Morgunblaðið - 28.02.2019, Síða 58
Súkkulaðibollur
með saltri karamellu
og pekanhnetum
Einn pakki af Toro-hveitibolludufti, bak-
að eftir íslenskum leiðbeiningum á
pakka
1 pakki Royal-karamellubúðingur
50 g 70% súkkulaði
2,5 dl nýmjólk
2,5 dl rjómi
1 tsk gróft salt og ½ tsk gróft salt (hvort
í sínu lagi)
1 pakki rjómatöggur
½ dl rjómi
pistasíuhnetur án kjarna (saltar eða
ósaltar)
Bakið bollurnar eftir leiðbeiningum
og bætið við þær 50 g af smátt skornu
70% súkkulaði.
Gerið svo saltkaramellubúðing með
1 pakka karamellubúðingi, 2½ dl
rjóma, 2½ dl nýmjólk og 1 tsk af grófu
salti og leggið til hliðar.
Bræðið svo rjómatöggur í potti með
½ dl rjóma og ½-1 tsk af grófu salti.
Skerið bollurnar í tvennt og setjið
karamellu og muldar pekanhnetur á
botninn.
Setjið svo búðinginn ofan á og lokið
bollunni.
Toppið með saltkaramellu og muld-
um pekanhnetum.
Ljósmynd/María Gomez
Lífið er hreinlega of stutt til að flippa ekki smá og
hvað er betra en bollur sem búið er að snúa í hringi
og toppa með öllu því besta sem hægt er að setja
inn í og ofan á eina bollu? Það er María Gomez á
Paz.is sem á þessa uppskrift.
Öðruvísi og ómótstæðilegar Þessi
samsetning er algjörlega stórkostleg
og vel þess virði að prófa.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
Ég sleit krossbönd
og fór í fimm
liðþófaaðgerðir.
Samt hljóp ég
hálft maraþon
í sumar verkjalaust.
Jóhann Gunnarsson – sölustjóri hjá Pennanum
Einn pakki af Toro Hveteboller-dufti,
bakað eftir íslenskum leiðbeiningum á
pakka
1 pakki vanillu Royal-búðingur
Hindberjasulta
2,5 dl nýmjólk
2,5 dl rjómi
Flórsykur
Bakið bollurnar eftir leiðbein-
ingum.
Gerið svo vanillubúðing með 1
pakka búðing, 2,5 dl rjóma og 2,5 dl
nýmjólk.
Setjið svo hindberjasultu á botn-
inn og vanillubúðing ofan á.
Lokið bollunni og stráið flórsykri
yfir með sigti.
Berlínarbolla
Hér getur að líta hina klassísku berlínarbollu sem á
alltaf vel við á bolludaginn. Þessi uppskrift kemur
úr smiðju Maríu Gomez á Paz.is.
Ljósmynd/María Gomez
Skotheld Berlínarbolla er eitt af þessum föstu leikatriðum sem klikka ekki.
Vatnsdeigsbollur
190 g smjör
375 ml vatn
190 g hveiti
6 egg
Hitið ofninn á 180°C með
blæstri.
Hitið saman smjör og vatn í
potti þar til smjörið er bráðið og
leyfið aðeins að sjóða saman.
Slökkvið þá á hellunni og setjið
hveitið út í smjörblönduna og
blandið vel með sleif, hrærið dá-
góða stund saman þar til deigið
losnar frá köntunum.
Færið deigið nú yfir í hræri-
vélina og notið K-ið á lægstu
stillingu til að leyfa hitanum að-
eins að rjúka úr.
Pískið eggin saman í skál á
meðan og bætið þeim síðan sam-
an við í litlum skömmtum.
Stundum duga 5 eða 5½ egg ef
þau eru stór svo geymið að bæta
restinni saman við þar til í lokin.
Deigið á að vera teygjanlegt
og ekki of þunnt, það verður að
halda hæð þegar það er sett á
bökunarplötuna.
Best er að setja vel kúfaða te-
skeið (um það bil 2 tsk.) af deigi
með góðu millibili á bökunar-
plötu íklædda bökunarpappír.
Fínt er að miða við um 15 bollur
á hvora plötu, uppskriftin gefur
um 30 bollur.
Bakið bollurnar í 20-22 mín-
útur eða þar til þær eru vel
gylltar og ekki opna ofninn á
meðan því þá geta þær fallið.
Fylling
500 ml þeyttur rjómi
jarðarberjasulta frá Den Gamle
Fabrik
hindberjasulta frá Den Gamle
Fabrik
fersk hindber og jarðarber (má
sleppa)
Smyrjið vel af sultu á neðri
botninn á hverri bollu (15 með
jarðarberja- og 15 með hindberja-
sultu).
Sprautið rjóma ofan á sultuna og
raðið ferskum berjum þar næst.
Setjið lokið á og útbúið glass-
úrinn.
Glassúr
100 g brætt smjör
215 g flórsykur
3 msk. bökunarkakó
3 tsk. vanilludropar
2 msk. heitt kaffi
Setjið allt saman í skál og
hrærið saman með písk þar til
vel blandað.
Setjið góða teskeið af glassúr
ofan á hverja bollu og dreifið úr.
Gamaldags vatnsdeigs-
bollur með sultu og rjóma
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Það er fátt sem við elskum meira en gömlu góðu vatnsdeigsbollurnar þó
það geti vafist fyrir ýmsum að baka þær (nefni engin nöfn). Margir vilja
þær bara með sultu, rjóma og súkkulaðiglassúr en svo má líka flippa og
setja það sem hugurinn girnist á milli. Þessi uppskrift kemur frá Berglindi
Hreiðars á Gotteri.is.
Lekkert og ljúffengt Góður kaffibolli með nýbakaðri bollu er eitt það
besta sem hægt er að gæða sér á.