Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Page 136

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Page 136
136 TMM 2013 · 3 Úlfhildur Dagsdóttir Siglingarleiðir frásagnarinnar Álfrún Gunnlaugsdóttir, Siglingin um síkin, Mál og menning 2012 „og ég gat komið því að, að ég drægi í efa kenningu hans um að öllu væri hægt að breyta í sögu, að í meðförum manneskj- unnar yrði allt sem gerðist að sögu og þar af leiðandi líf manns sjálfs“ (221–222). Hvaða hlutverki þjónar frásögnin og hverskonar fyrirbæri er þessi frásögn eiginlega? Heimspekingurinn Richard Kearney heldur því fram að það að segja sögur sé jafnmikil grunnþörf manneskj- unnar og það að borða. Jafnvel enn frek- ar, heldur hann áfram: maturinn heldur vissulega í okkur lífi en sögurnar gera hins vegar lífið þess virði að lifa því.1 Frásagnarfræðingar hafa leyst frásögn- ina upp í ótal liði með tilheyrandi flók- inni hugtakanotkun; greining þeirra beinist fyrst og fremst að frásögninni sem skáldskap, að frásögnin beri í sér skáldskap að því leyti að hún fylgi ákveðnum reglum, formúlum. Póstmód- ernistinn Jean-François Lyotard lagði grunninn að kenningarheimi póstmód- ernismans með greiningu sinni á þætti frásagnar í þekkingu; öll okkar þekking byggist á frásögum og er því háð lög- málum skáldskaparins, færð í form.2 Bókmenntafræðingurinn Linda Hutc- heon yfirfærði þetta á líf manneskjunn- ar; að fólk skynjaði líf sitt sem sögu, færði tilveru sína í form frásagnar og gæddi hana þar með merkingu.3 Kenningar á borð við þær sem hér eru raktar eru ekki að skapi Gyðu, sögu- konu og aðalpersónu skáldsögu Álfrún- ar Gunnlaugsdóttur, Siglingin um síkin, eins og fram kemur í tilvitnuninni hér í upphafi. Í framhaldi af þessum orðum hennar segir svo: „Eins og að líkum lætur var Önundur á öndverðum meiði, hélt því fram að með því að segja frá seinustu áratugum ævi sinnar […] væri óhjákvæmilegt að gefa frásögninni form sögu. Ekkert yrði skýrt eða skilið nema það hefði form“ (222). Önundur er því greinilega fulltrúi þeirra hugmynda sem gefa frásögninni sem slíkri merkingar- bært vægi. Hann er þó ekki sá eini, því þrátt fyrir höfnun sögukonunnar ber skáldsagan stöðugt vitni inngrips frá- sagnarinnar í líf fólks. Meðal annars er samband þeirra tveggja, Gyðu og Önundar, einmitt byggt á sögum. Þar sem Gyða er gift héldu þau sambandinu leyndu, fóru lítið út en lágu þess í stað í rúminu: „… sögðum hvort öðru sögur sem við bjuggum til jafnóðum og keppt- um um hvort okkar segði betur frá“ (175). Og þegar fundum þeirra ber saman á ný, áratugum síðar, þá hefjast samskiptin einmitt á því að þau segja hvort öðru sögur. Þessir endurfundir eru hreyfiafl framvindu skáldsögunnar en í kjölfar þeirra hefst ferðalag sögu- konunnar Gyðu um gloppóttar minn- ingar úr fortíðinni, auk þess sem hún reynir að takast á við sinn daglega veru- leika sem einnig er á stundum ókenni- legur. Álfrún hefur áður fjallað um tengsl frásagna og minninga í stríðssögunni Yfir Ebrofljótið (2001), en segja má að könnun á fyrirbærinu frásögn sé einnig grunnþáttur í skáldsögum hennar D ó m a r u m b æ k u r
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.