Morgunblaðið - 28.02.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
Bæjarlind 6 | sími 554 7030 • Við erum á facebook
Kr. 12.990
Str. S-XXL
3 litir
Vor-
jakkar
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
JUNGE heilsársjakkar
Flottir í borgarferðina
frá 19.900,-
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Sund-
fatnaður
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Str.
38-58
Flott föt, fyrir flottar konur
Plus Size Fashion / Spring 2019
,,Ríkisskattstjóri telur að ávallt fari illa að fela utanaðkom-
andi aðila frjálst mat um það hvaða upplýsingar úr gagna-
safni embættisins viðkomandi telji nauðsynlegar til fram-
kvæmdar á verkefnum sem viðkomandi hafa verið falin,“
segir í umsögn ríkisskattstjóra til velferðarnefndar Al-
þingis við frumvarp félags- og jafnréttismálaráðherra um
ýmsar lagabreytingar sem gera á vegna áhrifa nýju per-
sónuverndarlaganna og snerta stofnanir sem heyra undir
ráðuneytið.
Ríkisskattstjóri gagnrýnir hvað veita á umboðsmanni
skuldara víðtækan rétt til að sækja upplýsingar í gagna-
safn embættisins. Afhending þessara gagna til ríkisskatt-
stjóra fari fram í trúnaði og í því skyni að tryggja rétta
álagningu skatta og gjalda. Um sé að ræða viðkvæmar
upplýsingar um fjárhags- og einkamálefni einstaklinga
sem eru háð ríkri þagnarskyldu. „Afar óheppilegt er að
þriðji aðili hafi alfarið úrslitavald um að hvaða marki for-
sendur séu taldar til að rjúfa lögverndaðan þagnarmúr um
einkamálefni almennings sem skylt er að afhenda skatt-
yfirvöldum,“ segir í umsögninni. Þá telur ríkisskattstjóri
ótækt að embættið eigi að bera kostnað af miðlun upplýs-
inga sem umboðsmaður óski aðgangs að.
Kröfuhafar verði skuldbundnir
til að veita embættinu upplýsingar
Umboðsmaður skuldara sendi einnig í gær inn umsögn
við frumvarpið og þar er lýst ánægju með að veita eigi
embættinu skýrar heimildir fyrir vinnslu persónuupplýs-
inga. „Í stað þess að embættið byggi heimild sína til
vinnslu persónuupplýsinga á samþykki umsækjanda er
lagt til að embættið byggi vinnslu persónuupplýsinga á
lagaskyldu, sem mælt er fyrir um í umræddum lagabálk-
um,“ segir í umsögninni.
Er tilhögun þessara mála í dag lýst og þar segir að þeg-
ar einstaklingar óska eftir aðstoð umboðsmanns skuldara
þurfi embættið að framkvæma víðtæka upplýsingaöflun til
þess að heildstæð mynd náist um fjárhag hlutaðeigandi
umsækjanda. „Í dag er framkvæmdin sú að embættið er
með samninga um vefþjónustu við nokkra kröfuhafa, þar
sem upplýsingar streyma beint frá upplýsingakerfi hlut-
aðeigandi kröfuhafa í upplýsingakerfi embættisins.
Þegar ekki er um vefþjónustu að ræða sendir embættið
kröfuhöfum upplýsingabeiðni í tölvupósti ásamt samþykki
umsækjanda fyrir upplýsingaöflun. Umræddar lagaheim-
ildir ættu að leiða til þeirrar breytingar að kröfuhafar séu
skuldbundnir til að veita embættinu upplýsingar í trausti
þess að hlutaðeigandi upplýsingaöflun varði einstakling
sem hafi sótt formlega um úrræði hjá embættinu eða leit-
að eftir aðstoð þess með öðrum hætti. Það mun svo koma í
ljós hvernig kröfuhafar venjast breytingunni, þ.e. hvort
þeir geri kröfu um að embættið veiti sönnun um að hlut-
aðeigandi einstaklingur hafi leitað til embættisins eða að
embættið afhendi staðfestingu frá umsækjanda um að
hann hafi verið upplýstur um upplýsingaöflunina,“ segir
m.a. í umsögn umboðsmanns.
omfr@mbl.is
Gagnrýnir rýmri aðgang um-
boðsmanns að gögnum RSK
Ríkisskattstjóri varar við breytingum í stjórnarfrumvarpi
Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík-
isráðherra tilkynnti 30 milljóna
króna viðbótarframlag til mann-
úðaraðstoðar í Jemen á al-
þjóðaráðstefnu í Genf í vikunni.
Heildarframlög íslenskra stjórn-
valda til Jemens nema þá um 85
milljónum króna það sem af er
ári, segir í tilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu. Guðlaugur átti
einnig fund með Michelle Bache-
let, mannréttindastjóra Sameinuðu
þjóðanna.
„Stærsta neyðin í heiminum í
dag ríkir í Jemen þar sem áttatíu
prósent þjóðarinnar þurfa á neyð-
araðstoð að halda. Við höfum lagt
áherslu á að aðstoðin nái til barna
og kvenna sem eru í sérstaklega
bágri stöðu í Jemen,“ sagði Guð-
laugur Þór m.a. í ræðu sinni.
Hann lagði jafnframt áherslu á
að bundinn yrði endi á átökin sem
hafa staðið frá árinu 2015.
30 milljónir króna
í viðbót til Jemens