Morgunblaðið - 04.04.2019, Síða 21
ferðamannaflaumur undir Eyja-
fjöllum, fólk er beinlínis að leita að
stöðum til að stoppa á og Rúts-
hellir er kærkomin áningarstaður,“
segir Uggi.
Í grein eftir Hallgerði Gísladótt-
ur og Árna Hjartarson í árbók
Fornleifafélagsins 1995 segir í
upphafi: „Rútshellir undir Eyja-
fjöllum er meðal merkustu forn-
minja á Íslandi, höggvinn út af
mönnum, tvískiptur, ævagamall og
tengist gömlum sögnum. Hellirinn
er rétt við bæinn Hrútafell og er
holaður í móbergshamar sem skag-
ar fram úr undirhlíðum Eyja-
fjalla.“ Hellirinn mun meðal ann-
ars hafa verið notaður sem
íverustaður, heyhlaða og smiðja og
síðustu aldir hafa verið gerðar þar
ýmsar rannsóknir og mælingar.
Bætt aðgengi og aukið öryggi
Sveitarfélagið Fljótsdalshérað
fær í ár tólf milljónir króna í styrk
úr Framkvæmdasjóði ferða-
mannastaða til að vernda náttúru
og bæta öryggi gesta við Lauga-
velli, Hafrahvammagljúfur og
Magnahelli. Þar munu bændur á
Brú á Jökuldal hafa geymt fé sitt
að vetrarlagi til forna.
Sveitarfélagið Ölfus fær tæplega
11 milljóna króna framlag úr
Framkvæmdasjóði ferðamanna-
staða til þess m.a. að lagfæra illa
farinn stíg frá bílastæði að hell-
inum Arnarkeri. „Verkefnið eykur
virkni og aðdráttarafl þessa vin-
sæla og aðgengilega ferðamanna-
staðar,“ segir m.a. í rökstuðningi.
Á heimasíðu sveitarfélagsins segir
að Arnarker sé áhugaverður hellir
í Leitarhrauni við gamla veginn
sem liggur frá Þrengslavegi út í
Selvog. Stigi liggur niður í hellinn
sem er um 516 metra langur.
Loks má nefna að veittar eru
tvær milljónir í ár vegna vernd-
aráætlunar Surtshellis og Víg-
ishellis í Hallmundarhrauni.
Undir Eyjafjöllum Fjárhúsið framan við Rútshelli, en hellirinn er grafinn í
móbergshamar. Fjöldi ferðamanna stoppar þarna á ferð um Suðurland.
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Arnar Pétursson
langhlaupari
Kópavogur, Árborg og Reykjanes-
bær hafa nú tekið höndum saman
um að setja á laggirnar mælitæki
sem hefur fengið nafnið Framfara-
vog sveitarfélaga. Þannig er hægt að
leggja mat á framfarir og styrk sam-
félagslegra innviða í sveitarfélög-
unum.
Framfaravogin byggist á hug-
myndafræði vísitölu félagslegra
framfara (VFF) – Social Progress
Index (SPI) – sem kemur út árlega
og sýnir stöðu þjóða heimsins.
Samningur sveitarfélagana um
Framfaravogina var kynntur í fyrra-
dag á alþjóðlegu ráðstefnunni What
Works sem lauk í gær. Þar kom
saman áhrifa- og fræðifólk frá um
þrjátíu löndum til að skoða saman
hvaða úrræði hafa gefist best við að
tryggja fólki velferð og skapa því
tækifæri til að bæta líf sitt. Þetta var
í þriðja skipti sem ráðstefnan fer
fram á Íslandi en hún var nú haldin í
fyrsta sinn í samvinnu við og með
stuðningi Alþjóðabankans.
Hugmyndafræðin að baki VFF-
vísitölunni er að setja á oddinn það
sem skiptir tilveru fólks mestu máli,
þar á meðal eru aðgangur að heilsu-
gæslu, menntun og hagkvæmu hús-
næði, staða jafnréttismála og trú-
frelsi, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Cognitio sem er
fulltrúi SPI hér á landi. Tilgangur
þessa er að draga fram hvar þarf að
forgangsraða og hvernig skal nýta
fjármuni með markvissari hætti til
frekari umbóta og uppbyggingar.
Með samstarfinu munu sveitar-
félögin meðal annars geta nýtt vísi-
töluna til að leggja grunninn að því
að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) innan sinna bæjar-
marka.
Kópavogur var brautryðjandi á
þessu sviði og birti í fyrra ítarlega
VFF-úttekt á sveitarfélaginu.
Fleiri taka Framfara-
vogina í þjónustu sína
Morgunblaðið/Eggert
Á ráðstefnu Framfaravogin var kynnt á ráðstefnunni What Works sem
haldin var í gær og fyrradag. Þrjú sveitarfélög hafa tekið vogina upp.