Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 118

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 118
Á r n i Þ ó r S i g u r ð s s o n 118 TMM 2013 · 3 þegar Jeltsín fór frá völdum og Vladímír Pútín tók við. Um aldamótin birtist stjórnin í Moskvu sem sundruð og vanmegnug til þess að hafa áhrif í alþjóðamálum, koma málum á dagskrá, en með Pútín sem forseta var eins og Rússlandsstjórn hefði öðlast nýjan kraft. Þá var liðinn tími hins ringlaða og hífaða forseta sem gaf þá mynd að Rússland væri skjögrandi, nú var festa og ákveðni komin í forystu þessa mikla ríkis. Þó hefur því verið haldið fram af fræðimönnum, t.d. Bobo Lo, áströlskum prófessor í málefnum Rússlands, að breytingin frá Jeltsín til Pútíns hafi ekki endilega varðað innihald utan- ríkisstefnunnar, heldur fremur stíl. Meginatriði í stefnu Jeltíns hafi verið eins konar goðsagnasköpun, geopólitísk hugsun og vesturlandasækni hafi enn verið til staðar hjá Pútín, en með nokkurri andlitslyftingu.9 Meginmarkmið Pútíns var að gera Rússland (aftur) að stórveldi á alþjóða- vísu, nútímalegt stórveldi sem byggði stöðu sína ekki bara á hernaðarmætti heldur einnig og ekki síður á efnahagslegum styrk. Hann vildi að utan- ríkisstefnan þjónaði innanríkispólitískum markmiðum, ekki síst efnahags- legum, og á þann hátt vildi hann skapa Rússlandi á nýjan leik sterka stöðu á alþjóðavettvangi, eins konar comeback.10 Til þess að það tækist varð Pútín að einbeita sér að efnahagslegum umbótum og árangri, m.a. í að auka erlenda fjárfestingu, taka á spillingu, takast á við olígarkana og sjá til þess að auðurinn sem hafði safnast á þeirra hendur undir stjórn Jeltsíns, dreifðist með jafnari hætti meðal landsmanna. Því hefur verið haldið fram að þetta hafi í raun ekki tekist og jafnvel að Pútín hafi reynst ófær um að endur- skipuleggja efnahaginn, stjórnmálin og félagslega kerfið í því augnamiði að hámarka möguleika til að ná árangri í utanríkis- og öryggismálum.11 Þegar Pútín tók við embætti forseta var Ígor Ívanov utanríkisráðherra, en hann var þriðji maðurinn í því embætti á valdatíma Jeltsíns og hélt því embætti á fyrsta kjörtímabili Pútíns. Þá var mótuð sérstök utanríkisstefna, Konceptsija vnjeshnej politiki Rossijskoj Federacii, og þar er m.a. lögð áhersla á þátttöku Rússlands í því sem kallað var mótun nýs heimsskipulags (r. form- irovanie novogo miroustrojstva). Með því er m.a. vísað til þess að þættir sem varða efnahag, pólitík, umhverfi, vísindi og tækni og upplýsingar, leiki stórt hlutverk í samstarfi þjóða, líka á hernaðarsviðinu.12 Varnar- og öryggismál fengu sem sagt drjúgan sess í utanríkisstefnunni, og meira en það, þau fléttuðust órjúfanlega saman. Fyrsta kjörtímabil Pútíns sem forseta einkenndist af eindregnum vilja hans til að eiga gott og náið sam- starf við Vesturlönd. Árásin á Tvíburaturnana í New York 2001 var honum kærkomið tækifæri í þessu sambandi, hann lýsti yfir fullum stuðningi við Bandaríkin og bauð fram alla þá aðstoð sem Rússland gæti veitt í baráttunni við hryðjuverkasamtök. En hér var ekki eingöngu á ferðinni umhyggja fyrir Bandaríkjunum, undir steini lá sá fiskur að alþjóðasamfélagið þyrfti að viðurkenna baráttuna gegn aðskilnaðarsinnum í Tsjétsjéníu sem hluta af þeirri baráttu. Að einhverju leyti dró úr gagnrýni vestanhafs á aðgerðir Rússlands í Tsjétsjéníu en það stóð ekki lengi og fyrr en varði hljóp snurða
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.