Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Page 75

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Page 75
„ … h v e Í s l a n d s a u ð n e r s t ó r“ TMM 2013 · 3 75 Hughrifin eru handan allra marka mannlegrar skynsemi, þau eru á öðru sviði. Yfirþyrmandi máttur vatnsins, kraftur þessarar voldugu höfuðskepnu smýgur inn í sálina, flekarnir sem þeytast fram af klettabrúninni og springa og sundrast í fallinu, koma róti á tilfinningar þess sem verður vitni að þessu vitlausa og tilgangslausa sjónarspili. Og það er einmitt lóðið: þessi tryllingur er með öllu vit- og tilgangslaus. Hann þjónar sem slíkur engum hagnýtum tilgangi, – í þúsundir ára þeytist vatnið með tryllingi fram af bjargbrúninni, án þess að þetta hamsleysi hafi nokkurn skiljanlegan tilgang. *** Dettifoss, hinn ókrýndi konungur íslenskra fossa, blés á sínum tíma þremur merkum skáldum kvæði í brjóst. Ungur vinnumaður á Hólsfjöllum, Kristján Jónsson, kom að foss- inum skömmu eftir miðja 19du öld og orti um hann kvæði, sem birtist í Reykjavíkurblaðinu Íslendingi í október 1861. Kvæðið vakti mikla hrifningu lesenda sem vildu ekki aðeins vita, hver ljóðasmiðurinn væri, heldur líka hver fossinn væri sem hefði blásið skáldinu þennan tilkomumikla kveðskap í brjóst. Á þessum tíma var fossinn í auðninni nánast óþekktur, enda ekki jafn aðgengilegur og hann er á okkar tímum. Þar sem aldrei á grjóti gráu gullin mót sólu hlæja blóm og ginnhvítar öldur gljúfrin háu grimmefldum nísta heljarklóm kveður þú foss, minn forni vinur með fimbulrómi sí og æ. Undir þér bergið sterka stynur sem strá í nætur kuldablæ. Skáldið finnur til samkenndar með fossinum sem fellur fram af bjarg- brúninni og kveður með sínum fimbulrómi sí og æ; hljómfall fossins er kveðandi sjálfrar náttúrunnar sem blæs skáldinu kvæði í brjóst. Fossinn kveður um kappa sem eitt sinn riðu um grundir en eru löngu fallnir í valinn. Kveður þú ljóð um hali horfna Og hetjulíf á fyrri öld. Talar þú margt um frelsið forna og frægðarinnar dapra kvöld. Fossniðurinn vekur hjá skáldinu hugrenningar um fornar hetjur og frelsið sem ríkti í heimalandi þess til forna, þess tíma þegar menn báru höfuðið hátt og voru sjálfum sér ráðandi í frjálsu landi. Með hrynjandi sinni vekur fossinn skáldið líka til umhugsunar um fall-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.