Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Page 62
62 7. desember2018FÓKUS
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is
S
offía Dögg Garðarsdóttir,
blómaskreytingakona stofn-
aði heimasíðuna Skreytum
hús í september 2010. Síð-
an þá hefur bæst við Facebook-síða
og Facebook-hópur, auk þess sem
fylgja má Soffíu Dögg á Snapchat
(soffiadoggg).
Soffía Dögg elskar að gera fallegt
í kringum sig og leyfir hún fylgjend-
um sínum að fylgjast með því sem
hún er að gera, bæði á eigin heimili,
í verslunum og hjá öðrum. Um jólin
skapar Soffía Dögg sérstaka stemn-
ingu og er búin að skreyta og undir-
búa heimilið snemma. Öll herbergi
hússins eru skreytt með ljósum,
skrauti og greni. Soffía Dögg notar
mikið hvítan lit, greni og köngla, og
er heimilið eins og ævintýraveröld.
Soffía Dögg deilir með lesendum
borðskreytingu fyrir jólakaffiboð,
eins og amma hennar útbjó áður
fyrr. „Þegar ég var lítil stelpa þá var
ein af jólahefðunum að fara í jóla-
kaffiboð hjá ömmu Svövu á annan í
jólum. Heitt kakó, kökur og kósíheit.
Ég setti þetta kaffiborð upp svona í
anda ömmu, henni til heiðurs,“ segir
Soffía Dögg.
„Ég notaði gömlu góðu jóladisk-
ana sem ég held að margir geti fund-
ið inni í skáp hjá mömmu og pabba,
eða ömmu eða bara frænku, og mér
finnst svo gaman að nota þá sem
kökudiska eða sem forréttadiska
á jólum. Með setti ég síðan Bing &
Gröndahl kaffistellið. Með réttu ættu
þetta að vera kakóbollar en við lítum
fram hjá því í þetta sinn. Til þess að
skreyta borðið notaði ég síðan grein-
ar af Thuju frá Blómavali og trén fal-
legu koma líka þaðan. Í stað þess að
vera með kökudisk á fæti, þá setti ég
bara viðarplatta, líka frá Blómavali,
til þess að setja kökuna á og til þess
að hækka annað tréð.“
„Ég er annáluð fyrir það hversu
leiðinlegt mér þykir að vera í eld-
húsinu, en mér finnst þó æðislegt að
borða góðar kökur og ég skunda því
ávallt í 17 sortir og kaupi þar eitthvað
snilldarlegt og í þetta sinn bætti ég
ofan á kökuna sleikjó og smotteríi í
stíl við restina af borðinu. Dúkurinn
er bara plastdúkur úr Rúmfó, sem er
það allra besta þegar krakkar sitja til
borðs, allt í góðu ef eitthvað sullast
niður. Sömuleiðis koma servétturn-
ar og diskamotturnar þaðan,“ segir
Soffía Dögg. n
„Heitt kakó, kökur
og kósíheit í anda
ömmu“