Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Side 133

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Side 133
Á d r e p u r TMM 2013 · 3 133 langri lotu sem ekki fæst með því að dreifa tónleikunum á nokkra daga? Heildarflutningur verka af tiltekinni gerð er í sjálfu sér ekki nýlunda í tón- leikahaldi. Með slíku móti fæst áhuga- verð yfirsýn yfir tónatak höfundar og þróun allt frá bernskubrekum til síð- verka. Sinfóníuhljómsveitir leika gjarn- an „Beethoven-hringi“ eins og þann sem Sinfóníuhljómsveit Íslands efndi til fyrir skemmstu en þá er viðburðum dreift yfir lengri tíma, jafnvel heilt tón- leikaár. Bandaríski strengjakvartettinn Pacifica, sem hefur Sigurbjörn Bern- harðsson fiðluleikara innan sinna raða, hefur flutt alla kvartetta Shostakovitsj margoft, til dæmis á tónlistarhátíð í Montreal 2012 þar sem tónleikunum var dreift á fjögur samliggjandi kvöld.4 En nær viðstöðulaust tónleikahald í 12 klukkustundir er eitthvað annað og meira. Slíkan viðburð má flokka sem úthaldslist, sbr. úthaldsíþróttir eða end- urance sports: ofurmaraþon eða jafnvel „járnkarl“ (Ironman) þar sem synt er, hjólað og hlaupið í ofurvegalengdum. Markið er sett svo hátt að listamaðurinn þarf að taka á öllu sínu, úthaldi, einbeit- ingu og líkamskröftum, langt umfram það sem áður hefur þótt fullgott. Á maraþontónleikum fara bæði flytjendur og áheyrendur í hlutverk ofurhetju, stefna upp ókleifan hamarinn og stan- dast þolraunina með glæsibrag ef að líkum lætur, hafa sigrast á sjálfum sér þegar upp er staðið. Væntanlega kallar slík nálgun á aðrar hlustunarvenjur og skapar annars konar upplifun en þegar um skemmri tónleika er að ræða. Úthaldslist og hugleiðsla Skammt er á milli maraþontónleika og gjörningslistar, ekki síst þess sem ser- bneska listakonan Marina Abramović hefur kallað „long-durational art“ eða lengdargjörninga. Slíkar uppákomur hafa verið nokkuð áberandi síðustu ár. Árið 2010 var efnt til gjörnings í Borgar- leikhúsinu þar sem Rannsóknarskýrsla Alþingis var lesin upp í heilu lagi. Allt starfsfólk leikhússins tók þátt í lestrin- um sem varaði í 146 klukkustundir. Fyrr á þessu ári hélt Stefán Pálsson sagnfræðingur þrettán og hálfrar klukkustundar langan fyrirlestur um teiknimyndasögurnar um Sval og Val til að minnast 75 ára afmælis sagnaraðar- innar. Í verki Ragnars Kjartanssonar, Bliss, kemur tónlist við sögu. Tveggja mínútna kafli úr lokaatriði óperunnar Brúðkaup Fígarós eftir Mozart er sung- inn án afláts í 12 klukkutíma. Við flutn- inginn, á myndlistartvíæringnum Per- forma 11 í New York árið 2011 var þó tekið fram að áhorfendum væri frjálst að koma og fara að vild.5 Allnokkur tónskáld á 20. og 21. öld hafa samið ógnarlöng tónverk sem reyna á úthald flytjenda jafnt sem áheyrenda. Nefna má bandarísku höfundana Mor- ton Feldman og John Cage, sem samdi til dæmis verkið Organ²/ASLSP. Skammstöfunin stendur fyrir „As SLow aS Possible“ enda tók það rétt tæpar 15 klukkustundir þegar það var flutt í heild árið 2009. Þar sem hvergi er í nótunum að finna nákvæm tilmæli um hraða eða lengd þagna milli nótnanna hafa sumir flytjendur gengið enn lengra. Í kirkju einni í Halberstadt í Þýskalandi hófst flutningur verksins árið 2000 og er áformað að það vari næstu 639 árin.6 Verk þeirra Feldmans og Cage eru á sinn hátt naumhyggjumúsík sem skapar hjá hlustandanum eins konar zen- ástand. Maður hverfur inn í aðra veröld, týnir stund og stað. En ekki er öll tónlist eins. Kvartettar Shostakovitsj eru átakamikil verk sem miðla sterkum og djúpum tilfinningum af ólíku tagi, gleði og kátínu, sorg og kvíða. Hafi eitthvert tónskáld í gervallri
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.