Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 75

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Blaðsíða 75
KYNNING LG OLED sjónvörpin eiga sívaxandi í vinsældum að fagna hér á landi og eru í dag ein mest seldu OLED tækin á markaðnum. Erfitt hefur reynst að sýna fram á að önnur sjónvarpstækni standist samanburð í myndgæðum. LG er brautryðjandi í OLED sjónvarpstækni sem eru bestu mögulegu myndgæði í sjónvarpi í dag. Með yfir 1 milljarð litatóna og fullkomnum svörtum lit, en dýpri svartur skilar sér í margslungnari og betri litum. LG leggur auk þess áherslu á að sjónvörpin séu ekki lýti á rýminu heldur er mikið lagt upp úr glæsilegri hönnun. Nýjustu sjónvörpin frá LG eru stílhrein, örþunn og laus við þykkan ramma utan um skjáinn. Hnökralaus upplifun LG OLED færir þér allra bestu mögulegu sjónvarpsupplifun og styður allar HDR gerðir sem eru í boði með 4K upplausn. Byltingarkenndur og örþunnur OLED skjárinn hefur framúrskarandi a9 örgjörva ásamt Dolby Atmos þrívíddar hljóðkerfi. Heimsþekkti snjallnetvafrinn webOS 4.0 og Magic Remote fjarstýringin gera viðmótið notendavænna og tryggja hnökralausa upplifun í samskiptum við önnur tæki á heimilinu. Gífurleg skerpa og fullkominn svartur Fullkominn svartur dregur fram myndskerpuna og eykur möguleika myndefnisins svo um munar. Gífurleg myndskerpan bætir dýpt litanna, dregur smáatriðin og áferð myndefnisins fram í dagsljósið og framkallar þannig alvöru kvikmyndahúsastemningu. Munurinn sem einungis OLED tæknin getur skilað LG OLED sjónvörpin tryggja fullkominn svartan með 8 milljónum pixla, þar sem birtu hvers pixils er stýrt af nákvæmni. Hér eru fimm ástæður þess að LG OLED er rétta sjónvarpið fyrir þig: 1. Aðeins sjálflýsandi pixlar geta skapað fullkomna myndskerpu Stjörnurnar skína skærar á kolsvörtum himni. Aðeins OLED getur skapað slíka myndskerpu milli ljóss og myrkurs og fært þá upplifun heim í stofu. Engin önnur skjátækni getur fært þér sömu dýpt og jafndökkan skjá og OLED sjónvarpið þar sem hver einasti pixill stýrir sínu eigin ljósi. 2. Milljarður marslunginna og sannra lita Litir sem mæta fullkomnum svörtum í LG OLED verða enn bjartari en áður. Upplifðu hreina liti þökk sé einstakri OLED tækni sem stýrir birtustigi og lit af nákvæmni með því að styðja við hvern einstakan undirpixil. Það þýðir að þú getur séð yfir 1 milljarð litatóna. 3. Breiðasti HDR stuðningurinn, þar með talið Dolby Vision og Advanced HDR frá Technicolor HDR skjátækni LG styður bæði HDR10 og HLG og jafnvel eykur dýpt og hefðbundin myndgæði ramma fyrir ramma. Einnig styður það við meira krefjandi sniðmát eins og Dolby Vision og Advanced HDR frá Technicolor svo þú getir notið alls betra myndefnis sem í boði er í HDR. 4. Jafnir litir og áhorf sama frá hvaða sjónarhorni er horft Við sitjum ekki alltaf beint fyrir framan sjónvarpið. Þegar við bjóðum vinum í heimsókn til þess að horfa á leikinn eða viljum njóta kvikmyndar með fjölskyldunni ættu allir að geta séð bestu mögulegu myndgæði. OLED sýnir sömu litina án afbrigða jafnvel frá sjónarhornum sem venjuleg sjónvörp geta ekki valdið. 5. Snjallari örgjörvar LG fullkomna daglega áhorfsupplifun Að baki hverri fullkominni LG mynd liggur a9 snjallörgjörvinn sem eykur gæðin í öllu efni sem þú horfir á. Háþróuð Quad- Step myndsuðeyðing, aukin dýpt í smáatriðum og myndskerpu sem bætir myndina í skjánum. LG OLED sjónvörpin fást í Raflandi, Síðumúla 2 og á rafland.is Sími: 520-7900 Vefpóstur: sala@rafland.is Opið er alla virka daga frá 10–18 n LG OLED er rétta sjónvarpið fyrir þig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.