndi ekki bara reka smiðshögg- ið á dauða byggðarlagsins. En það sem gerðist hafði engin séð fyrir eða getað ímyndað sér. Þorpsbúar höfðu heyrt að þessi krabbategund væri eftirsótt og því reyndu þeir fyrir sér í sölu hennar til veitingahúsa en salan var lítil, aðeins nokkur kíló hér og þar. En baráttuglaðir þorpsbúar gáfust ekki upp því þeir höfðu heyrt að þessi krabbategund, kóngakrabbi, væri eftirsótt víða í Evrópu og að veitingastaðir flyttu þá inn frá Alaska. Þeir sendu því prufu til stórs fiskveitingastaðar í Brussel og fylgdu málinu síðan eftir með að taka þátt í stórri matarhá- tíð í borginni. Þetta var upphafið að góðri sölu veitingastaðarins á kóngakrabba næstu árin. Þorps- búar höfðu fundið bjargvætt sinn. Nokkrir þorpsbúar fóru til Alaska til að læra af heimamönnum hvernig ætti að veiða krabbann og aðrir fóru til Asíu til að koma vör- unni í sölu þar. Mikil samkeppni er í sölu á kóngakrabba en hann er veiddur af stórum skipum eins og sjá má í sjónvarpsþáttunum „Deadliest catch“. Íbúarnir í Bugøya ákváðu að fara aðra leið og markaðssettu krabbann sem „Friendliest catch“. Saga þeirra af sjálfbærum veið- um á litlum bátum í hinu dimma og kalda umhverfi lengst í norðri vakti athygli og sló í gegn. Þeir gátu því selt krabbann á hærra verði en samkeppnisaðilarnir. Enn er því búið í Bugøya og veiðar á kóngakrabba stundaðar. Ef krabbinn hefði ekki komið eru flestir þorspbúar sannfærðir um að þorpið hefði lagst í eyði og þar væri nú aðeins sumarhúsabyggð. En nútíminn býður upp á meira en bara krabbaveiðar því ferða- menn eru farnir að leggja leið sína norður eftir og á veturna kemur töluverður fjöldi Asíubúa gagngert til að baða sig í ísköldu Barents- hafinu. n FRÉTTIR - ERLENT Áskriftarklúbbur DV Meðlimir áskriftarklúbbs DV framvísa aðildarkorti sem er í gildi hverju sinni til að nýta sér þau tilboð og fríðindi sem eru í boði hverju sinni fyrir áskrifendur DV. Áskriftarklúbbur Áskriftarklúbbskorti ð gildir til 31.12.201 8 Wizar lock Wizar lock Leður 239.900 kr. Áskriftarklúbbsverð 179.925 kr. Wizard lock Tau 199.900 kr. Áskriftarklúbbsverð 149.925 kr. T I L B O Ð DV O G VO G U E ÁSKRIFTARKLÚBBA- Tilboðið gildir til áramóta. F Y R I R H E I M I L I Ð Síðumúla 30 - Reykjavík / Sími 533 3500 Hofsbót 4 - Akureyri / Sími 462 3504 NEYÐARKALL Allt stefnir í að þorpið fari í eyði Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is „Vill einhver taka við okkur? Bugøynes Kóngakrabbinn breytti öllu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.