Morgunblaðið - 04.04.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
60+
meðÖnnu Leu ogBróa
Frá kr.
144.900
13. maí í 15 nætur
Costa del Sol
NÝTT
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Velferðarsvið og Félagsbústaðir
vilja reisa þarna sérstakt búsetuúr-
ræði fyrir fólk í þjónustuflokki
þrjú, en í þeim flokki eru geðfatl-
aðir og fólk með fíknivanda,“ segir
Hildur Bergþórsdóttir, íbúi í Selja-
hverfi í Breiðholti, við Morgun-
blaðið.
Vísar hún í máli sínu til fyrirhug-
aðra breytinga á deiliskipulagi lóð-
arinnar Hagasel 23 í Breiðholti í
Reykjavík. Felur breytingin í sér
að heimilt verður að byggja 2.
hæða íbúðarhús fyrir 8 íbúðir. Ein
íbúðin er ætluð þeim starfsmönnum
sem þjónusta íbúana, en hámarks-
byggingarmagn er 600 fermetrar.
Hildur segir marga íbúa hverfis-
ins hafa áhyggjur af fyrirhugaðri
breytingu og velferð barna sinna,
en svæðið mun vera mikið sótt af
börnum og því undrast íbúar þá
ákvörðun að setja svo viðkvæma og
krefjandi þjónustu á þennan stað.
Þá hafa alls 784 íbúar ritað undir
mótmælalista sem sendur verður
Reykjavíkurborg.
„Mótmælum breytingu á deili-
skipulagi á Hagaseli 23 sem við
teljum ógn við öryggi barna. Sam-
kvæmt heimasíðu Félagsbústaða
mun nýtt húsnæði í Hagaseli 23
hýsa fólk í þjónustuflokki III sem
er fólk með geðfötlun og virkan
fíknivanda. Við mótmælum því að
slíkt úrræði sé staðsett á sömu lóð
og frístund og félagsmiðstöð barna
í hverfinu við Hólmasel,“ segir í
mótmælabréfinu. Opið verður fyrir
athugasemdir til 16. apríl nk.
Ekki fólk með fíknivanda
Regína Ásvaldsdóttir er sviðs-
stjóri velferðarsviðs Reykjavíkur-
borgar. Hún segir ekki standa til
að fólk með virkan fíknivanda verði
hýst í þessu búsetuúrræði. „Við er-
um með sérstök úrræði fyrir fólk í
virkum fíkniefnavanda og þetta er
ekki sá hópur sem þarna verður,“
segir hún og bendir á að í upp-
byggingaráætlun Reykjavíkur-
borgar sé verið að leita að úrræð-
um fyrir á annað hundrað manns
með skilgreinda fötlun, m.a. geð-
fötlun.
„Að okkar mati er mjög mik-
ilvægt að fá lóðir fyrir þessa bú-
setukjarna, sem eru nú þegar í
flestum hverfum borgarinnar.“
Fjölmargir íbúar mótmæla
Hátt í 800 ritað
undir mótmæli
gegn búsetukjarna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Breiðholt Margir eru ósáttir.
Veggjakrot er hvimleitt vandamál; ósiður fólks sem málar bæinn án þess
að skeyta um afleiðingarnar. Húseigendur bregðast gjarnan skjótt við og
láta mála yfir ósómann eins og sást við Vatnsstíginn í Reykjavík í gær.
Málað yfir Óla prik
Morgunblaðið/Eggert
Guðni Einarsson
Jóhann Ólafsson
Þórunn Kristjánsdóttir
„Ég er saklaus,“ sagði Orri Páll
Dýrason, fyrrverandi trommuleikari
Sigur Rósar, þegar skattamál hljóm-
sveitarinnar og endurskoðanda
hennar voru þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gærmorgun. Ákært er
fyrir meint skattsvik upp á samtals
150 milljónir.
Orri Páll, Jón Þór Birgisson,
Georg Holm og Kjartan Sveinsson,
fyrrverandi og núverandi liðsmenn
Sigur Rósar, eru ákærðir fyrir að
telja ekki fram tekjur eða arð-
greiðslur. Auk þess er einn endur-
skoðandi ákærður. Þeir komu allir,
nema endurskoðandinn, fyrir dóm í
gær og neituðu sök. Fyrirtaka í mál-
unum verður 20. maí.
Allir eru þeir, nema Kjartan,
ákærðir fyrir meiriháttar skatta-
lagabrot með því að hafa staðið skil á
efnislega röngum skattframtölum
gjaldárin 2011 til og með 2014. Í
ákæru Kjartans kemur fram að hann
hafi staðið skil á efnislega röngum
skattframtölum 2012 og 2014.
Meint skattsvik Jóns Þórs Birg-
issonar, söngvara í Sigur Rós, og
endurskoðanda hans, Gunnars Þórs
Ásgeirssonar, nema samtals 190
milljónum króna. Jón og Gunnar
voru við þingfestingu í morgun
ákærðir fyrir að komast undan
greiðslu tekjuskatts upp á 146 millj-
ónir, sem og 43 milljóna.
Ákæran um brotin sem nema 146
milljónum króna var lögð fram við
þingfestingu meintra skattsvika liðs-
manna Sigur Rósar í Héraðsdómi
Reykjavíkur í morgun. Ákæran
varðar Jón og félag í hans eigu,
Frakk slf.
Orri Páll Dýrason, sem hætti í
Sigur Rós síðasta haust, er ákærður
fyrir að hafa komist hjá greiðslu
tekjuskatts upp á 36 milljónir og
fjármagnstekjuskatts upp á 9,5
milljónir.
Frá því var greint í mars 2018 að
sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæð-
inu hefði kyrrsett eignir liðsmanna
Sigur Rósar upp á 800 milljónir, að
kröfu tollstjóra. Héraðsdómur
Reykjavíkur staðfesti kyrrsetn-
inguna í ágúst. Þá kom fram að
meint skattabrot þriggja liðsmanna
sveitarinnar hefðu verið til rann-
sóknar frá því í janúar 2016.
Neituðu sök
í skattamáli
Liðsmenn Sigur Rósar og endur-
skoðandi ákærðir fyrir meint skattsvik
Morgunblaðið/Eggert
Þingfesting Liðsmenn Sigur Rósar neituðu allir sök fyrir héraðsdómi.
Alls bárust 23
umsóknir um
embætti forstjóra
Samgöngustofu.
Umsækjendur
eru: Aðalsteinn
Magnússon
rekstrarhagfræð-
ingur, Dagmar
Sigurðardóttir
sviðsstjóri, Einar
Örn Héðinsson
framkvæmdastjóri, Friðrik Ólafsson
verkfræðingur, Geirþrúður Alfreðs-
dóttir, verkfræðingur og flugstjóri,
Guðjón Skúlason forstöðumaður,
Guðmundur I. Bergþórsson verk-
efnastjóri, Hafsteinn Viktorsson for-
stjóri, Halla Sigrún Sigurðardóttir
framkvæmdastjóri, Halldór Ólafs-
son Zoëga deildarstjóri, Hlynur Sig-
urgeirsson hagfræðingur, Inga Guð-
rún Birgisdóttir mannauðsstjóri,
Jón Gunnar Jónsson fram-
kvæmdastjóri, Jón Karl Ólafsson
ráðgjafi, Magnús B. Jóhannesson
framkvæmdastjóri, Margrét Hauks-
dóttir forstjóri, Reynir Sigurðsson
framkvæmdastjóri, Róbert Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri og
stjórnsýsluráðgjafi, Sigrún Birna
Sigurðardóttir ráðgjafi, Stefán Vil-
bergsson verkefnastjóri, Trausti
Harðarson ráðgjafi, Þorkell Hróar
Björnsson framkvæmdastjóri og
Þórólfur Árnason, núverandi for-
stjóri Samgöngustofu.
23 um-
sækjendur
um starfið
Embætti forstjóra
Samgöngustofu
Þórólfur
Árnason
Fiskvinnslufyrirtækið Toppfiskur
hefur verið úrskurðað gjaldþrota,
samkvæmt upplýsingum frá ríkis-
skattstjóra. Ljóst er að tugir manns
hafa þar með misst vinnuna en
meðalfjöldi starfa í fyrirtækinu á
árunum 2016 og 2017 var 64.
Rakel Pálsdóttir, kynningarstjóri
Eflingar, staðfesti í samtali við
mbl.is í gær að um 40 starfsmenn
Toppfisks hefðu leitað aðstoðar
stéttarfélagsins í kjölfar gjald-
þrotsins.
Tap af rekstri félagsins á árinu
2017 nam 280,1 milljón kr. Bókfært
verð eigna í efnahagsreikningi nam
1.211,7 milljónum í árslok 2017.
Toppfiskur í þrot
og tugir án atvinnu