Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Side 22

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Side 22
E l í n B j ö r k J ó h a n n s d ó t t i r 22 TMM 2013 · 3 Þegar móðirin hættir að elda undirstrikar það að borðhaldið sameinar ekki fjölskylduna og móðirin tengist ekki aftur við hina nærandi fæðu fyrr en dauðadómur föðurins nálgast. Í gegnum bókina er móðirin andhverfa föðurins og hans mikla líkama. Líkami móðurinnar er lítið sýndur á teikningunum; hún er ýmist hokin, með krosslagða arma eða hulin á annan hátt. Á mörgum myndunum nær líkami hennar bara upp á blaðsíðuna frá bringu og ekki sést votta fyrir kvenlegum línum hjá henni. Birtingarmynd móðurinnar er andstæð þeirri sem birtist á gamalli ljósmynd af foreldrunum að dansa. Ljósmyndin á veggnum er eina myndin af móðurinni þar sem líkami hennar er áberandi. Líkami föðurins á þessari sömu mynd er bæði minni og minna áberandi en þar sem hann birtist klæddur jakkafötum yfir röndóttu nærbuxurnar sem hann klæðist einum fata þegar líður á söguna. Þessi ljósmynd af foreldrunum einsog þau voru sýnir að þau hafa að vissu leyti skipt um hlutverk þegar kemur að hinu líkamlega, líkami móðurinnar er varla til staðar en líkami föðurins í for- grunni. Hin persónan sem sýnir mót- þróa gagnvart mannætuhættunni er Berta bleika. Hún reynist vera barn mannæta einsog systkinin. Berta hafði, einsog systkinin, reynt að láta foreldra sína hætta mannátinu en þau höfðu meðal annars lagst á vinkonur hennar. Fyrstu viðbrögð hennar við mannáti foreldranna voru að leggja önnur börn í einelti. Ofbeldið sem hún beitir er afleiðing af ofbeldinu og ógninni sem hún þarf sjálf að búa við. Síðan hætti hún „alveg að borða líka“ (bls. 118). Berta snýst gegn áti foreldra sinna með því að svelta sig. Þessi viðbrögð Bertu eru ekki hungurverkfall heldur sjúkdómurinn lystar- stol. Berta þróar með sér afbrigðilegt viðhorf og venjur þegar kemur að mat, rétt eins og foreldrar hennar. Lystarstol hefur verið túlkað „út frá kenn- ingum Freuds og álitin bein tengsl á milli lystarstols og kynhvatar kvenna. […] Sveltið er þá eins konar örþrifaráð stúlkunnar til að stemma stigu við umbreytingu líkamans, afturkalla það að verða kona“ (Ragna Garðarsdóttir 1998:115). Á bak við lystarstolið er hræðsla við kynferði og þroska og það er flóttaleið frá breytingum, líkamlegum sem andlegum, sem fylgja kynþrosk- anum. Tenging lystarstols við mannátið er því einnig á því táknræna sviði
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.