Morgunblaðið - 28.02.2019, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Frá kr.
179.99524. apríl í 16 nætur
BENIDORM 60+
Okkar vinsæla ferð eldri borgara
Frá kr.
179.99510. maí í 14 nætur
Gist á Hotel Melia Benidorm ****
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
365 miðla á 100% hlutafjár í Póst-
miðstöðinni í júlí 2018 var haft eftir
Haraldi Johannessen, fram-
kvæmdastjóra Árvakurs og rit-
stjóra Morgunblaðsins, að þróunin
erlendis væri sú að dagblöð sam-
nýttu dreifikerfi til að takast á við
erfiðar markaðsaðstæður.
„Hér á landi er ekki síður þörf á
að fara þessa leið þegar haft er í
huga að íslenski fjölmiðlamark-
aðurinn er smár, hann býr við
mikla erlenda samkeppni, auk
harðrar samkeppni við um-
svifamikið ríkisfyrirtæki,“ sagði
Haraldur.
dreifingu Morgunblaðsins og
Fréttablaðsins nú vera hafna.
„Við byrjuðum í síðustu viku að
sameina dreifinguna og hefur þetta
gengið vel hingað til. Það hafa þó
komið upp einhverjir hnökrar, líkt
og búast má við þegar svona um-
fangsmiklar breytingar taka gildi.
Verði áskrifendur fyrir einhverjum
óþægindum vil ég hvetja þá til að
hafa samband við þjónustuver Ár-
vakurs – við erum alltaf reiðubúin
að bregðast við ábendingum áskrif-
enda okkar,“ segir María Lilja.
Þegar tilkynnt var um und-
irritun kaupsamnings Árvakurs og
„Með þessum kaupum erum við að
bæta enn frekar þjónustu okkar
við áskrifendur og um leið tryggja
að þeir fái Morgunblaðið fyrr inn
um lúguna,“ segir María Lilja Mo-
ritz Viðarsdóttir, þjónustustjóri
Árvakurs, og vísar í máli sínu til
kaupa Árvakurs, útgáfufélags
Morgunblaðsins, mbl.is og K100, á
51% eignarhlut í Póstmiðstöðinni.
Fyrir var Póstmiðstöðin dreif-
ingaraðili Fréttablaðsins og fara
nú 365 miðlar, eigandi Torgs ehf.
útgáfufélags Fréttablaðsins, með
49% eignarhlut í Póstmiðstöðinni.
María Lilja segir sameinaða
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hádegismóar María Lilja Moritz Viðarsdóttir, þjónustustjóri Árvakurs, segir breytingarnar bæta enn þjónustu.
Sameiginleg dreifing
blaðanna er nú hafin
Árvakur og 365 miðlar eigendur Póstmiðstöðvarinnar
Fjölskylda og vinir Jóns Þrastar
Jónssonar, sem hvarf sporlaust í
Dublin 9. febrúar, binda miklar
vonir við að ábendingar sem lög-
reglan er að vinna eftir verði til
þess að írskar björgunarsveitir
verði kallaðar út til að leita Jóns.
Fjölskyldan átti stöðufund með
írsku lögreglunni í gær. „Staðan er
nákvæmlega sú sama og síðustu
daga. Þeir eru ennþá að vinna úr og
sannreyna ábendingar,“ segir Dav-
íð Karl Wiium, bróðir Jóns.
Hann segir að fjölskyldan ætli að
sýna þolinmæði út daginn í dag. „Ef
það er ekkert að gerast þá skipu-
leggjum við stóra leit aftur,“ segir
Davíð. Leitin myndi fara fram í
næstu viku eða nálægt þarnæstu
helgi og yrði með svipuðu sniði og
umfangsmikil leit sem gerð var að
Jóni síðasta laugardag.
„Staðan er sú sama og síðustu daga“
Formaður efnahags- og viðskipta-
nefndar Alþingis sakaði þingmenn
Miðflokksins um að vinna gegn því
að hér yrði fjölbreytni í fjárfestahópi
ríkisskuldabréfa sem hann segir að
myndi auka stöðugleika, bæta að-
gang ríkissjóðs að fjármagni til
lengri tíma og stuðla að lægri fjár-
mögnunarkostnaði. Þeir vinni gegn
því að hér verði umhverfi sem geri
ríkissjóði kleift að stunda lánastýr-
ingu eins og viðgengst á hinum
Norðurlöndunum.
Kom þetta fram hjá Óla Birni
Kárasyni í umræðum um frumvarp
fjármálaráðherra um meðferð
krónueigna sem háðar eru sérstök-
um takmörkunum.
Verðlauna „eftirlegukindur“
Þingmenn Miðflokksins hafa hald-
ið uppi málþófi í 2. umræðu um frum-
varpið síðustu daga. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður
flokksins, sagði í andsvari við ræðu
Óla Björns að hann hefði vonast eftir
því að heyra pólitískar skýringar á
því hversvegna núverandi stjórnvöld
vildu hverfa frá þeirri aðgerðaáætl-
un sem lagt var upp með árið 2015.
Þau hafi raunar verið að snúa því
upp í andhverfu sína með því að
verðlauna sérstaklega þá sem ekki
hafa verið tilbúnir til að leggja sitt af
mörkum til efnahagslegrar upp-
byggingar og ætli nú að hnýta enda-
hnútinn með allsherjar afléttingu
fjármagnshafta af „eftirlegukindun-
um“ sem svo hafi verið kallaðar.
Með frumvarpinu er lagt til að
aflandskrónueigendum verði gefið
færi á að losa eignir sínar. Seðla-
bankinn lagði áherslu á að frumvarp-
ið yrði afgreitt áður en gjalddagi til-
tekins flokks ríkisbréfa rynni upp 26.
febrúar. Ef það tækist ekki, sem
varð raunin, myndi aukast hætta á
að stórir aflandskrónueigendur, sem
átt hefðu sín bréf í samfelldu eign-
arhaldi frá því fyrir höft og taldir
hefðu verið líklegir til að endurfjár-
festa í íslenskum skuldabréfum,
myndu í þess stað leita út þegar þeir
losnuðu af bundnum reikningum. Óli
Björn tók fram að megnið af skulda-
bréfunum væri í eigu skuldabréfa-
sjóða sem átt hefðu bréfin lengi.
Engir vogunarsjóðir væru í þeim
hópi. helgi@mbl.is
Vinni gegn fjölbreytni
Þingmenn Miðflokksins sakaðir um að vinna gegn hags-
munum ríkissjóðs með löngum ræðum um afléttingu hafta
Morgunblaðið/Hari
Haftamál Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni liggur mikið á hjarta.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Kennarar sem valið hafa að kenna á
öðru, aðliggjandi skólastigi hafa
verið ráðnir sem leiðbeinendur og
starf þeirra auglýst árlega. Hafa
hæfir og reynslumiklir kennarar
kosið að láta af störfum sem leið-
beinendur því ekki hefur verið unnt
að greiða þeim laun í samræmi við
stöðu þeirra, auk þess sem starfs-
öryggi þeirra hefur verið óvið-
unandi, að mati formanna Félags
grunnskólakennara og Skólastjóra-
félags Íslands.
Frumvarp menntamálaráðherra
um að gefið verði út eitt leyfisbréf
til kennslu á þremur skólastigum,
leik-, grunn- og framhaldsskóla, er
til kynningar í samráðsgátt stjórn-
arráðsins. „Kennari“ verður starfs-
heiti allra. Verði frumvarpið að lög-
um verður gefin út reglugerð þar
sem fram kemur skilgreining á al-
mennri og sérhæfðri hæfni til að
gegna tilteknu kennarastarfi.
Þær umsagnir sem birst hafa í
samráðsgáttinni eru flestar jákvæð-
ar í garð frumvarpsins, enn sem
komið er, en Félag framhaldsskóla-
kennara hefur
ekki veitt um-
sögn. Þorgerður
Laufey Diðriks-
dóttir, formaður
Félags grunn-
skólakennara, og
Þorsteinn Sæ-
berg, formaður
Skólastjórafélags
Íslands, eru í
hópi þeirra sem
fagna frumvarpinu en það gera þau
í sameiginlegri umsögn.
Þau segja að markmiði gildandi
laga um sveigjanleika og samfellu á
milli skólastiga hafi ekki verið náð.
Eykur samfellu milli skólastiga
Mikilvægt sé að tryggja starfs-
öryggi kennara á öllum skólastigum
og auka samfellu milli skólastiga,
færa þau nær hvert öðru og stuðla
að því að strax í leikskóla hefjist
undirbúningur að samfellu í skóla-
starfi þar sem eitt skólastig taki við
af öðru. Frumvarpið muni ekki ein-
ungis auka réttindi og starfsöryggi
kennara heldur virka sem hvatning
til aukinnar starfsþróunar kennara
og aukins flæðis milli skólastiga.
Fagna frumvarpi
um kennara
Starfsöryggi hluta kennara óviðunandi
Skóli Eitt leyfis-
bréf er lagt til.
Allir starfsmenn og nemendur í
Klettaskóla þurfa nú að gangast
undir próf til þess að fá úr því skor-
ið hvort þeir hafi smitast af berkl-
um. Starfsmaður í skólanum
greindist með berkla eftir að hafa
leitað til læknis vegna veikinda.
Fyrst var greint frá málinu á
RÚV í gær og Árni Einarsson,
skólastjóri Klettaskóla, staðfesti við
mbl.is að starfsmaður hefði greinst
með berkla. Prófað verður þannig
að efni verður sprautað undir húð-
ina og síðan skoðað eftir nokkra
daga hvort svörun kemur fram.
Að sögn Þórólfs Guðnasonar sótt-
varnalæknis greinast hér á landi
um tíu einstaklingar á ári hverju
með veikindi af völdum berkla.
Hann segir að fólk geti borið
berklabakteríuna áratugum saman
án þess að finna fyrir einkennum.
Berklasmit greindist í Klettaskóla