Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 41
Tómstundir og útivist 7. desember 2018 KYNNINGARBLAÐ
BADMINTON:
Ástsæl íþrótt fyrir unga sem aldna
Flestir Íslendingar, sem hafa einhvern tíma skellt sér í útilegu og spilað badminton á lygnu
sumarkvöldi í guðsgrænni náttúrunni,
vita hvað það er ánægjulegt að hitta
fluguna fullkomlega með tilheyrandi
„boing“ hljóði. Hér á Íslandi gefst
því miður ekki oft kostur á að spila
badminton úti, enda sjaldan nógu
lygnt, og ekki að ástæðulausu að
flugan nefnist einmitt fluga. En
badminton er líklega sú íþrótt sem
er hvað auðveldast að komast inn í
og ánetjast. „Þetta er skemmtilegt
sport sem hentar fólki á öllum
getustigum. Svo lengi sem þú getur
hitt fluguna með spaðanum þá ertu
að spila badminton,“ segir Jóhann
Kjartansson, yfirþjálfari hjá TBR.
TBR var stofnað árið 1938 og þann
4. desember síðastliðinn varð félagið
80 ára og haldið var upp á áfangann
með heljarinnar afmælisveislu. TBR
eða Tennis- og badmintonfélag
Reykjavíkur er staðsett að
Gnoðarvogi 1. „Við erum með tvö hús
í notkun. Annað húsið var byggt 1976
og eru þar fimm vellir. Árið 1987 var
félagið algerlega búið að sprengja
af sér litla húsið og var byggt nýtt og
stærra hús með 12 völlum. Nú erum
við með 17 velli fyrir badminton,“ segir
Jóhann. Með tilkomu badmintonhalla
eins og húsanna í Gnoðarvogi er
hægt að stunda þessa skemmtilegu
íþrótt allan ársins hring, hvernig sem
viðrar.
Námskeið og badmintonmót
TBR er í samstarfi við níu grunnskóla
í nágrenni félagsins. „Þá bjóðum við
4. bekk grunnskólakrakka að koma til
okkar á námskeið í badminton. Þetta
er gert fyrst og fremst til þess að
kynna íþróttina fyrir þeim og vekja
áhuga. Margir krakkar finna sig ekki
í þessum hefðbundnu hópíþróttum
eins og fótbolta eða handbolta, en
langflestir hafa virkilega gaman að
badminton,“ segir Jóhann. TBR býður
upp á barna- og unglinganámskeið
flesta daga vikunnar auk þess sem í
boði eru kvennatímar á þriðjudags-
og föstudagsmorgnum. Einnig eru
haldin badmintonmót á hverju ári.
„Það eru bæði fullorðinsmót og mót
fyrir börn og unglinga. Það er öllum
þátttakendum frjálst að skrá sig og
taka þátt í badmintonmótum en alls
engin nauðsyn,“ segir Jóhann.
Skemmtileg íþrótt fyrir unga sem
aldna
Margir eiga fastan tíma á velli einu
sinni til tvisvar í viku og mæta 2–4
saman og spila í fyrirfram ákveðinn
tíma. Einnig er hægt að leigja staka
tíma fyrir þá sem stunda sportið
ekki reglulega. „Það er gráupplagt
fyrir vinahópa að skella sér saman
í badminton í klukkutíma eða
fjölskyldur að eyða tíma saman og
spila þessa skemmtilegu íþrótt,“
segir Jóhann. Badminton er
stórskemmtilegt fyrir unga sem
aldna. „Við erum með félaga á öllum
aldri, allt frá sex ára aldri upp í 89
ára sem koma hingað reglulega og
spila,“ segir Jóhann.
„Þetta er töluvert frábrugðin
hreyfing en að mæta í ræktina, fara
út í göngutúr eða að synda. Hér
komast flestir auðveldlega í mikið
keppnisskap og það getur aldeilis
hitnað í kolunum. Þetta er auðvitað
allt í góðu og eru allir góðir vinir enda
er jafn mikilvægt að kunna að tapa
eins og að kunna að sigra,“ segir
Jóhann.
Gnoðarvogur 1, 104 Reykjavík
Sími: 581-2266
Netfang: tbr@tbr.is
Opnunartími: Mán.–fim: 8–23,
fös: 8–22:10, lau: 9–17.30 og sun:
9–16.50 n