Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Side 25
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Iðnaður er unaður
Fyrir rúmlega ári fóru þeir bræður Þórir Már og Ármann Ingi Ingva-synir í rekstur á flutningafyrir-
tækinu Ingvasynir. „Við byrjuðum í raun
bara á tveimur jafnsterkum, en svo vatt
þetta fljótt upp á sig. Næst fjárfestum
við í vörubíl og svo „pickup“. Við höfum
aldrei farið fram úr okkur enda erum við
varkárir í eðli okkar. En á rúmu ári höf-
um við stækkað ótrúlega mikið vegna
þess að menn hafa hent reiður á hvað
við erum traustir og snöggir að leysa
verkefni,“ segir Þórir.
Flytja allt milli himins og jarðar
Ingvasynir eru þekktir fyrir fagleg og
vönduð vinnubrögð og gefa fast verð
í alla flutninga. Þeir taka að sér hvers
kyns flutninga, hvort heldur er á bílum
eða öðrum hlutum, hvert á land sem
er. Þeir bræður búa enn fremur yfir
margra ára reynslu í akstri úti á landi.
„Okkar aðalstofnæð eða grunn-
rekstur er í bílaflutningum, en við
getum í raun flutt næstum hvað sem
er. Við höfum yfir að ráða vörubíl með
úrvali af vögnum og tvo „pickupa“ með
vagna. Þannig að við höfum líka verið
í malarflutningum, flutningi á ýmiss
konar vinnuvélum og mörgu fleiru,“
segir Þórir.
Lítið en lipurt flutningafyrirtæki
Ingvasynir er ekki stórt fyrirtæki, en
samt sem áður er ekkert verkefni of
stórt fyrir þá. „Við erum í samstarfi við
fjöldann allan af öðrum fyrirtækjum
og erum alltaf tilbúnir í samstarf við ný
fyrirtæki. Ef svo fer að viðskiptavinur
kemur með verkefni til okkar sem við
sjáum okkur ekki fært að framkvæma
vegna tíma eða annars, þá veitum við
þeim verkefnum í öruggan farveg til
réttra aðila. Okkar mottó er að leysa
öll verkefni eins hratt, lipurlega og vel
og unnt er, með öllum nauðsynlegum
leiðum,“ segir Þórir.
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebook-síðunni Ingvasynir ehf. Bíla-
flutninga og Verktakaþjónusta
Sími: 866-7739 n
INGVASYNIR:
Flytja hvað sem er
hvert á land sem er