Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 62

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 62
62 7. desember2018FÓKUS Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is S offía Dögg Garðarsdóttir, blómaskreytingakona stofn- aði heimasíðuna Skreytum hús í september 2010. Síð- an þá hefur bæst við Facebook-síða og Facebook-hópur, auk þess sem fylgja má Soffíu Dögg á Snapchat (soffiadoggg). Soffía Dögg elskar að gera fallegt í kringum sig og leyfir hún fylgjend- um sínum að fylgjast með því sem hún er að gera, bæði á eigin heimili, í verslunum og hjá öðrum. Um jólin skapar Soffía Dögg sérstaka stemn- ingu og er búin að skreyta og undir- búa heimilið snemma. Öll herbergi hússins eru skreytt með ljósum, skrauti og greni. Soffía Dögg notar mikið hvítan lit, greni og köngla, og er heimilið eins og ævintýraveröld. Soffía Dögg deilir með lesendum borðskreytingu fyrir jólakaffiboð, eins og amma hennar útbjó áður fyrr. „Þegar ég var lítil stelpa þá var ein af jólahefðunum að fara í jóla- kaffiboð hjá ömmu Svövu á annan í jólum. Heitt kakó, kökur og kósíheit. Ég setti þetta kaffiborð upp svona í anda ömmu, henni til heiðurs,“ segir Soffía Dögg. „Ég notaði gömlu góðu jóladisk- ana sem ég held að margir geti fund- ið inni í skáp hjá mömmu og pabba, eða ömmu eða bara frænku, og mér finnst svo gaman að nota þá sem kökudiska eða sem forréttadiska á jólum. Með setti ég síðan Bing & Gröndahl kaffistellið. Með réttu ættu þetta að vera kakóbollar en við lítum fram hjá því í þetta sinn. Til þess að skreyta borðið notaði ég síðan grein- ar af Thuju frá Blómavali og trén fal- legu koma líka þaðan. Í stað þess að vera með kökudisk á fæti, þá setti ég bara viðarplatta, líka frá Blómavali, til þess að setja kökuna á og til þess að hækka annað tréð.“ „Ég er annáluð fyrir það hversu leiðinlegt mér þykir að vera í eld- húsinu, en mér finnst þó æðislegt að borða góðar kökur og ég skunda því ávallt í 17 sortir og kaupi þar eitthvað snilldarlegt og í þetta sinn bætti ég ofan á kökuna sleikjó og smotteríi í stíl við restina af borðinu. Dúkurinn er bara plastdúkur úr Rúmfó, sem er það allra besta þegar krakkar sitja til borðs, allt í góðu ef eitthvað sullast niður. Sömuleiðis koma servétturn- ar og diskamotturnar þaðan,“ segir Soffía Dögg. n „Heitt kakó, kökur og kósíheit í anda ömmu“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.