Morgunblaðið - 04.04.2019, Page 47

Morgunblaðið - 04.04.2019, Page 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. APRÍL 2019 ✝ Lilja Jak-obsdóttir fædd- ist í Reykjavík 20. febrúar 1962. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 21. mars 2019. Foreldrar henn- ar eru Jakob Sig- urður Árnason, f. 3. nóvember 1930, d. 7. febrúar 2018, og Margrét Sigurðardóttir, f. 25. júlí 1934. Alsystur hennar eru: Anna Auðbjörg, f. 18. apríl 1956, og Árný Sigríður, f. 13. september 1958. Samfeðra systkini eru: Kristín Lilja Sig- urðardóttir, f. 9. mars 1951, Sigurbjörg Magnea Sigurð- ardóttir, f. 9. júní 1952, og Árni Sævar Sigurðsson, f. 24. sept- ember 1973. desember 2009, og Karen Lilju, f. 15. apríl 2016. Lilja og Sævar eignuðust saman tvö börn. Þau eru: Davíð, f. 22. október 1990, maki Arndís Ósk Arnarsdóttir, f. 25. júlí 1992, og Sandra María, f. 22. febrúar 2001. Lilja ólst upp í Reykjavík og sótti skóla í Laugalækjarskóla. Að lokinni skólagöngu vann hún ýmis störf, meðal annars í fataverslunum og við skrif- stofustörf. Lilja og Sævar bjuggu í Reykjavík til ársins 1987. Þaðan fluttu þau til Nor- egs, Danmerkur og síðan til Hollands. Árið 2002 fluttu Lilja og Sævar með börnin til Ís- lands, þar sem þau stofnuðu saman fyrirtæki. Lilja starfaði síðast hjá Ilse Jacobsen sem verslunarstjóri. Útför Lilju verður gerð frá Vídalínskirkju í dag, 4. apríl 2019, og hefst klukkan 13. Jarð- sett verður síðar hjá Garða- kirkju í Garðabæ. Hinn 13. maí 1989 gekk hún að eiga eiginmann sinn, Sævar Þór Óskarsson, f. 24. apríl 1962. For- eldrar hans voru Bergþór Bergþórs- son, f. 23. júlí 1940, d. 11. ágúst 2001, og Sigrún Davíðs- dóttir, f. 26. júní 1945. Stjúpfaðir Sævars var Óskar Ásgeirsson, f. 12. september 1941. Lilja eignaðist sitt fyrsta barn með Steinþóri Erni Ósk- arssyni, f. 6. ágúst 1952; Írisi Ósk, f. 16. febrúar 1982, maki Stefán Hrafn Ólafsson, f. 10. desember 1981. Íris á barn með Anders Peter Möller, Anítu Rós, f. 13. maí 2007. Íris og Stefán eiga saman Stellu, f. 22. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt og hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín systir Árný (Addý). Það var okkur mikið áfall þeg- ar við fréttum af veikindum þín- um, elsku Lilja. Eitt áfallið enn kom strax upp í huga okkar. Við trúðum þessu ekki en þetta var bláköld staðreynd. Styrkur Lilju og Sævars hefur verið með ein- dæmum í gegnum tíðina. Ég hef alltaf horft á samband þeirra sem eitthvað sérstakt. Þegar ég segi sérstakt hafa þau gengið í gegnum allar þrautir með gleði í hjarta og komist áfram þrátt fyrir allt. Það má eiginlega segja að þau hafi verið gerð fyrir hvort annað því nú þegar Lilja hefur kvatt langt fyrir aldur fram veit hún að Sandra og fjölskyldan er í góðum höndum Sævars. Hann hefur svo sannarlega sýnt styrk sinn í gegnum tíðina og við sem þekkjum þau vitum hvers vegna Lilja valdi hann sem lífsförunaut og hann hana. Aldrei hef ég séð eins mikinn styrk og hjá þeim þegar eitthvað hefur bjátað á. Þennan styrk sé ég líka hjá Írisi sem er gift syni mínum. Að finna og vita af svona genum í fjölskyldunni gleður hjarta mitt. Það var nú ekki ætl- un mín að skrifa greinina um Sævar en hann kemur bara svo sterkt upp í huga minn þegar ég skrifa þessa grein. Lilja vildi alltaf flytja kær- leika þangað sem hatur var. Hún sá það góða í öllum. Ég man í síðasta kaffiboði hjá Stefáni og Írisi. Þegar ég var að fara kallaði Lilja: „Óli minn, leyfðu mér nú að taka utan um þig því senni- lega ég sé þig aldrei aftur.“ Þetta sagði hún með gamansömu ívafi og klappaði mér létt á öxl- ina þegar ég hvarf á braut út í kuldann. Þegar vikur liðu leið mér allt- af hálfundarlega með þetta, að ég skyldi aldrei sjá hana Lilju okkar aftur. Þetta kom aftur og aftur upp í huga minn. Ég sagði við Sigrúnu mína að ég sætti mig ekki við þetta, það er bara svoleiðis. Við vissum að stundum var hún í versluninni sem hún hafði unnið í til margra ára, en Íris hafði tekið við af mömmu sinni um leið og hún veiktist. Við ákváðum að kíkja í heimsókn og viti menn, þar var Lilja með sitt góða skap og leit vel út að venju. Alltaf vel til höfð þrátt fyrir mikil og erfið veikindi. Mér leið svo vel að fá þetta tækifæri og tók utan um hana og fékk aftur að finna hennar hlýja faðmlag. Ekki var hún að kvarta, sá alltaf gleðina og kærleika. Í þetta sinn var sól og blíða þegar við kvödd- um hana. Viku seinna var hún farin. Elsku Lilja, guð veri með þér og öllum þeim sem nú þurfa að takast á við lífið og tilveruna án þín. Haltu áfram að stýra okkur hér niðri. Að lokum þetta; elsku Lilja mín, við munum alltaf vera með og styðja okkar fólk hér niðri. Við erum ein stór fjöl- skylda sem gerir okkur sterk. Saman erum við sterkust. Með því að deyja vakna ég til eilífs lífs. Amen. Ólafur og Sigrún. Það er með sorg í hjarta að ég kveð vinkonu mína og samstarfs- konu, Lilju Jakobsdóttur, og finnst hálffjarstæðukennt að ég sé að skrifa minningargrein um hana. Ég þekkti Lilju frá því ég opn- aði verslunina Ilse Jacobsen á Garðatorgi fyrir 14 árum. Hún varð fljótlega einn af fastakúnn- unum og það var svo um haustið 2013 að hún réðst til starfa hjá fyrirtækinu. Hún varð fljótlega verslunarstjóri og sinnti því starfi og öðrum trúnaðarstörfum fyrir fyrirtækið með glæsibrag, þar til hún veiktist í haust. Lilja hafði einstaka mannkosti til að bera. Hún var ein glaðlynd- asta og hlýjasta manneskja sem ég hef kynnst og lífgaði alltaf upp á umhverfið með hlátrinum og húmornum, það var alltaf gaman í vinnunni með Lilju. Hún var framúrskarandi starfsmaður og hafði óbilandi áhuga á tísku og hönnun, fag- maður fram í fingurgóma og skil- aði það sér vel í samskiptum hennar við viðskiptavinina sem mátu hana mikils. Hún lét sér einstaklega annt um kúnnann og ég held að mér sé óhætt að full- yrða að enginn hafi farið óánægður út frá Lilju. Lilja var glæsileg kona, smekkleg og mikill fagurkeri. Hún var mjög vel liðin af sam- starfsfólki sínu, sem öllu var hlýtt til hennar, og var það því mikið reiðarslag þegar Lilja greindist með krabbamein sl. haust. Hún bar veikindi sín vel og af einstöku hugrekki, fullkomlega æðrulaus. „Þetta verður allt í lagi,“ sagði hún alltaf, en hún kom iðulega í heimsókn í vinn- una til okkar eftir að hún veiktist eða meðan kraftar leyfðu. Minningarnar hrannast upp á svona kveðjustund. Innkaupa- ferð til Kaupmannahafnar, bíl- ferðirnar okkar, við að sitja af okkur dembandi rigningu á Strikinu á trúnó og alltaf var stutt í hláturinn. Ég verð ævinlega þakklát fyr- ir að hafa kynnst Lilju og fengið að fylgja henni síðustu dagana í veikindunum. Minning um ein- staka og góða konu mun lifa, en það er með mikilli eftirsjá og sorg sem ég kveð yndislega sam- starfskonu og vinkonu sem kvaddi allt of snemma. Hennar verður sárt saknað. Mína innilegustu samúð votta ég Sævari, fjölskyldunni og börnunum hennar, Írisi, Davíð og Söndru, sem hún var svo stolt af, og ömmustelpunum Anítu, Stellu og Karen Lilju. Ragnheiður Óskarsdóttir. Lilja Jakobsdóttir ✝ Vigdís Eiríks-dóttir fæddist í Mófellsstaðakoti 13. nóvember 1928. Hún lést á dvalarheimilinu Brákarhlíð, Borg- arnesi, 14. mars 2019. Foreldrar henn- ar voru Eiríkur Sigurðsson, f. 9. febrúar 1886, d. 6. mars 1966, og Jónína Magnús- dóttir, f. 1. desember 1895, d. 26. apríl 1984. Systir Vigdísar er Guðrún, f. 28. nóvember 1930. Sambýlismaður Vigdísar var Davíð Ólafsson frá Hvít- árvöllum, f. 18. október 1902, d. 1. desember 1998. Sonur þeirra er Ólafur Eiríkur, f. 1. mars 1956. Kona hans er Þóra Stefánsdóttir, f. 11. september 1956. Börn þeirra eru Davíð, f. 22. desember 1977, Katrín Arna, f. 23. júlí 1979, og Arnþór, f. 7. júní 1988. Barnabörn Vigdísar eru Birna Arnþórsdóttir, Davíð Ólafur Jóhannesson, Ólafur Fannar Davíðsson og Ísar Elí Arnþórsson. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elsku amma mín, það sem ég var heppin að eiga þig að og alltaf varstu til staðar. Ég varð þeirra forréttinda aðnjótandi að alast upp með ömmu og afa í næsta húsi og þar eyddi ég mörgum góðum stundum, í faðmi þeirra, mikið var spilað á spil og höfðum við það skemmtilegt. Í gamla húsinu á Hvítárvöllum var alltaf einhver heima þegar maður kom heim úr skólanum. Það situr alltaf í minningunni hve mikið var borðað af ristuðu brauði með rifsberjasultu og pönnukökum. Ég elskaði þennan tíma og sakna hans mikið. Það var eitt- hvað svo töfrandi við að alast upp í sveit, ný ævintýri og áskoranir á hverjum degi, bæði í leik og starfi. Þær verða ekki leiknar eftir veislurnar. Þær verða ekki leiknar eftir þær veislur sem amma hélt og var sérfræðingur í „alltaf eins og fermingarveisl- ur“. Amma var einstakur hesta- sveinn og fengu Hrafn og Dropi að njóta þess, það var svo gam- an að sjá þau saman og sjá þá miklu virðingu sem Hrafn og Dropi báru fyrir ömmu Dísu, voru svo miklir vinir. Amma passaði Davíð Ólaf fyrir mig þegar hann var yngri, vakti yfir vagninum hans. Þessar minn- ingar eru mér svo dýrmætar og mikilvægar, elsku amma mín. Amma var einstakt snyrti- menni, allt sem hún gerði var gert af ást og alúð, hvort sem það var innandyra eða utan. Garðurinn hennar ömmu var alltaf einstaklega fallegur og snyrtilegur. Amma hafði mik- inn áhuga á rifsberjunum í garðinum, spurði alltaf fram undir það síðasta „er eitthvert rifs?“. Einnig hafði amma gaman af því að fara í berjamó og fórum við oft saman upp í Skorradal. Alltaf hafði amma orð á því að berin hefðu nú verið miklu stærri í gamla daga og hefðu minnkað töluvert frá því að hún var ung. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að vera með ömmu síðustu dagana og fylgja henni loka spölinn á langri og við- burðaríkri ævi. Elsku amma, ég er svo þakklát að eiga svona margar og fallegar minningar um þig og afa Dadda. Nú eruð þið aftur saman eftir 21 árs að- skilnað og hvílið hlið við hlið. Blessuð sé minning þín, elsku amma Dísa. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Katrín Arna Ólafs- dóttir, Hvítárvöllum. Þá er lífsgöngu frænku minnar Vigdísar á Hvítárvöllum lokið. Það er eitt af því sem við getum gengið að sem vísu að eitt sinn verða allir menn að deyja og eftir bjartan daginn kemur nótt, eins og segir í þekktum dægurlagatexta. Mig langar að minnast Dísu móð- ursystur minnar í fáum orðum eins og þau birtast í huga mér nú við leiðarlok. Dísa frænka mín var alin upp í Mófellsstaða- koti, þar sleit hún barnsskónum eða allt þar til hún fór að Hvít- árvöllum og kynntist honum Dadda, þeim sómamanni, en það held ég að hafi verið henn- ar stærsta gæfa í lífinu. Þar áttu þau myndarlegt heimili sem var ekki hvað síst henni að þakka enda myndarleg húsmóðir sem ávallt var gott að sækja heim. Alltaf töfraði hún fram kaffi og myndarlegt með- læti jafnvel þó svo að henni þætti stundum sem ekkert væri til með kaffinu var alltaf veisla hjá Dísu. Oft mátti hún láta hendur standa fram úr ermum enda gestkvæmt á Hvítárvöll- um. Mér eru þó efst í huga bernskuár mín í Mófellsstaða- koti en allt frá því að Dísa frænka flutti að Hvítárvöllum eyddi hún sumarmánuðum heima í Mófellsstaðakoti til að aðstoða í heimilisverkum og bú- störfum hjá móður sinni og systur. Dísa var mikill dugnaðar- forkur sem féll sjaldnast verk úr hendi. Hún bæði bakaði og þreif og tók einnig þátt í bú- verkum því jafnvíg var hún hvort heldur sem var á úti- eða inniverk. Störfin voru systur hennar mikils virði enda í nægu að snúast hjá henni með bú- skapinn og gríslingana tvo, þ.e. okkur systkinin, sem vafalaust hefur eitthvað þurft að sinna. Þetta langar mig sérstaklega að þakka nú við leiðarlok. Dísa hafði sterkar skoðanir á hlut- unum og vafalaust hefur okkur einhvern tímann greint á en aldrei risti það djúpt og efst er mér í huga vinskapur og vænt- umþykja þegar ég minnist Dísu frænku minnar enda fór þar kona með stórt hjarta sem vildi öllum vel og setti ávallt alla aðra í fyrsta sæti. Elsku Dísa, hafðu þökk fyrir allt, blessuð sé minning þín. Kveðja frá Mófellsstaðakoti, Jón Eiríkur Einarsson. Vigdís Eiríksdóttir Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnt hafið okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR EINARSDÓTTUR, sem lést miðvikudaginn 13. mars. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Hlévangs og heimahjúkrunar HSS fyrir einstaka umönnun og hlýju. Björg, Ragnhildur, Ásta, Sigríður, Erna og Guðbrandur Sigurðarbörn og fjölskyldur Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, ÞÓRDÍS GUNNARSDÓTTIR, Jacksonville, Flórída, áður til heimilis á Kvisthaga 27, er látin eftir langvarandi veikindi. Aðstandendur Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, ÓLÖF SVAVA INDRIÐADÓTTIR, Lóa, kjólameistari, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk 27. mars. Jarðsett verður frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. apríl klukkan 15. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Benedikt Sigurbjörnsson Þóra Guðrún Benediktsdóttir Hólmfríður Ben Benediktsdóttir Indriði Benediktsson Ástkær frændi minn, GUNNAR ALBERT ÓLAFSSON, Glæsibæ, Vopnafirði, andaðist á hjúkrunarheimilinu Sundabúð föstudaginn 29. mars. Útförin fer fram frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 6. apríl klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, Sigrún Lára Shanko Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSTA MINNEY GUÐMUNDSDÓTTIR frá Svarthamri, lést sunnudaginn 31. mars á Hrafnistu í Hafnarfirði. Jarðsungið verður frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 5. apríl kl. 15. Guðrún Halldórsdóttir Jónas Skúlason Guðmundur Halldórsson Salbjörg Sigurðardóttir Sóley Halldórsdóttir Aðalheiður Halldórsdóttir Pétur Júlíus Halldórsson Kristín Gunnarsdóttir Harpa Halldórsdóttir Helgi Skúlason barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.