Dagblaðið Vísir - DV - 11.01.2019, Side 31
Iðnaður er unaður 11. janúar 2019 KYNNINGARBLAÐ
Fyrirtækið Ísgel ehf., var stofnað þann 5. júlí 1999 og núverandi eigendur keyptu það í mars árið
2008. Þeir eru Gunnar K. Ólafsson,
Kristín I. Lárusdóttir, Zophonías Ari Lár-
usson og Katrín Benedikstdóttir. Aðal-
framleiðslan er gelmottur sem notaðar
eru til að viðhalda kælingu á ferskum
matvælum og þá aðallega fiski sem
fluttur er út ferskur með flugi.
Gelmotturnar hjá Ísgel eru framleidd-
ar í nokkrum stærðum á lager og einnig
hafa verið framleiddar stærðir til þess
að sinna sérstökum þörfum viðskipta-
vina. Síðustu ár hefur orðið stigvaxandi
aukning á sölu á kælimottum hjá fyrir-
tækinu samfara auknum útflutningi á
ferskum sjávarafurðum.
Einnig framleiðir Ísgel vörur sem
tilheyra svokallaðri heilsulínu en það eru
pokar sem hægt er að nota bæði kalda
og heita og eru notaðir við meðhöndl-
un á margs konar eymslum, til dæmnis
vöðvabólgu, íþróttameiðslum og mörgu
fleiru, heilsulínan er seld í apótekum um
land allt.
Zophanías Ari, einn af eigendunum,
segir síðan þá hugmynd hafa kviknað
að fara að keyra vörur til viðskiptavina
og efla tengsl við þá. „Eftir að við fórum
að keyra flutningabílinn á milli var mikil
eftispurn eftir öðrum flutningi, þá bætt-
um við við okkur flutningabíl sem varð
svo til þess að við settum á laggirnar
annað félag sem heldur utan um flutn-
ingastarfsemina ásamt vélaleigu með
minigröfu og skotbómulyfturum,“ segir
Zóphanías, sem tekur fram að vel hafi
verið tekið í þjónustuna og að viðskipti
hafi alltaf verið að aukast.
„Við erum að fara svona 3–4 sinnum
í viku á milli Blönduóss og Reykjavík-
ur, að meðaltali,“ bætir hann við. „Sú
ímynd sem fyrirtækið vill halda á lofti
er góð íslensk vara sem stenst kröfur
viðskiptavina hvað varðar gæði og verð.
Fyrirtækið kappkostar því að þjónusta
viðskiptavini sína eftir þörfum og óskum
hvers og eins, eins og kostur er.“ n
Heilsulína, glermottur og
betri tengsl við viðskiptavini