Morgunblaðið - 28.02.2019, Side 75
MENNING 75
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2019
Canada Goose Chilliwack Bomber er framúrskarandi vörn
gegn kuldanum og glæsileg hönnun fyrir borgarlífið. Okkar
verð er sambærilegt eða betra en í flestum öðrum löndum.
CANADA GOOSE FÆST Í NORDIC STORE LÆKJARGÖTU
www.nordicstore.is
Opið kl . 9 -22 alla daga
C
an
ad
a
G
o
o
se
C
hi
lli
w
ac
k
B
o
m
b
er
p
b
i1
14
.9
9
0
kr
.
Kuldaþol: -20°C
Sagan um gallsteina afa Gissaeftir Kristínu Helgu Gunn-arsdóttur kom fyrst út ábók árið 2002 og var síðar
sett upp sem útvarpsleikrit árið 2016
hjá RÚV en ratar nú á svið sem fjöl-
skyldusöngleikur hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar.
Tjaldið er dregið frá og við okkur
blasir mynd, litirnir eru djúpir og
heillandi og leikararnir kyrrir eins
og myndastyttur á vaxmyndasafni.
Afi Gissi birtist á baksviðinu eins og
úr öðrum heimi og leiðir okkur inn í
söguna. Hér segir frá systkinunum
Grímu og Torfa sem þurfa að glíma
við hefðbundin vandamál barna í
gegnum tíðina, móður sem útbýr
einungis vondan heilsumat og um-
gengst börnin sín helst með „farðu
að skipunum“, fjarlægan og tilfinn-
ingasljóan föður og eldri bróður sem
hefur umbreyst í unglingaskrímsli
sem er allt í senn; geðvont, óskiljan-
legt og hættulegt. Allt breytist þetta
þó þegar fjarlægja þarf gallsteina úr
síkáta sjóaranum afa Gissa. Þegar
börnin segja honum frá vandræðum
sínum trúir hann þeim fyrir því að
steinarnir séu engir venjulegir gall-
steinar, heldur óskasteinar, og lánar
þeim þá með þeirri aðvörun að fara
varlega með hvers þau óski sér. Á
sviðinu eru dregnar upp og ýktar
andstæðurnar fyrir og eftir óskina.
Í byrjun er flest kassalaga og and-
laust, litlaus hönnunarhúsgögn, föt-
in köflótt og foreldrarnir í svörtum
og hvítum litum, unglingurinn Úlfur
er óþolandi. Reglur, skyldur og
skóli er það sem líf Grímu og Torfa
snýst um. Eftir óskina umbreytist
hins vegar allt, foreldrarnir eru lit-
ríkir og skemmtilegir, borð sem má
dansa á og marglitir púðar og pullur
leysa formföst húsgögn af hólmi,
skyldur og skóli eru horfin á brott,
reglur eru brotnar og það besta af
öllu: Ekkert unglingaskrímsli.
Fjörið er í fyrirrúmi, sýningin er
drifin áfram af fádæma krafti, tón-
listin glymur og það er gleði og
gaman. Já, það er kátt í höllinni og
á nokkrum stöðum táraðist ég bók-
staflega úr hlátri þegar leikarar
fóru á kostum í galsanum. Leik-
mynd, lýsing og danshreyfingar
mynda órofa heild. Litrík leik-
myndin er nokkuð einföld en með
því að aflaga horn og hlutföll tekur
hún á virkan hátt þátt í ýktum frá-
sagnarmátanum. Lýsingin er til fyr-
irmyndar. Einkum er það snilldar-
leg notkun á myndvörpun í atriðum
sem gerast við sjávarsíðuna eða úti
á sjó sem er mögnuð, en djúpir og
hlýir litir og áherslulýsing á bak-
sviðið á ýmsum stöðum styrkja þá
aðferð sem hér er notuð við að segja
sögu. Dans, hreyfingar og svip-
myndir sem leikarar framkalla í
tónlistaratriðum falla einnig þarna
undir, allt er þetta listilega fléttað
saman til að framkalla sömu áhrif
gleði, galsa, fjörs og ýktrar frásagn-
ar.
Tónlistin er hins vegar ekki eftir-
minnileg, laglínur eru fullflóknar og
textar oft miklar langlokur. Það
vantar einfaldari stef og grípandi
línur sem festast í minninu, það
vantar spýtur og það vantar sög.
Þetta eru varla lög sem börn eiga
eftir að raula fyrir munni sér við
leik og störf í framtíðinni.
Leikarar komast allir vel frá sínu.
Benedikt Karl Gröndal sem pabbinn
fær að sýna mestu andstæðurnar í
sinni persónu fyrir og eftir óskina og
gerir það frábærlega. Jóhann Axel
Ingólfsson og Birna Pétursdóttir
leika bæði mikinn fjölda auka-
hlutverka með prýði. Það er alltaf
skemmtilegt þegar maður fær að sjá
leikara bregða sér í mörg hlutverk á
skömmum tíma með tilheyrandi bún-
ingaskiptum og takast það jafn vel
upp og hér, þó stendur túlkun Jó-
hanns á unglingaskrímslinu Úlfi upp
úr hjá honum. María Pálsdóttir gerir
mömmunni góð skil en umbreytingin
á henni við óskina er þó minni en hjá
pabbanum og skýrist það helst af því
að mamman var frekar kraftmikil
persóna fyrir. Karl Ágúst Úlfsson
ljær afa Gissa hlýlegan blæ og birtist
okkur sem ákaflega lífsglaður og já-
kvæður karl. Það er helst að upp á
skorti þegar kemur að söngnum, því
þótt öll haldi þau lagi með ágætum
er ekki hægt að segja að nokkurt
þeirra sé sérstaklega sterkur söngv-
ari.
Eitt er það þó sem truflaði mig
við þessa sýningu. Afi Gissi er gam-
all sjóari með húðflúr af ýmsum
konum út um allan skrokk, gömlum
„sigrum“ úr hafnarborgum víða um
heim, og styttir sér stundir á spít-
alanum við að segja hinum sjúk-
lingunum kvennafarssögur af sjálf-
um sér, að því er virðist í því
augnamiði að bæta nýrri mynd í
safnið. Mamman ber ábyrgð á
heimilinu, börnum, matseld og eig-
inmanninum líka. Það breytist ekki
við óskina þó óneitanlega sinni
hippinn þessu öllu á annan veg en
herforinginn. Pabbinn sem er fjar-
rænn og tilfinningasljór fyrir ósk-
ina er aðallega sár yfir því að börn-
in nenni ekki að leika við hann eftir
hana. Hlutverkin hafa snúist við en
samkvæmt þessu er hlutverk feðra
fyrst og fremst að leika við börnin
sín, þeir eru ekki uppalendur.
Aukapersónurnar varpa svo enn
skýrari mynd á það sem þarna er á
seyði. Yfirmaður pabbans er karl
en fulltrúi barnaverndarnefndar er
kona, lögregluþjónninn er karl en
kennarar barnanna eru báðir kon-
ur. Skólastjórinn er svo að sjálfs-
sögðu karlkyns. Mögulega er þetta
hugsunarleysi en með því að ríg-
halda í þessar hefðbundnu og gam-
aldags staðalmyndir um kynhlut-
verkin í samfélaginu er tækifærinu
til að gera verkið djarfara, nútíma-
legra og gefa því meira erindi varp-
að fyrir róða. Það er spurning
hversu hollt það er að halda þess-
um úreltu fyrirmyndum að börnum.
Áður en tjaldið er dregið aftur
fyrir höfum við lært ákveðna lexíu.
Það er ágætt að óska sér en sumar
óskir geta líka verið hættulegar.
Við viljum fá Úlf aftur, unglinga-
skrímsli eða ekki. Við viljum for-
eldra sem skipta sér af okkur og
skipa okkur fyrir, vegna þess að
þeim þykir vænt um okkur. Þetta
er ef til vill ekki stór sannleikur og
flest áttum við okkur á þessu frek-
ar ung. Það hefði eflaust verið hægt
að kafa dýpra í þetta flókna samspil
ástar og umhyggju foreldra og
barna án þess að fórna léttleik-
anum og fjörinu sem einkenna sýn-
inguna sem er fyrst og fremst ákaf-
lega góð skemmtun fyrir alla
fjölskylduna.
Gleði, galsi og gallsteinar
Ljósmynd/Auðunn Níelsson
Góð Sýningin „er fyrst og fremst ákaflega góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna,“ segir um Gallsteina afa Gissa.
Leikfélag Akureyrar
Gallsteinar afa Gissa bbbnn
Handrit: Karl Ágúst Úlfsson og Kristín
Helga Gunnarsdóttir. Leikstjórn: Ágústa
Skúladóttir. Söngtextar: Karl Ágúst
Úlfsson. Tónlist: Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson. Leikmynd og búningar: Þór-
unn María Jónsdóttir. Lýsing: Lárus
Heiðar Sveinsson. Hljóð: Gunnar Sigur-
björnsson. Danshöfundur: Katrín Mist
Haraldsdóttir. Hljómsveit: Jaan Alavere,
Kristján Edelstein og Phillip Doyle. Leik-
arar: Benedikt Karl Gröndal, María Páls-
dóttir, Steingerður Snorradóttir, Þór-
gunnur Una Jónsdóttir, Daníel Freyr
Stefánsson, Örn Heiðar Lárusson, Karl
Ágúst Úlfsson, Jóhann Axel Ingólfsson,
Margrét Sverrisdóttir og Birna Péturs-
dóttir. Leikfélag Akureyrar frumsýndi í
Samkomuhúsinu 23. febrúar 2019.
DANÍEL FREYR
JÓNSSON
LEIKLIST
Sirkus Íslands frumsýnir
Bæjarsirkusinn í Hlöðunni
í Gufunesbæ í Reykjavík í
kvöld kl. 19 og sýnir í fram-
haldinu víðs vegar um
landið. „Bæjarsirkusinn er
sirkussýning fyrir alla fjöl-
skylduna þar sem töfrar
sirkussins vakna til lífsins í
félagsheimilum um land
allt. Sýningin er liður í því
að gera Sirkus Íslands að
sirkus allra landsmanna og
leyfa þannig sem flestum
að njóta gleðinnar. Kraft-
mikil sýning sem fer með
áhorfendur inn í spennandi
heim sirkussins þar sem
allt getur gerst! Óttalaus
áhættuleikari, ótrúleg línu-
dansmær, lipurt loftfim-
leikafólk og ljónatemjari
flakka um landið og kynna
þig fyrir sirkusnum á hátt sem þú hefur aldrei séð áður. Sýningar Sirkuss
Íslands í Sirkustjaldinu Jöklu hafa vakið mikla lukku undanfarin sumur en
þessi sýning er gerð til þess að ferðast um landið þegar veður leyfir ekki
tjaldtúr,“ segir í tilkynningu.
Næstu sýningar verða í Hjálmakletti í Borgarnesi 2. mars kl. 15, Klifi í
Ólafsvík 3. mars kl. 15, Stað á Eyrarbakka 15. mars kl. 17, Íþróttahúsinu í
Vík í Mýrdal 16 mars kl. 16 og Íþróttamiðstöðinni á Höfn 17. mars kl. 15.
Einnig verður sýnt á Hólmavík 6. apríl og í Bolungarvík 7. apríl. Allar nán-
ari upplýsingar og miðasala er á tix.is.
Bæjarsirkus-sýning
fyrir alla fjölskylduna
Sýnt í félagsheimilum og íþrótta-
sölum landsins en ekki í útitjaldi
Samstilling Sirkus Íslands hefur sýnt sirk-
uslistir hérlendis á síðustu árum. Hér er hóp-
urinn á Akureyri fyrir nokkrum árum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson