Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 140

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 140
D ó m a r u m b æ k u r 140 TMM 2013 · 3 Hæfilegt ójafnvægi Sagan sem okkur er sögð í Siglingunni um síkin er margbrotin og samansett, en þó í raun einföld og skýr. Að mörgu leyti má segja að forsmekkurinn að henni komi fram snemma í bókinni, þegar Gyða lítur í kringum sig á heimili Sölva: Borðstofu Sölva hefur verið breytt í vistarveru handa mér, þess vegna er allt í hrópandi ósamræmi. Ég á sjálf borð- stofuborðið með stólunum sex […]. Ég á líka skrifborðið í horninu við gluggann, en það rímar hvorki við núverandi borð- stofuborð né buffetið sem fyrir var í herberginu […]. Buffetið er nytsamlegt til margra hluta. Bakvið glerið er til að mynda pláss fyrir alls konar muni úr postulíni sem ég á og mér þykir vænt um. Hillur sem standa milli gluggann eru í stíl við borðstofuborðið hans Sölva, sem nú er frammi í stofu, og þar hefur verið raðað ósamstæðum glösum, könnum, kertastjökum og meira að segja brennivínspela. Þessir hlutir virka framandi á mig. Rúmið mitt er kapítuli út af fyrir sig og æpir eitt og sér á allt annað sem er hér innan veggja. Þetta er nýtískulegt rúm sem hægt er að hækka og lækka að vild og gera við alls kyns hundakúnstir sé maður svo lánsamur að kunna á það. (14–15) Buffetið á sína sögu sem tengist fyrri eiginkonu Sölva og þannig er allt umhverfið búið til úr sögum, alveg eins og skáldsagan sjálf. Þessar sögur geta virst ósamstæðar eins og húsgögnin og eru það: „Ég sný mér við og læt augun líða yfir borðstofuna sem orðin er her- bergið mitt. Hér æpir hver hlutur á annan og ekkert samræmi í neinu. Það vekur hjá mér visst öryggi. Nú er svo komið að mér líður ekki vel nema hæfi- legt ójafnvægi ríki kringum mig“ (12). Það er einmitt í þessu ójafnvægi sem galdurinn er fólginn, að viðhalda því og skapa úr því furðulegt jafnvægi saman- safnaðra minninga og gleymsku, sam- fellu í tíma og samhverfu ólíkra menn- ingarheima. Rödd söguhöfundar segi undir lok verksins, eftir frásögn Bjargar af vináttu hennar og Hallgríms: „Það hefur greiðst úr þokunni og sér til lands og gondóllinn hefur skipt um stefnu. Hann nær bráðum landi“ (217). Hér er enn á ný talað til hins innbyggða les- anda og hann róaður niður: allt gengur vel. En strax í næstu efnisgrein er þess- ari fullvissu kollvarpað: „Eftir heim- sóknina til Bjargar var líkt og fótunum hefði verið kippt undan mér, ég fékk lungnabólgu og lá allar hátíðirnar fram í janúar. Hiti og óráð tóku völdin um skeið“ (217). Óreiðan tekur því aftur völdin, einmitt þegar allt virtist komið í röð og reglu og orðin í upphafi verksins, um öryggi ójafnvægisins, hljóta að koma aftur upp í hugann. En eftir veikindin rís Gyða upp á ný og er nú albúin að takast á við það sem fyrir ber.6 Það er á þessum tímapunkti sem hún deilir við Önund um hlutverk sögunnar með fyrr- greindri yfirlýsingu um að hún dragi „í efa kenningu hans um að öllu væri hægt að breyta í sögu, að í meðförum mann- eskjunnar yrði allt sem gerðist að sögu og þar af leiðandi líf manns sjálfs“ (221– 222). Önundur heldur hinsvegar fast við þá hugmynd sína að „Ekkert yrði skýrt eða skilið nema það hefði form“ (222). Þessi átök um hlutverk frásagnarinn- ar ganga, eins og fram hefur komið, í gegnum alla skáldsöguna og er einn af þeim ásum sem hún snýst um. Annars- vegar er lesanda stöðugt boðið upp á lýsingar sem draga fram siglingarleiðir frásagnarinnar og gefa efnistökunum form, hinsvegar eru athugasemdir sem grafa undan öllum þeim fræðilegu vangaveltum um hlutverk sögunnar (og hugtökum og hlutverkum frásagnar- fræðinnar) sem hér hafa verið reifaðar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.