Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 47
Tómstundir og útivist 7. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Söngsteypan hjálpar
fólki að fylgja hjartanu
Söngsteypan var stofnuð árið 2006 af Heru Björk og síðan þá hefur skólinn stækkað hægt og
bítandi. Í dag eiga skólann með Heru
Björk þær Aldís Fjóla og Rósa Björg,
söng- og tónlistarkonur. „Það er góður
slatti af söngvurum sem hefur farið
í gegnum námskeiðin hjá okkur og er
alltaf jafn gaman að sjá árangurinn.
Það er ákveðinn fjöldi sem finnur sig vel
í söngnum og uppgötvar að sig langi að
halda áfram. Sumir taka fleiri námskeið,
einhverjir fara í kórastarf og aðrir á fullt
í það að syngja, semja og gefa út eigið
efni. Það er ótrúlega gefandi að horfa
upp á fólk fylgja hjartanu út í tónlistina,“
segir Hera Björk.
CVT afhjúpar leyndardóma
raddarinnar
Í Söngsteypunni er notast við tækni sem
nefnist Complete Vocal Technique (CVT).
CVT er ein útbreiddasta söngtækni í
Evrópu og hefur enn fremur hlotið mikið
lof á alþjóðavísu. Markmiðið er að fjalla
á skýran og skilvirkan hátt um röddina
og draga úr öllum leyndardómum
sem hafa oft á tíðum fylgt söng og
söngkennslu. Fær söngvarinn skýrar
leiðir til að vinna með sína rödd, ná
sínum markmiðum og finna sinn hljóm.
CVT nær yfir öll möguleg hljóð og
tónlistarstefnur. Rannsóknarniðurstöður
CVT hafa enn fremur sýnt fram á að
hægt er að framkalla grófa effekta á
heilbrigðan hátt með notkun tækninnar.
„Við segjum stundum að CVT sé „idiot
proof“ en það þýðir í raun að allir geta
nýtt sér tæknina. Það skiptir ekki máli
hvort söngvarinn sé byrjandi eða lengra
kominn, hvort hann syngi djass eða
dauðarokk. Þetta er aðferðafræði sem
hentar öllum og veitir verkfæri svo fólk
geti unnið áfram með sína rödd,“ segir
Hera Björk.
Hópnámskeið tryggja góðan árangur
Söngsteypan heldur fjölda námskeiða
sem má sækja, allt eftir áhuga hvers
og eins. Námskeiðin eru hóptímar þar
sem unnið er út frá einstaklingnum, getu
hans og því sem þarf að bæta hverju
sinni. „Við veljum oft fólk af mismunandi
getustigum saman í hópa enda höfum
við séð að það geta allir lært af öllum.
Því ólíkari sem hópurinn er, því meira
lærir fólk. Hinir lengra komnu læra því
alls ekki síður af byrjendunum,“ segir
Hera Björk. Kennarar Söngsteypunnar
bjóða einnig upp á einkatíma fyrir þá
sem vilja.
Fjöldi námskeiða í boði
Söngur og CVT er grunnnámskeið.
CVT er kynnt fyrir nemendum og þeim
leyft að máta sig við tæknina, læra að
nota hana og að lokum finna sína rödd.
Námskeiðið er kennt tvisvar í viku, aðra
hverja viku í þrjá mánuði, alls 48 klst.
Næsta námskeið byrjar 29. janúar 2019.
Í Söngur og sjálfstraust er farið
í sjálfstraust söngvarans á sviði og
skerpt á því ásamt því að vinna áfram
í söngröddinni. Námskeiðið er kennt
tvisvar í viku, aðra hverja viku í þrjá
mánuði, alls 48 klst. Næsta námskeið
byrjar 5. febrúar 2019.
Samsteypan er tveggja anna
nám, kennt í sjö lotum. Nemendur
vinna saman að því að þróast sem
tónlistarmenn, semja lög og texta,
útsetja, taka upp í stúdíói, vinna
í kynningarmálum, koma fram á
tónleikum og fleira og fleira. „Þetta
er allsherjar kynning á því hvernig
tónlistarbransinn virkar. Farið er
í hluti eins og frammistöðukvíða
og fullkomnunaráráttu, hvernig
maður kemur sér á framfæri á
samfélagsmiðlum, regluverk varðandi
útgáfu og fleira. Námskeiðið er tilvalið
fyrir þá sem langar að öðlast reynslu og
fá nasaþefinn af því að semja og gefa
út tónlist. Við höfum fengið ýmsa þekkta
tónlistarmenn sem gestakennara.
Meðal annars komu reynsluboltarnir
Ragga Gísla, Jónas Sig. og Emilíana
Torrini og sögðu reynslusögur úr
bransanum. Þau voru öll uppveðruð
eftir að hafa komið og sögðust hafa lært
helling af nemendunum alveg eins og
nemendurnir lærðu af þeim,“ segir Hera
Björk.
Tengslanetið
Hópstarfið hefur gefist afar vel hjá
Söngsteypunni og er tengslanetið
sem myndast milli nemenda ekki síður
mikilvægt en hið eiginlega söngnám.
„Það hafa orðið til traust vinabönd,
dúettar, tríó og heilu hljómsveitirnar út
frá námskeiðunum okkar og erum við
ótrúlega stolt af þessu afburðarfólki,“
segir Hera Björk.
Söngsteypan er staðsett að Síðumúla
29, 108 Rvk.
Sími: 649-0104 og 699-4463
Netpóstur: info@songsteypan.is
Heimasíða: www.songsteypan.is n