Morgunblaðið - 04.04.2019, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Athygli vaktiað herflug-vélar Rússa
skyldu sækja Ís-
land heim á 70 ára
afmæli Nató og að-
ildar landsins að
því. Ítalskar herþotur banda-
lagsins sem þá voru hér fóru að
vélunum. Núverandi eftirlit er
vissulega götótt en það þýðir
þó ekki að viðbúnaðurinn sé
ófullnægjandi. En þótt vel færi
á því að birta fréttir um þennan
atburð þá er rétt að hafa sam-
hengi þessara þátta í huga-
.Eins og kom fram í svari utan-
ríkisráðuneytisins við
fyrirspurn Morgunblaðsins eru
ferðir óboðinna herflugvéla
Rússa um loftrýmið nú fágætar
eða að jafnaði þrjár vélar á ári.
Sum ár koma engar vélar
þeirra hér við.
Albert Jónsson, sendiherra
og fyrrverandi sérfræðingur
forsætisráðherra og utanrík-
isráðherra um utanríkis- og ör-
yggismál, heldur úti fróðlegri
vefsíðu um alþjóðamál og þá
ekki síst þau sem tengjast
stöðu og hagsmunum Íslands
með einhverjum hætti. Þar
kemur fram að í desember sl.
flugu tvær sprengjuþotur hér
um á leið sinni til Venesúela.
Allmörgum vikum síðar varð
hernaðarlegur atbeini Rúss-
lands við hið aðþrengda ríki
umræðuefni bandarískra fjöl-
miðla og talað var um ögrun við
Bandaríkin í því sambandi.
Á vefsíðu Alberts Jónssonar
kemur fram að hernaðarflug
Rússa fjarri eigin yfirráða-
svæði tengist ekki síst Bret-
landi, Alaska og Ís-
landi. „Flestar
hafa þær verið við
Bretland. Þá hefur
verið töluvert um
flug rússneskra
hervéla nær Rúss-
landi í námunda við Norður-
Noreg en einnig suður með
Noregsströnd og þá oft þær
sömu og sjást við Bretland.“
Þar kemur einnig fram að um-
ferð rússneskra kafbáta nærri
Íslandi hafi aukist nokkuð en
hún lagðist nánast af eftir fall
Sovétríkjanna.
Albert segir að lítil hern-
aðarumsvif Rússa nærri Ís-
landi endurspegli það að þótt
rússneski herinn sé öflugur í
nágrenni Rússlands hafi hann
mjög takmarkaða getu utan
þess svæðis sem muni þó
breytast að því leyti „að skip
hans, kafbátar og flugvélar
verða í framtíðinni líklega búin
langdrægari stýriflaugum en
nú er, sem skjóta má frá nær-
svæðum Rússlands á skotmörk
á landi í allt að 4.500 kílómetra
fjarlægð“.
Hvað sem öllu þessu líður og
þá m.a. því að Rússar hafi tekið
nýja kafbáta í notkun er ljóst
að herstyrkur þeirra er enn
mun veikari en áður var og við-
haldsþörf búnaðarins frá sov-
éttímanum eykst hratt og er
mjög þungbær eins og fjárhag
Rússlands er háttað.
Og hvað loftrýmið varðar eru
þessar tölur sláandi: Þrjár
flugvélar koma óboðnar hingað
að jafnaði á ári hverju en 170
vélar komu árlega í kalda stríð-
inu.
Óboðnar hervélar
Rússa eru fágæti sé
miðað við það sem
áður var}
Sláandi munur
George Clooney,lögulegi leik-
arinn frægi, hefur
verið í fréttum
vegna hvatningar
hans um að fjáðir
menn sniðgengju
hótel sem soldán-
inn í Brunei á hlut
í. (Það mun sjaldgæft að ferða-
menn viti hverjir eigi hlut í
þeim hótelum sem þeir gista í).
Ástæðan er sögð sú að soldán-
inn sá, sem er í hópi auðugustu
manna á jarðarkringlunni, hafi
kynnt tillögur um að samkyn-
hneigt fólk og það sem gerist
sekt um framhjáhald verði
grýtt til bana. Þetta er eins
fjarri því að vera gamanmál
eins og verða kann, en þó hlýt-
ur að vera óhætt að nefna að
fljótt yrði grjótskortur í Holly-
wood væri síðarnefnda reglan
gild þar.
En mótmælin vekja óneit-
anlega athygli af öðrum ástæð-
um. Staðreyndin er sú að sol-
dáninn í þessu smáa og
fámenna ríki (íbúa-
fjöldinn litlu meiri
en á Íslandi og flat-
armálið 0,1% af því
íslenska) hefur
lagt slíka tillögu
fram nokkrum
sinnum áður án
þess að gera alvöru
úr henni. En á sama tíma hafa
reglubundið birst fréttir um
viðurstyggilegar refsingar frá
stórríkjum sem yfirvöld víða,
þar með talið á Íslandi, hafa átt
virðuleg samskipti við.
Þá þarf varla að minna á að
stjórn Írans hefur iðulega látið
hengja ofsótta menn upp í háa
krana og látið lík þeirra dingla
lengi á opinberum stöðum fyrir
„brot“ eins og samkynhneigð.
Ekki dugði sá hryllingur til
þess að stuðningsmenn Obama
forseta andmæltu samningum
hans við klerkastjórnina þar,
en honum fylgdu himinháar
fúlgur í reiðufé(!) notaðra seðla
í dollurum, evrum og sviss-
neskum frönkum.
Það er ótrúverðugt
þegar menn berja
sér á brjóst þar sem
óhætt er en láta
verri þrjóta fram hjá
sér fara}
Gera sér mannamun
S
agt er að það sem aldrei hafi gerst
áður geti alltaf komið fyrir aftur.
Þegar bankarnir féllu fyrir rúm-
um áratug kom áfallið sjálft ekki á
óvart. Þjóðin hafði hvað eftir ann-
að verið vöruð við og allir vissu að eitthvað
hlaut að gefa eftir. Það sem kom á óvart var
að gjaldþrotið varð hrun. Í fjölmiðlum var í
alvöru rætt um hvort þjóðin gæti lifað af fiski
og innlendum kartöflum.
Um víða veröld gilda nú nýjar reglur sem
eiga að draga úr hættunni á öðru bankahruni.
Á Íslandi hefur eftirlit verið hert og kröfur
um eigin- og lausafjárstöðu bankanna eru svo
miklar að þeir kveinka sér. Það er afar ólík-
legt að bankarnir falli á næstunni. Víst er það
gott, en hvers vegna er þjóðin núna allt í einu
í áfalli á ný? Í einu vetfangi verða þúsundir
atvinnulausar. Vöxtur sem spáð var að héldi linnulaust
áfram hefur allt í einu stoppað.
Líklega hafa fá gjaldþrot gert jafnrækilega boð á
undan sér og brotlending WOW. Þrátt fyrir það voru
flugfarþegar samkvæmt fréttum „furðu lostnir“ og það
„kom flestum í opna skjöldu“ þegar öllu flugi var aflýst.
Allir fjölmiðlar fluttu á sama tíma gagnrýnislaust eft-
irfarandi frétt: „WOW air er á lokametrunum að klára
hlutafjáraukningu við nýjan eigendahóp á félaginu. Allt
flug hefur verið stöðvað þangað til þeir samningar verða
kláraðir.“ Enginn fréttamaður spurði hvers vegna nýju
hluthafarnir vildu stoppa allt flug eða velti því fyrir sér
hvort líklegt væri að þeir teldu betra að taka við félag-
inu með strandaða farþega víða um heim.
WOW bauð upp á ódýrar ferðir til ná-
lægra og fjarlægra staða og því var fagnað
af flugfarþegum. Stór hluti af fjölgun er-
lendra ferðamanna á Íslandi kom til vegna
WOW. En félög þurfa að skila hagnaði. Eftir
mitt ár 2018 var sagt frá því að tap hefði ver-
ið á rekstri árið 2017 en „horfur fyrir árið
2018 [væru] ágætar.“ Rúmlega mánuði
seinna bárust fréttir af skuldabréfaútboði fé-
lagsins vegna nauðsynlegrar „brúar-
fjármögnunar“. Ríkisstjórnin setti sérstakan
viðbragðshóp í gang. Á sama tíma var upp-
lýst að WOW skuldaði ríkinu tæplega tvo
milljarða króna í gjöld á Keflavíkurflugvelli.
Sumir telja að ríkið hefði átt að taka við
rekstri WOW með einhverjum hætti, en ég
tel ákvörðun ríkisstjórnarinnar þar um hár-
rétta. Hvað hefði ríkið þá getað gert betur?
1. Isavia hefði ekki átt að leyfa skuldum að hrannast
upp. Hvort sem til er veð eða ekki er mikil söfnun
skulda hættumerki í rekstri. Meiri skuldir þýða stærri
skell.
2. Þegar fyrirtæki eru jafn mikilvæg þjóðhagslega og
WOW verður að gera kröfu um gagnsæi í rekstri, skjóta
og rétta miðlun upplýsinga um rekstur eins og um félög
á markaði sé að ræða.
Fyrst og fremst eiga stjórnvöld að vera skrefi á und-
an og sjá hættuna fyrir, en einblína ekki á síðustu vá.
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Klár í síðustu kreppu
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Sjaríalög töku gildi í soldáns-dæminu Brúnei, smáríki áeyjunni Borneó í Suð-austur-Asíu í gær. Sjaríalög
eru trúarlög sem múslimar hlýða og
byggjast á lífsreglum íslam eins og
þær birtast í Kóraninum og had-
íðum.
Samkvæmt nýju refsilöggjöf-
inni verða samkynhneigðir karlmenn
sem stunda mök sín á milli grýttir til
dauða. Samkynhneigð var þegar
ólögleg í Brúnei en refsingin var áð-
ur allt að 10 ára fangelsi. Dauðarefs-
ingu verður einnig komið á fyrir
framhjáhald, nauðgun, rán og fyrir
að móðga spámanninn Múhameð.
Refsingin við þjófnaði verður aflim-
un. Refsing fyrir kynlíf milli tveggja
kvenna verður 40 högg með staf og/
eða allt að 10 ára fangelsi. Fólk er þá
bundið niður og slegið með metra
löngum staf sem er um 1,27 cm á
breidd. Stafahögg sem refsing hefur
verið við lýði í Brúnei lengi en börn
geta jafnvel verið dæmd til slíkra
refsinga, þ.e. drengir undir 16 ára.
Sjaríalögin í Brúnei ná að mestu
leyti eingöngu til múslima, sem eru
um tveir þriðji hluti íbúa landsins
eða 420.000 manns. Hluti laganna
nær einnig til annarra íbúa.
Kynntu sér lögin
í Sádi-Arabíu
Brúnei kynnti fyrsta hluta sjarí-
alaganna árið 2014. Æðstu embætt-
ismenn landsins höfðu þá farið til
Sádi-Arabíu til að kynna sér hvernig
sjaríalögum er framfylgt þar,
Hassanal Bolkiah soldán, sem
einnig er forsætisráðherra Brúnei og
einn ríkasti maður heims, tilkynnti
þá að lögin myndu taka gildi í áföng-
um á næstu árum. Síðasta laugardag
gaf ríkisstjórn landsins hins vegar út
tilkynningu á heimasíðu sinni um að
sjaríalögin myndu taka gildi að fullu í
gær.
Í yfirlýsingu frá Sameinuðu
þjóðunum (Sþ) eru lögin sögð misk-
unnarlaus, ómannúðleg og nið-
urlægjandi. Sögðu Sþ þetta vera al-
varlegt skref aftur á bak í
mannréttindabaráttu.
Matthew Woolfe, stofnandi
mannréttindasamtakanna The Bru-
nei Project, segir í samtali við BBC,
að slæmt efnahagsástand Brúnei
gæti verið ein ástæða þess að sjaría-
lögunum var hraðað í gegn.
„Ein kenningin er að rík-
isstjórnin sé að herða tök sín í ljósi
hnignandi efnahags sem gæti leitt til
uppreisnar meðal íbúa,“ segir Wo-
olfe. Þá gæti Brúnei einnig verið að
koma á sjaríalögum til að reyna að
laða að sér fjárfestingar frá öðrum
múslimaríkjum eða til að auka fjölda
múslimska ferðamanna.
Á fréttavef BBC er rætt við
fyrrverandi ríkisstarfsmann Brúnei
sem flúði land í fyrra eftir að hafa
verið ákærður fyrir uppreisnar-
áróður er hann gagnrýndi rík-
isstjórnina á Facebook. Hann segir
fólkið í landinu vera hrætt.
„Samfélag samkynhneigðra í
Brúnei hefur aldrei verið á yfirborð-
inu en þegar stefnumótaforritið
Grindr [stefnumótaforrit fyrir sam-
kynhneigða] varð til hjálpaði það
fólki að hittast á laun. Það sem ég hef
heyrt er að nú þorir enginn að nota
forritið lengur,“ segir Shahiran S
Shahrani í samtali við BBC.
Ónafngreindur karlkyns íbúi
Brúnei sem er ekki samkynhneigður
en hefur hafnað íslamstrú segist í
samtali við BBC „óttasleginn og dof-
inn“ eftir lagabreytinguna.
„Með sjaríalögunum má dæma
mig til dauða fyrir að hafa gengið af
trúnni.“
Samkynhneigðir
verða grýttir til dauða
AFP
Brúnei Soldáninn Hassanal Bolkiah flytur ræðu í Bandar Seri Begawan,
höfuðborg Brúnei, í gær. Hann talaði fyrir strangari túlkun á íslam.
Soldáninn í Brúnei sér einnig
um Brunei Investment Agency
sem á fjölda hótela víðsvegar
um heiminn, m.a. Dorchester-
hótelið í London og Beverly
Hills hótelið í Los Angeles.
Stórstjörnur á borð við
George Clooney og Ellen De-
Generes hafa opinberlega hvatt
til þess, að fólk sniðgangi öll
hótel í eigu soldánsins. Tónlist-
armaðurinn Elton John tísti
einnig um stuðning sinn við
sniðgönguna.
Í opnu bréfi Clooneys, sem
birtist í fjölmiðlum vestanhafs,
segir hann að í hvert skipti sem
einhver gistir á hótelum í eigu
soldánsins fari þeir peningar
beint í vasann á mönnum sem
ákveða að grýta eigin íbúa til
dauða fyrir að vera samkyn-
hneigðir eða þá eru sakaðir um
framhjáhald. Elton John skrifaði
í tísti sínu að hann hefði árum
saman sniðgengið þessi hótel
og hann muni halda því áfram.
Stórstjörnur
til varna
SJARÍALÖG Í BRÚNEI