Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 16
16 7. desember 2018
Í
búarnir í litla þorpinu voru
orðnir örvæntingarfullir um
framtíðina. Fiskveiðistjórnunar-
kerfinu hafði verið breytt og allt
stefndi í að þorpið færi í eyði. Fisk-
urinn, sem tilvera þorpsins byggð-
ist á, kom ekki lengur á land þar.
Fólk missti vinnuna. Þetta gerðist
vegna þess að togari þorpsins, sem
var í eigu fiskvinnslunnar þar, fékk
leyfi til að landa afla sínum annars
staðar. Gjaldþrot var óumflýjanlegt
og sendi þorpið inn í svartnættið.
Þetta var staðan í Bugøynes
í Norður-Noregi fyrir 30 árum.
Hugsanlega sjá einhverjir ákveðna
líkingu í þessu máli við þá stöðu
sem stundum hefur komið upp í
sjávarbyggðum hér á landi.
Íbúarnir í Bugøynes brugð-
ust við þessu með því að senda út
neyðarkall.
„Er einhver staður í sunnan-
verðum Noregi sem gæti hugs-
að sér fólksfjölgun upp á ca. 300
manns?“
Þetta vakti ekki bara athygli
norskra fjölmiðla heldur einnig
fjölmiðla víða um heim. En síðan
kom innrásarherinn úr austri.
Bugøynes er í aðeins um sjö
kílómetra fjarlægð frá rússnesku
landamærunum og stendur við
sjóinn, hið risastóra Barentshaf.
Þorpið er einnig kallað Pikku-
Suomi (Litla-Finnland) því á nítj-
ándu öld settust finnskir innflytj-
endur þar að.
Staðan í þorpinu var eins og
fyrr segir grafalvarleg og það seg-
ir sig sjálft að það er ekki góð staða
þegar 40–50 manns eru á atvinnu-
leysisskrá í ekki stærra byggðar-
lagi. Eftir 80 vikna atvinnuleysi
missti fólk bæturnar og örvænting
greip um sig. Þá fékk það hug-
mynd. Basar var haldinn og pen-
ingum safnað. Þeir voru síðan not-
aðir til að borga fyrir auglýsingu
í dagblaðinu Dagbladet og þar
birtist fyrrgreindur texti sem náði
athygli heimsbyggðarinnar.
Norska ríkisútvarpið segir að í
auglýsingunni hafi komið fram að
þorpsbúar vildu flytja saman eitt-
hvert suður fyrir Þrændalög. En
auglýsingin breytti svo sem ekki
miklu, vinnan jókst ekki í þorp-
inu og það gerði bjartsýnin held-
ur ekki. Finnar buðu fram aðstoð
sína enda hafði þorpið bjargað
mörgum Finnum á nítjándu öld.
En ekkert varð úr þeim hugmynd-
um sem var varpað fram.
Auglýsingin náði þó einu mark-
miði þorpsbúa, að hrinda af stað
umræðu um fiskveiðistefnuna og
þau áhrif sem afnám skyldu stórra
skipa til að landa fiski í ákveðnum
byggðarlögum hafði. Þessi um-
ræða er enn í gangi 30 árum síðar.
Innrásin að austan
Trillukarlar gerðu hvað þeir gátu
til að bjarga sér og stunduðu út-
gerð. Í upphafi tíunda áratugar-
ins fóru þeir síðan að koma í land
með ónýt net. Stór krabbategund
var komin á svæðið og flæktist í
netin og ruglaði menn í ríminu.
Hér var um algjöra plágu að ræða,
netin eyðilögðust og aflinn dróst
saman. Þarna var komin krabba-
tegund sem rússneskir vísinda-
menn höfðu sótt í Kyrrahaf og
sleppt við norðvesturhluta Rúss-
lands. Nú var hún komin lengra
vestur og það ekki í neinum smá
hópum.
Sumir höfðu áhyggjur af þessu
og hugleiddu hvort krabbinn
myndi ekki bara reka smiðshögg-
ið á dauða byggðarlagsins. En það
sem gerðist hafði engin séð fyrir
eða getað ímyndað sér.
Þorpsbúar höfðu heyrt að þessi
krabbategund væri eftirsótt og því
reyndu þeir fyrir sér í sölu hennar
til veitingahúsa en salan var lítil,
aðeins nokkur kíló hér og þar. En
baráttuglaðir þorpsbúar gáfust
ekki upp því þeir höfðu heyrt að
þessi krabbategund, kóngakrabbi,
væri eftirsótt víða í Evrópu og að
veitingastaðir flyttu þá inn frá
Alaska. Þeir sendu því prufu til
stórs fiskveitingastaðar í Brussel
og fylgdu málinu síðan eftir með
að taka þátt í stórri matarhá-
tíð í borginni. Þetta var upphafið
að góðri sölu veitingastaðarins á
kóngakrabba næstu árin. Þorps-
búar höfðu fundið bjargvætt sinn.
Nokkrir þorpsbúar fóru til Alaska
til að læra af heimamönnum
hvernig ætti að veiða krabbann og
aðrir fóru til Asíu til að koma vör-
unni í sölu þar.
Mikil samkeppni er í sölu á
kóngakrabba en hann er veiddur
af stórum skipum eins og sjá má
í sjónvarpsþáttunum „Deadliest
catch“. Íbúarnir í Bugøya ákváðu
að fara aðra leið og markaðssettu
krabbann sem „Friendliest catch“.
Saga þeirra af sjálfbærum veið-
um á litlum bátum í hinu dimma
og kalda umhverfi lengst í norðri
vakti athygli og sló í gegn. Þeir gátu
því selt krabbann á hærra verði en
samkeppnisaðilarnir.
Enn er því búið í Bugøya og
veiðar á kóngakrabba stundaðar.
Ef krabbinn hefði ekki komið eru
flestir þorspbúar sannfærðir um
að þorpið hefði lagst í eyði og þar
væri nú aðeins sumarhúsabyggð.
En nútíminn býður upp á meira
en bara krabbaveiðar því ferða-
menn eru farnir að leggja leið sína
norður eftir og á veturna kemur
töluverður fjöldi Asíubúa gagngert
til að baða sig í ísköldu Barents-
hafinu. n
FRÉTTIR - ERLENT
Áskriftarklúbbur DV
Meðlimir áskriftarklúbbs DV framvísa
aðildarkorti sem er í gildi hverju sinni til að
nýta sér þau tilboð og fríðindi sem eru í boði
hverju sinni fyrir áskrifendur DV.
Áskriftarklúbbur
Áskriftarklúbbskorti
ð gildir til 31.12.201
8
Wizar lock
Wizar lock Leður 239.900 kr.
Áskriftarklúbbsverð 179.925 kr.
Wizard lock Tau 199.900 kr.
Áskriftarklúbbsverð 149.925 kr.
T I L B O Ð DV O G VO G U E
ÁSKRIFTARKLÚBBA-
Tilboðið gildir til áramóta.
F Y R I R H E I M I L I Ð
Síðumúla 30 - Reykjavík / Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri / Sími 462 3504
NEYÐARKALL
Allt stefnir í að þorpið fari í eyði
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is „Vill einhver
taka við okkur?
Bugøynes Kóngakrabbinn breytti öllu.